Dagur - 29.07.1987, Síða 3

Dagur - 29.07.1987, Síða 3
29. júlí 1987 - DAGUR - 3 þrjá morgna í útsendingu aðra vikuna og fjóra hina. Pað veitir ekkert af því að fá dag á milli til að undirbúa ef eitthvað á að vera í þáttinn spunnið. Við þurfum að velja tónlist, skrifa handrit, sjá um áferðina á þættinum, fá fólk í viðtöl, útbúa og semja getraunir og pistla og vera röddin í þættin- um.“ - Hvernig var að upplifa sam- keppnina sem kom til þegar Bylgjan byrjaði að senda út? „Við vorum öll mjög spennt á rás 2 þegar Bylgjan byrjaði. Mér fannst Bylgjan byrja mjög ógæfu- lega, það var allt í kalda koli til að byrja með. Það voru hræðileg mistök í útsendingu í byrjun. Við vorum því bjartsýn á að við mundum halda velli. En fólk tók þessum mistökum mjög vel og gaf Bylgjunni tækifæri. Hún fékk miklu fleiri tækifæri heldur en rás 2 þegar hún byrjaði. Rás 2 fékk snemma mjög harða gagnrýni. Bylgjan lenti í nákvæmlega sama farvegi og rás 2 þegar hún hóf útsendingar en fékk samt aldrei neina gagnrýni. Fólk sýndi virki- lega þolinmæði.“ Margt af því dagskrárgerðar- fólki sem var á rás 2 er nú að starfa við Bylgjuna eða Stjörn- una. Ég spyr Kristján hvort hann hafi aldrei langað til vinna við nýju stöðvarnar. „Nei, aldrei. Kjarninn af fólkinu á báðum nýju stöðvunum er af rás 2 og í raun- inni hefur mesta endurnýjunin orðið þar. Rás 2 er því í rauninni eina nýja stöðin. Ég verð alltaf svolítið sár þegar allar þessar stöðvar eru settar undir sama hatt því flestir bestu dagskrár- gerðarmennirnir starfa á rás 2, það er meiri metnaður þar.“ - Nú ert þú ekkert kunnugur hér fyrir norðan, fannst þér ekkert erfitt að koma hingað og eiga að fjalla um málefni svæðisins? „Jú, ég kveið talsvert fyrir því. En ég verð bara að taka því, ég er kominn til að læra. Ég var mjög feginn að fá Margréti Blöndal með mér norður. Ég kveið því líka að segja einhverja vitleysu í útvarpið, t.d. finnst mér mjög furðulegt að tala um að fara fram í fjörð. Samkvæmt minni máltilfinningu merkir það alveg þveröfugt við það sem það merkir hér. Ég er mjög áttavilltur hérna, ég tala alltaf um að fara inn í útvarp því ég sagði það fyrir sunnan og mér finnst Vaðlaheið- in vera í norður þvf Esjan er í norður. En þetta hefur gengið mjög vel, það vinnur gott fólk við útvarpið sem hjálpar mér,“ sagði Kristján. HJS Þistilfjörður: Heimamenn vilja virkjun - Verður ,Sandá virkjuð eða kemur ný lína frá Laxárvirkjun? í athugun er að byggja tveggja megavatta rennslisvirkjun í Sandá í Þistilfírði, við Sandár- foss sem er 7 km innan við Flögu og skammt frá há- spennulínu sem liggur austur. Undanfarin sumur hefur verið unnið að lagningu nýrrar há- spennulínu frá Laxárvirkjun til Kópaskers og ljóst er að byggja þarf nýja línu frá Kópa- skeri til Þistilfjarðar á næstu árum nema að af þessum virkj- unarframkvæmdum verði. Dagur spurðist fyrir um málið hjá Sigtryggi Þorlákssyni Sval- barði í Þistilfirði: „Virkjun Sand- ár hefur verið draumur okkar hérna alveg síðan fyrir 1950 og þessi kostur var talinn mjög álit- legur fyrir sýsluna og héraðið. En þetta dróst og aftur var talað um virkjun um 1970 þegar til stóð að láta héraðsbúa fá rafmagn, þá var um tvo kosti að velja, virkjun Sandár eða lagningu línu frá Laxá og sá kostur var valinn. Þessar rafmagnslínur voru ekki byggðar af meiri framsýni en það að þær eru orðnar úreltar og það Umferðarslys á þjóðvegum: Eitt slys á hverja 8 kíló- metra akfærra vega - Norðurland vestra með lægstu tíðni umferðarslysa með meiðslum Vegagerð ríkisins hefur gefíð út skýrslu um umferðarslys á þjóðvegum landsins. Skýrslan er unnin upp úr lögregluskýrsl- um frá árinu 1986 og bárust upplýsingar um 1.046 slys. í 230 þeirra eða í um 22% til- fella, var um að ræða meiðsl á fólki. Dauði hlaust af í tíu skipti. í 39% tilfella verða þessi slys, er bifreið er ekið útaf vegi, og 56% allra slysa með meiðslum á fólki, verða í útafakstri. Tekið er fram í skýrslunni, að sýnt sé að til- töíulega lítill hluti slysa kemst tO skila með lögregluskýrslum bæði hér og erlendis, þannig að skráningu umferðarslysa sé mjög ábótavant. Ekki er vitað hve þessi hluti er stór. Útreikningur leiddi í ljós, að slysatíðni ársins 1986 var 0,38 slys á hverja miljón ekinna kíló- metra, sem er fyrir neðan meðal- tal síðustu tíu ára sem var 0,39. Ef miðað er við heildarlengd akfærra vega, sem er rúmlega 8 þúsund kílómetrar, verður þessi tala eitt slys á hverjum 7,9 kíló- metrum. Flest slys urðu á Hafnarfjarð- arvegi eða um 12,8% allra slysa sem upplýsingar bárust um. Er tíðnin langt fyrir ofan lands- meðaltalið eða 2,55 slys á miljón kílómetra. Á árinu voru skráðar 126.995 bifreiðar og vélhjól, og lentu alls 1555 bifreiðar í slysum. Slys við gatnamót voru flest og því næst við brýr. Grunur lék á um ölvun í 5,9% tilfella sem er fækkun frá árinu áður. Tíðni slysa, og slysá með meiðslum er mjög breytileg eftir landshlutum. Kemur í ljós, að á Norðurlandi vestra hefur tíðni slysa með meiðslum fækkað mjög, og hefur hún ekki verið eins lág síðan ’81. Heildarslysa- tíðni hefur einnig minnkað mið- að við fimm undanfarin ár. Hins vegar er slysatíðni með meiðslum mest á Vestfjörðum og hefur aukist þar mikið. Svipaða sögu er að segja af Austurlandi, en þar hefur tíðni slysa með meiðslum ekki verið meiri síðan ’81. VG er aftur komið upp það sama því línan frá Kópaskeri og hér austur er að verða fulllestuð. Þá er spurningin hvort réttara sé að byggja virkjun eða nýja línu því línan kostar hátt í það eins mikið og virkjunin. Við heimafólk viljum endilega drífa í því að það verði virkjað og málið er í athugun. Sýslunefnd lét gera áætlun um kostnað við teikningar og byggmgu virkjun- arinnar hjá Verkfræðistofu Guð- mundar og Kristjáns í Reykjavík og hún var upp á 140 milljónir, miðað við tveggja megavatta rennslisvirkjun en rennsli í Sandá er mjög jafnt. Mér skilst að línulögnin muni kosta um 100 milljónir, línan flyt- ur verðmæti milli staða en virkj- unin skapar verðmæti og þar finnst mér mikill munur á. Auk þess yrði virkjunin eins og mátt- arstólpi í héraðinu og skapaði öryggi fyrir héraðið austan Öxarfjarðarheiðar. Virkjunin mundi duga nokkurn veginn fyrir héraðið og austur til Bakkafjarð- ar. Upphaflega hugsuðum við heimamenn að við gætum byggt virkjunina sjálfir ef við næðum samningi við rafmagnsveiturnar um kaup á rafmagninu. Síðustu árin hefur rafmagnsverð farið lækkandi en samt sem áður er þetta talið hagkvæmt. Ég býst við að það verði rafmagnsveiturnar sem byggja ef af þessu verður og okkur finnst það ekki skipta höfuðmáli ef þetta kemst í framkvæmd.“ Ný rafmagnslína frá Kópaskeri þyrfti að komast í gagnið skömmu eftir 1990 og áætlað er að lagning línunnar taki tvö sum- ur svo það fer að verða tímabært að ákveða hvort af virkjunar- framkvæmdunum verður. Sig- tryggur sagði að það þyrfti að gera smárannsóknir í viðbót áður en ákveðið yrði að fara út í virkj- unarframkvæmdirnar, í vetur hefði verið send beiðni til iðnað- arráðherra um fjárframlag til að ljúka þessum rannsóknum en þeirri beiðni hefði verið synjað. Heimamenn væru ekki af baki dottnir fyrir því og hann væri ekki frá því að þessar rannsóknir yrðu gerðar í sumar. IM -Verslunarhúsnæði- Til leigu húsnæði í Verslunarmiðstöðinni Sunnu- hlíð. Húsnæðið er talið 116 fm. brúttó og leigist í lengri eða skemmri tíma. Fasteigna- og skipasala Norðurlands. Nýjar íslenskar kartöflur Verð pr/kg aðeins kr. 44. Verslunin Síða, sími 25255. Opið á kvöldin og um helgar. Istess: ÞWTTEKTA GÆÐI Framleitt allan pBA solarhrmgmn \vr I byrjuðum að keyra verk- markaðurinn í Færeyjum stækkar Æ mm Þvottavél: Lavamat 575 • Allt að 1100 snúninga uinduhraði pr. mín. • Sparnaðarkerfi • Ullarþvottakerfi • Jafnar þvott fyrir vindingu • Hœgt er að ráða vatnsmagni í vélina • Stiglaust hitaval • „ÖKÖ kerfí" sparar20% þvottaefni Verð kr. 44.000,- stgr. Þurrkari: Lavathemi 500R ► Tímarofi upp að 150 mín. » Tvö stillanleg hitastig (4CP og 60°) » Þvottamagn 5 kg. » Belgur úr ryðfríu stáli » Stöðvast sjálfkrafa þegar hurð er opnuð » Krumpuvörn » Tromla snýst á tvenna vegu Verð kr. 27.645,- stgr. Uppþvottavél: Favorit 525 » 5 kerfi » 2 sparnaðarkerfí » Hfíóðlát og sparneytin » .ÓKÖ kerfí“ sparar20% þvottaefni Verð kr. 36.860,- stgr. „Við byrjuðum að keyra verk smiðjuna allan sólarhringinn á mánudaginn og til að byrja með verður unnið allan sólar- hringinn fímm daga vikunnar en síðan kannski sex daga vik- unnar,“ sagði Einar Sveinn Ólafsson, verksmiðjustjóri hjá ístess í samtali við Dag. ístess hefur fengið stórar pantanir frá Noregi og Færeyjum og það hefur því verið gripið til þess ráðs að framleiða fóður allan sólarhringinn til að vinna upp í pantanirnar. Fyrir skömmu kom fram í blaðinu að pöntun upp á 650 tonn hefði komið frá Noregi en fleiri pantanir hafa nú komið þaðan og markaðurinn í Færeyjum stækkar sífellt. „Á laugardaginn fóru 312 tonn til Noregs og í næstu viku fara 350 tonn til Færeyja. Það eru um 350 tonn á viku sem við þurf- um að afhenda. Það fer allt jafn- óðum sem við getum framleitt,“ sagði Einar. Eins og staðan er í dag er hægt að framleiða 50 tonn af fóðri á sólarhring. Einar sagði þá ekkert vera farna að huga að stækkun verk- smiðjunnar. „Við hugum að framtíðinni eftir vertíðina. Við sjáum fram á svona mikla sölu út ágúst og vonandi september líka.“ Bæta þarf við mannskap við framleiðsluna og sagði Einar að tveir menn yrðu ráðnir strax. HJS / heimilistœkjunum frá AEG fara saman afköst, ending og gœði. Þvottavélar, þurrkarar og uppþvottavélar frá AEG bera því glöggt vitni. Vestur-þýsk gœði á þessu oerði, engin spurning! AE G heimilistœki - því þú hleypir ekki hverju sem er í húsverkin! AEG ALVEG EINSTÖK Áratuga reynsla okkar í sölu og þjónustu á AEG, hefur gert AEG að einu þekktasta heimilisttekjamerkinu á Akureyri og nágrenni. GÆDI SlMI (N) 21400

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.