Dagur - 30.06.1987, Page 12

Dagur - 30.06.1987, Page 12
fl!) PIOMEŒR BÍLTÆKl OG HÁTALARAR Menntaskólinn á Akureyri: Vonast til að stækkun heimavistar hefjist 1989 - rúmum fjölgað úr 150 í 210 Nú er Ijóst orðið að í ár þarf að neita um það bil 70 nemendum Menntaskólans á Akureyri um pláss á heimavist skólans. Það er löngu orðið Ijóst að þörf er stærri heimavistar við skólann Hofsjökull safnar freðfiski Flutningaskipið Hofsjökull hefur nú um nokkurt skeið far- ið umhverfis landið á fjögurra vikna fresti í þeim tilgangi að safna freðfiski hjá frystihúsum Sölumiðstöðvar Hraðfrystihús- anna. í gær kom skipið til Akureyrar frá Ólafsfirði og þaðan hélt það vestur um til Siglufjarðar og Sauðárkróks. Ferð þessi hófst um helgina og fyrst var komið á Austfjarða- hafnir. Síðasta ferð, á undan þessari, var farin í byrjun júní og sú næsta hefst 23. næsta mánað- ar. Ferðinni lýkur í Vestmanna- eyjum og þaðan fer skipið til Bandaríkjanna en birgðastaða á íslenskum fiski hefur að sögn Birgis Ómars Haraldssonar útgerðarstjóra Jökla hf. aldrei verið verri en einmitt núna. Birgir sagðist vonast til að hægt yrði að fylla skipið en það tekur um 2700 tonn af frystum fiski. Á Norðurlandi er reiknað með að fáist um 800 tonn. ET Skipadeild Sambandsins: Ferðir til Akureyrar einu sinni í viku Um síðustu helgi var á Akur- eyri leiguskip Sambands íslenskra samvinnufélaga. Það var að losa vörur frá Reykja- vík, en nú er hafið þriggja mánaða reynslutímabil Sam- bandsins á strandflutningum. Er Dagur hafði samband við Jón Daníelsson hjá skipadeild Sambandsins, tjáði hann okkur, að fyrst og fremst yrði um að ræða vörur frá Reykjavík til Akureyrar og myndu ferðir verða einu sinni í viku. Farið verður frá Reykjavík á mánudagskvöldum og losað á Akureyri á miðviku- dagsmorgnum. í bakaleiðinni yrði síðan lestaður frosinn fiskur í veg fyrir Jökulfell sem síðan yrði losaður í Reykjavík. Jón sagði ennfremur, að teknar yrðu vörur á þær hafnir sem lesta fisk, ef það hentaði. Hingað til hafa það aðallega verið Eimskipafélag íslands og Ríkisskip sem séð hafa um strandflutninga. VG og ekki síst er þörfin knýjandi þegar ástand á leigumarkaöi er eins og það er samhliða til- komu nýrra skóla. Mörg undanfarin ár hafa stað- ið umræður um byggingu nýrrar heimavistar á Akureyri og hefur þá gjarnan verið talað um sam- eiginlega vist fyrir framhaldsskól- ana báða og nýjan háskóla. Að sögn Jóhanns Sigurjónssonar skólameistara MA er líklegast eins og málin standa núna að skólinn standi einn að byggingu heimavistar. Mál þetta er enn á algjöru frumstigi en að sögn Jóhanns er reiknað með nýrri álmu vestan núverandi heimavistar, með um 100 rúmum, í eins og tveggja manna herbergjum. Samhliða þessu yrði þá sennilega rýmkað eitthvað til í núverandi húsnæði þannig að um 40 tveggja manna herbergjum verði breytt í eins manns herbergi. Þannig yrði nettófjölgun plássa um 60, úr um 150 í 210. Undirbúningsvinna og kostn- aðaráætlun verða unnin í sumar og haust en til þess hefur fengist fjárveiting að upphæð 300 þús- und krónur. Jóhann sagðist síðan vonast til að hönnun gæti farið fram á árinu 1988 og fram- kvæmdir hafist 1989. Fram- kvæmdahraði ræðst síðan af fjár- veitingum. Samkvæmt frumvarpi til laga um framhaldsskóla er gert ráð fyrir því að heimavistir séu þann- ig byggðar að þar sé hægt að reka hótel yfir sumartímann, og því mun verða haft samstarf við ferðamálaaðila um hönnun. En það er fleira en herbergja- skipan sem myndi breytast með nýrri byggingu. Miðað við núver- andi hugmyndir mun aðalanddyri heimavistarinnar verða í tengi- álmu, vestan núverandi vestur- álmu. Einnig eru uppi hugmyndir um tilfærslu á bókasafni, mötu- neyti og eldhúsi og einnig um sameiginlegan rekstur skólanna, sjúkrastofnana og fleiri aðila á þvottahúsi. ET Hið nýja og glæsilega frystihús á Raufarhöfn, sem vonir standa til að tekið verði í notkun snemma í vetur. Mynd: vg Er lögreglan bótaskyld? - Bíll skemmdist þegar lögreglumenn reyndu að opna hann Lögreglan á Akureyri hefur átt gríðarlega annríkt við að opna bíla sem ökumenn hafa læst og skilið lyklana eftir innandyra. Yfirleitt hefur þetta gengið átakalaust fyrir sig en þó fékk íögreglan kvörtun um daginn frá bifreiðareiganda sem taldi að lögregluþjónar hefðu skemmt bílinn sinn þegar þeir voru að opna hann með þeim aðferðum sem beitt er í slíkum tilvikum. Varðstjóri sem talað var við á dögunum sagði að þetta mál gæti orðið til þess að lögreglan hætti að sinna bíleigendum sem hefðu læst sig úti því illt væri að eiga skaðabótakröfur yfir höfði sér fyrir greiðviknina. Erlingur Pálmason yfirlögregluþjónn taldi hins vegar ekki stætt á því að hætta þessari þjónustu, enda þörfin brýn, og tilfelli sem þetta væri algjör undantekning. Erlingur var spurður um for- sögu og hugsanlega lausn þessa máls. „Það er sannað mál að kon- an sem á þennan bíl og skildi lyklana eftir inni í, hafði sagt að hún ætti aðra lykla á Dalvík og hún bað okkur fyrir alla muni að vera ekki að reyna að opna bílinn ef hætta væri á skemmdum. Til- raunum var hins vegar haldið árangurslaust áfram. Þegar hurð- in loks var opnuð kom í ljós að pakkningin hafði skemmst,“ sagði Erlingur. Hann sagði að Iíklega myndi málið leysast á þann veg að lög- reglan bætti tjónið. Þetta hefði Hafnarframkvæmdir á Akureyri: „Bmsinn“ bíður fyllingar Lenging á viðlegukantinum við Slippstöðina á Akureyri vegna fyrirhugaðrar flskihafnar er nú langt komin. Kostnaður við hafnarframkvæmdir á Akur- eyri á þessu ári verður um 30 milljónir. Á enda slippkantsins cru rekin niöur stálþil sem mynda hring á enda hans, svokallaðan „brúsa“. Brúsinn veröur síðan fylltur upp með möl og steypu og gengið frá iögnum. Kanturinn lengist um 30-35 metra til austurs. Síðar á árinu eða í byrjun næsta árs er að sögn Guömundar Sigurbjörnssonar hafnarstjóra fyrirhugað að hefja framkvæmdir við grjótgarð norður frá Togara- bryggjunnt-en hann yrði þá aust- an fiskihafnarinnar nýju. Á næsta ári er svo stefnt að því að reka niður stálþil innan við þennan garð. Aðrar framkvæmdir á vegum hafnarinnar eru frágangur á lögn- um og rnalbikun í Sandgeröisbót, fyrir um 3 tnilljónir, og einnig frágangur á Höepfnerstanga fyrir um 600 þúsund og frágangur á raflögnum við hafskipabryggjuna á Oddeyrartanga. Engar dýpkun- arframkvæmdir eru fyrirhugaðar í ár. ' ET Unnið vift „Brúsunn- verið sérstakt tilfelli því þeir hefðu verið beðnir um að hætta ef illa gengi. Málið horfði öðru- vísi við þegar ætti að reyna til þrautar að opna bíla. í þessu til- felli voru hins vegar til varalyklar og sökin lögreglunnar að hætta ekki fyrr. SS Tankbílar KEA: Fluttu 90 þúsund lítra af vatni á Melana Tankbílar Mjólkursamlags KEA þeysast flcsta daga um sveitir Eyjaljarðar í þeim til- gangi að sækja mjólk hjá kúa- bændum á svæðinu. En það er fleira en mjólk sem flutt er á bílunum góðu. Eins og komið hefur fram í blaðinu lauk um helgina Fjórð- ungsmóti norðlenskra hesta- manna á Mclgerðismelum í Eyja- firði. Á mótinu voru um 3000 manns'og eins og gefur að skilja þarf töluvert vatn handa öllum mannskapnum. Á föstudag og laugardag fluttu bílar samlagsins alls um 90 þús- und lítra af vatni'fram á Mela þar sent því var komið fyrir í gömlum brunni til nota fyrir mótsgesti. Að sögn Júlíusar Kristjánssonar hjá mjólkursamlaginu hefur það áður komið fyrir að tankbílarnir hafa flutt vatn. Aðallega hefur það þá veriö fvrir bændur scm í þurruiv", sumrum hafa orðið uppi- skroppa tneð þennan bráðnauð- synlega vökva. ET

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.