Dagur - 20.07.1987, Side 12
Hvað ertu bráðlátur?
^Pedíomyndir^
Viltu fá myndirnar þínar
eftir 3, 2 eða 1 klukkustund?
Til þjónustu reiðubúin.
Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520.
Lögreglan:
Slysalaus helgi
Engin slys voru í umferöinni
um helgina og lögreglumenn
hér á Norðurlandi voru sam-
mála um að helgin hafi verið
mjög róleg.
Árni Magnússon, varðstjóri
hjá lögreglunni á Akureyri sagði
að aðeins hafi orðið einn árekstur
um helgina en engin slys á fólki.
Sex manns fengu að gista fanga-
geymslur lögreglunnar og einn
ökumaður var stöðvaður fyrir
ölvun við akstur. Þá var einn
ökumaður tekinn fyrir of hraðan
akstur. í gær voru lögreglumenn
að fylgjast með umferðinni í ná-
grenni Akureyrar en umferð var
nokkuð mikil en ekki varð vart
við hraðakstur.
í Ólafsfirði var dansleikur á
föstudagskvöld og að sögn lög-
reglu fór hann friðsamlega fram.
Á fimmtudag varð óhapp í Ólafs-
fjarðarmúla er bifreið lenti á
steini og eyðilagði tvö dekk og
felgur en að öðru leyti hefur
umferð á þjóðvegum gengið vel.
Jón Kristinsson, hjólreiðakappi:
Kominn á leiðarenda
- eftir 600 km ferð
Á föstudaginn kom Jón Krist-
insson, hjólreiðakappi til
Reykjavíkur á hjóli sínu og
hafði þar með lagt að baki 600
km en þessi ferð var, sem
kunnugt er, farin til að safna fé
til byggingar Sels 2 á Akureyri.
Davíð Oddsson, borgarstjóri
tók á móti Jóni á Lækjartorgi og
við það tækifæri færði Jón borg-
inni lurk að gjöf til minningar um
að hann hjólaði frá Reykjavík til
Akureyrar árið 1935 og til baka
nú 52 árum síðar.
Jón var hress þegar Dagur
hafði samband við hann í gær.
Hann sagðist aldrei hafa fundið
fyrir þreytu á þessari ferð og
sagði að allt hefði gengið sam-
kvæmt áætlun. Hann sagðist þeg-
ar vera kominn með um 170 þús-
und sem safnast hefðu en einnig
vissi hann til að fleiri framlög
væru á leiðinni og einnig hefði
eitthvað safnast heima á Akur-
eyri. „Það eina sem olli okkur
vandræðum var að erfitt var fyrir
fólk að ná í farsímann hjá okkur.
Þetta farsímakerfi virðist vera
algjörlega sprungið,“ sagði Jón.
Þau feðgin, Helga og Jón litu
inn á öllum dvalarheimilum á
leiðinni og skemmtu gamla fólk-
inu. „Þetta var mikil upplifun og
maður kynntist mörgu fólki. Við
skemmtum á 9 dvalarheimilum
og síðan erum við að fara þessa
dagana í heimsóknir á dvalar-
heimili á höfuðborgarsvæðinu og
í nágrenni."
„Eg var stálheppinn með veður
allan tímann. Það rigndi að vísu á
leiðinni niður Holtavörðuheiði
og Norðurárdal. Þar var líka ver-
ið að vinna við vegagerð og veg-
urinn því erfiður. En í heild voru
vegirnir góðir,“ sagði hjólreiða-
kappinn að loknum 600 km hjól-
reiðatúr. JOH
Dagvistargjöld:
Hærri á Akureyri en á
höfuðborgarsvæðinu
- Seltjarnarnes þó áberandi dýrast
Þann 1. júní sl. varð hækkun á
töxtum vegna dagvista barna.
Dagur hefur gert samanburð á
gjaldi því sem tekið er fyrir
þessa þjónustu á fjórum stöð-
um á landinu þ.e. Akureyri,
Reykjavík, Kópavogi og Sel-
tjarnarnesi.
Athugað var hvað kostaði leik-
skólapláss í 4 og 5 tíma, heils-
dagsvistun á dagheimilum, og
vistun hjá dagmæðrum. Það kom
í ljós, að fyrir utan dagmæðurn-
ar, er verð á leikskóla- og dag-
heimilisvist mjög svipuð í
Reykjavík, Kópavogi og á Akur-
eyri, sem þó er hæst af þessum
þrem stöðum. Munar þar um því,
að í Kópavogi er dagheimilis-
gjaldið greitt meira niður fyrir
einstæða foreldra en á Akureyri.
Seltjarnarnes er áberandi dýrast
en þar kostar heilsdagsvistun á
dagheimili 7.450 krónur en í
Reykjavík 6.310. Á Akureyri og
í Kópavogi kostar sama þjónusta
6.600 krónur.
Það er frekar óraunhæft að
bera saman verð hjá dagmæðrum
þar sem það er mismunandi eftir
starfsreynslu og þvf hvort þær
hafi leyfi eða ekki. Samkvæmt
þeim upplýsingum sem Dagur
aflaði sér, kostar 50 krónur á tím-
ann að hafa barn hjá dagmóður á
Akureyri. Miðað við átta tíma á
dag, með morgun- og síðdegiskaffi
og hádegismat myndi þessi þjón-
usta kosta 12.548 krónur í júlí. í
Reykjavík og á Seltjarnarnesi
miðað við lægsta taxa sem er 72
krónur á tímann kostar þessi
sama þjónusta í júlí 16.596
krónur. VG
Þessi mynd var tekin af hjólreiðafólkinu sem nú er á hringferð kringum landið til að safna fé fyrir Krísuvíkursam-
töldn. Þau eru hér á leið frá Akureyri til Dalvíkur.Mynd: gt
„Hvaða vinnupallar?“ segja menn þegar þeir eru spurðir hvort þeim þyki
mikil prýði að þessum vinnupöllum sem sjást á myndinni. Þar sannast hið
fomkveðna að svo má illu venjast að gott þyki, því þessi fögra pallar eru
búnir að vera þarna í um það bil ár þó að síðan í haust hafi ekki sést maður
fara upp í þá. Væri ekki rétt að fjarlægja þá fyrir eins árs afmælið? Mynd: GT
Júníaflinn:
3000 tonnum
meiri á
Norðurlandi
- en í júní 1986
Fiskafli landsmanna í júní var
69.687 tonn og er það um 13
þúsund tonnum meira en í júní
1986. Aukninguna er að fínna
bæði hjá bátum og togurum.
Fyrstu sex mánuði ársins er
fískaflinn orðinn 898 þúsund
tonn á móti 730 þúsund tonn-
um á sama tíma í fyrra. Þorsk-
afli ársins er orðinn tæplega
221 þúsund tonn, þar af 90
þúsund hjá togurum.
Þorskafli báta í júní var um 12
þúsund tonn og þorskafli togara
27.500 tonn, eða alls um 39.500
tonn á móti rúmlega 31 þúsund í
júní 1986.
Á Norðurlandi hefur mestur
afli komið á land á Akureyri í
júní eða 3.468 tonn á móti 3.072
tonnum í júní í fyrra. Næst í röð-
inni koma Ólafsfjörður með
2.238 tonn, Siglufjörður með
2.219 tonn, Sauðárkrókur með
1.958 tonn og Dalvík með 1.883
tonn.
Heildaraflinn í júní á svæðinu
frá Hvammstanga að Þórshöfn er
orðinn um 15.600 tonn á móti
12.600 tonnum í júní 1986. ET
Kaffibrennsla Akureyrar:
Bónusgreiðslur
til starfsfólks
- vegna góðrar afkomu
- verð á kaffibaunum að lækka
Nýlega fengu 15 starfsmenn
Kaffíbrennslu Akureyrar bón-
usgreiðslu, sem miðast við 30
þúsund krónur fyrir heilsdags-
starf í eitt ár. Að sögn Helga
Bergs framkvæmdastjóra
Kaffíbrennslunnar, gekk rekst-
urinn mjög vel á síðasta ári og
var afkoma góð. Það hefur
verið stefna fyrirtækisins að
láta starfsfólk njóta þess í ein-
hverjum mæli.
Greiðslur sem þessar hafa ver-
ið greiddar undanfarin tvö ár.
Helgi vill ekki meina, að starfs-
fólkið verði ánægðara eingöngu
vegna þessa, starfsfólk segir hann
mjög gott hjá þeim og eflaust
verði það ekki verra vegna þess-
ara greiðslna. Hann segir þetta
ekki vera fastan hluta launa og
geti ekki komið inn í samninga,
heldur eingöngu bónus sem
greiddur er verði afkoma góð.
Rekstur fyrirtækisins hefur
gengið vel undanfarin ár, og er
útlit fyrir áframhald. „Verð á
kaffibaunum hefur verið að
lækka að undanförnu, sem betur
fer því verðið var orðið óhóflega
hátt. Þetta stafar m.a. af góðri
uppskeru og horfum á áfram-
haldandi góðri uppskeru,“ sagði
Helgi.
íslendingar eru að sögn nálægt
því að vera heimsmeistarar í
kaffidrykkju, eru á meðal fimm
efstu þjóða heims miðað við
íbúafjölda. VG