Dagur - 29.07.1987, Side 8
8 - DAGUR - 29. júlí 1987
Ferðahandbókin Land
Náttúruverndarráð:
Helst skortir upp-
lýsingar um ferðir
og hegðun hvala
í tilefni af þeim umræðum sem
orðið hafa i fjölmiðlum að
undanförnu um hvalveiðar í
vísindaskyni, þar sem m.a.
hefur verið vikið að afstöðu
Náttúruverndarráðs tii þessara
veiða, þykir ráðinu rétt að taka
fram eftirfarandi:
Undanfarin ár hefur Náttúru-
verndarráð oft fjallað um hval-
veiðar á fundum sínum og álykt-
að um þær. Á síðastliðnu ári hef-
ur undirnefnd ráðsins, skipuð
líffræðingum, einnig haldið fjöl-
marga fundi vegna hvalveiðanna.
Þá hefur Náttúruverndarráð boð-
ið sérfræðingum Hafrannsókna-
stofnunar á sinn fund til að kynna
og ræða rannsóknaáætlunina um
hvalveiðar í vísindaskyni. Ráðið
hefur ávallt verið á þeirri skoðun
að líta beri á hvali sem nýtanlega
auðlind innan þeirra marka sem
stofnar örugglega þola. Þetta
kemur m.a. fram í ályktunum
ráðsins í mars 1981, október 1982
og í bréfi sem ráðið skrifaði
sjávarútvegsráðuneytinu í júní
1985 vegna áætlunar um Átak í
hvalarannsóknum árin 1986-
1989. í þessu bréfi, svo og í bréf-
um til sjávarútvegsráðuneytisins í
ágúst 1985 og desember 1986,
kemur jafnframt skýrt fram að
Náttúruverndarráð telur skorta
nægileg líffræðileg rök fyrir því.
að nauðsynlegt sé að veiða þann-
fjölda hvala sem áætlunin gerðii
ráð fyrir. Þá var m.a. haft í huga
að Álþjóðahvalveiðiráðið hafði
samþykkt að stöðva skyldi hval-
veiðar frá 1986 og ísland ekki
mótmælt þeirri samþykkt.
Náttúruverndarráð telur að
hvalveiðar nú í vísindaskyni séu
því aðeins réttlætanlegar að þær
séu örugglega langt innan þeirra
marka sem stofnarnir þola og þá
einungis ef með þeim fást upplýs-
ingar sem ekki er hægt að afla
með öðrum hætti. Bent skal á, að
þau gögn sem nú skortir einna
mest til að bæta mat á stofnstærð
eru upplýsingar um ferðir og
hegðun hvalastofnanna, og þau
gögn fást ekki nema að litlu leyti
með veiðunum. Þá er ljóst að
mjög mikilvægra upplýsinga um
stærð hvalastofna er unnt að afla
með hvalatalningum á sjó og úr
lofti.
íslendingar byggja lífsafkomu
sína á auðlindum sjávar og eiga
allra þjóða mest undir skynsam-
legri nýtingu hafsvæðanna
umhverfis landið. Að því verður
að hyggja að afstaða okkar til
hvalveiða rýri ekki traust okkar
sem þjóðar með ábyrga afstöðu
til náttúruverndar og nýtingar
auðlinda sem við verðum í flest
öllum tilvikum að deila með öðr-
um þjóðum. Náttúruverndarráð
bendir líka á, að eigi síðar en
1990 mun Alþjóðahvalveiðiráðið
taka ákvörðun um veiðistöðvun
til endurskoðunar, og fer þá fram
alhliða mat á áhrifum veiðistöðv-
unarinnar á hvalastofnana.
Hyggja verður vel að því, að
íslendingar geri ekki slíkt mat
erfiðara með veiðum meðan á
þessari veiðistöðvun stendur.
! y, 1 VÖRUTEGUNDIR S .* í I K J 3 I ■5 I z ! 1 1 I tt c- .'i l i I } ! íf -3 j 1 rí l 1 ■! J i I l cc I í ■s. 1 S | 11 if I v oS á 1
Uamborgari m/sósu osti og anartas STEIKTUR A STADNUM 165,- 150,- * 150,-* 165,- 15,- 10/.
Uamborgari m/sósu,
osti og ananas MrrrtXJR t ÖR3YLGJU0FNI 120,- íoo,- (SfQ* l.’0,-(ss )120,-(SS)100,-(SS)X 20,- 20’i
100.- * .75ó
’Vlsa meó öllu 70,- 70,- -0,- 65,- 65,- 65,- ;o,- ■'O,- 65,- 60,-* 10,- 16,77,
Heit samloka m/osti skinku og ananas 120,- 115,- 140,- 105,- 140,- 145,- 140,- 1 10,- 145,- 90,- * 55,- 61,11
KiSld samloka "5,- 82,- 00,- 85,- 03,- 03,- on,- O0,- 100,- 70,-* 90,- 80,- 30,- 4 ’,9'ó
Sanitas laqeröl 50 cl d 60,- 58,- 55,- 55,- 55,- 55,- 55,- 55,- 54,- 54,- 57,-* 53,- 8,- 15,41
Sanitas pllsner 50 cl d 45,- 44,- •«5,- 40,- * 42,- 4?, - 45,- 45,- 42,- 40,-* 45,- 40,- * 5,- 1 ,51
RÓde orm 45 cl 52,- 5',- 50,-* 58,- 55,- 51,- 51,- 8,- 16%
Carlsberg 50 cl 63,- 59,- 65,- 65,- 55,- 59,- • 58,-* 7,- l?\
Pripps 50 cl 50,- 51,- 55,- 48,- * 50,- 50,- 55,- 50,- 48,- * 48,- * 48,-* 7,- 14,6%
Pripps 30 cl 40,- 35,-* 37,- 40,- 40,- 40,- 40,- 40,- Z'1,- 38,- 37,- 5,- 14,3%
Egils Malt 33 cl innih. 45,- 40,- * 43,- 40,- * 43,- 44,- 43,- 40,- * 43,- 43,- 40,-* 43,- 5,- 1' ,5%
Sanitas aooelsín ’.5cl 15,- "5,- ■' ■ _ • > _ 20,- * 5,- 25%
innihald
28,-
innihald ' 30,- '6,- * 28,- 29,- 78,- 35,- 78,- “!8,- 76,-* 9,- 34,6%
Coca cola 1 1/2 1 plastfl. 110,- 110,- 105,- 100,- 100,- 100,- 105,- 100,- 100,- 99,-* 100,- 100,- 11,- 11,1%
Coca cola 30 cl innihald 35,- 35,- 33,-* 33,- * 33,- * 33,-* 33,-* 33,-* 38,- 38,- 33,-X 5,- 15,7%
Coca cola 19 cl innLhala 28,-' 30,- 25,-* 25,- * 26,- 26,- 75,-* 26,- 30,- ' 30,- 25,-* 5,- 20%
Kúlur (litlar) 1 stk. 0,50* 1,- 1,- 0,50* 1,- 0,50* 1,- 0,50* 0,50* 0,50* 1,- 0,50 100%
Kúlur (stórar) 1 stk. 7,- 2,- 2,- 7,- 2,- 3,- 1,- * 2,- 1,- 2,- 1,- 100%
Töcgur 1 stk. 1, * 1,-* ■»- 3,- 1,-* 1,- * 1,50 1,- * 1,- 100%
Kit kat (litið) 13,- 14,- 13,- 13,- 13,- 17,- 17,50* 13,- 13,- 4,50 36%
Kit kat (stórt) 26,- =7,- 24,-* 25,- 27,- 77,- 75,- 30,- 35,- 30,- 26,- 6,- 75%
Blandaóur appollo 52,- 53,- 48,-* 50,- 50,- 50,- 55,- 50,- 50,- 50,- 50,- 50,- ■,- 14,6%
Snickers 30,- 30,- 30,- 78,-* 30,- 79,- 37,- 78,- * 30,- 28,-* 29,- 3,- 7,1%
Wrigleys 1 pk. ’.O,- 20,- 73,- 70,- 18,-* 18,-* 3,- 20,- 2.7,- 19,- 5,- 27,8%
Verðkönnun Neytendafélags Akureyrar og nágrennis á
„sjoppufóðri“ gerð 22. júlí 1987
Þar sem að verslunarmannahelgin
nálgast óðfluga ákvað Neytendafélag
Akureyrar og nágrennis (NAN) að
gera verðkönnun á „sjoppufóðri“.
Mestur var verðmunur á sælgæti
en þar var 100% verðmunur á
kúlum, litlum og stórum og einnig á
töggum. -Talsverður verðmunur var
á heitri samloku með osti, skinku og
ananas, en þar var verðmunur
61,1%. Ódýrast var að kaupa heita
samloku í Versluninni Brynju, en
þar kostaði samlokan kr. 90. - Verð-
munur var talsverður á kaldri sam-
loku eða 42,9%. Verslunin Brynja
var einnig með ódýrustu köldu sam-
lokuna. Verslunin Dröfn á Dalvík
hefur jafnaðarverð á öllum köldum
samlokum og sé keypt samloka með
roastbeef fylgir með henni steiktur
laukur, remolaði, rauðkál, sýrðar
gúrkur og sveskjur.
- í verðkönnuninni er tekið fram
þar sem um SS hamborgara er að
ræða, en þeim fylgir ekki ananas og
einnig er minna af sósu og osti í SS
borgara en t.d. í hamborgara frá
Bautanum.
- Þá var gerð sérverðkönnun á
hamborgurum sem eru steiktir á
staðnum eftir ósk hvers viðskiptavin-
ar. Þessir hamborgarar eru einnig
stærri en hamborgarar sem eru hitað-
ir upp í örbylgjuofni. Þeir eru reynd-
ar ekki sambærilegir. Það skal tekið
fram að í Essonestunum við
Tryggvabraut og Krókeyri eru ham-
borgarar á tilboðsverði.
- Shellnestin við Hörgárbraut og
við Eyjafjarðarbraut voru með sértil-
boð á beikonborgara en hann kost-
aði kr. 120.
- Pylsur voru ódýastar í Verslun-
inni Esju en þar kostar pylsa með
öllu kr. 60.
- Því miður var ekki hægt að gera
verðkönnun í Veganesti við Hörg-
árbraut en þar var verið að flytja í
nýtt húsnæði og stækka bílastæði og
var opnað þar sl. laugardag.
Þessi verðkönnun var gerð í 7
sjoppum á Akureyri, einni á Dalvík,
einni við Vaglaskóg og þremur litlum
verslunum á Akureyri.
Allir þessir staðir eru opnir til kl.
23.30 og auk þess hefur Nætursalan
Strandgötu 5 opið alla nóttina um
helgar. Ferðanesti við Eyjafjarðar-
braut til kl. 03.30 og Essonesti Krók-
eyri til 04.00 um helgar.
- vandað upplýsingarit í handhægu broti
Nýlega kom út Ferðahandbókin
Land. Brot ritsins hefur verið
smækkað til að auðvelda með-
höndlun bókarinnar á ferðalög-
um. Þar nýtist bókin best þó hún
sé einnig kjörið lesefni hvar sem
er því í bókinni leynist hafsjór
fróðleiks.
Útlit bókarinnar er breytt, nú
fara saman þjónustulistar, kynn-
ingargreinar og auglýsirigar
ákveðinna sveitarfélaga. Von-
andi auðveldar þetta notkun
bókarinnar og eykur gildi
hennar.
í bókinni cru þjónustulistar
sveitarfélaganna. Þar er hlutlaus
upptalning á nær allri ferðaþjón-
'fSs.
OKUM EINS OG MENN!
Aktu
eins oq þú vilt
að aorir aki!
| UMFEROAR
ustu sem í boði er á íslandi. Fjöl-
margar kynningargreinar um
sveitarfélög eru í bókinni, þar er
m.a. fjallað um sögu og stöðu
byggðarinnar.
Útgefandi ferðahandbókar-
innar Land er Ferðaland hf., í
Reykjavík. Ritstjóri bókarinnar
er Björn Hróarsson jarðfr'æðing-
ur en auk hans unnu Magnfríður
Júlíusdóttir og Ása Hreggviðs-
dóttir að skrifum í bókina. Auk
ritstjóra eiga Björn Rúriksson og
Mats Wibe Lund flestar myndir í
bókinni. Björn Br. Björnsson
teiknaði bókina og sá um útlit
hennar. Hönnun og gerð auglýs-
inga var í höndum auglýsinga-
stofunnar Martin sf. Filmu-
vinnsla, skeyting, litgreining og
prentun var í höndum Odda hf.
Nú hefur Land unnir sér fastan
sess sem öflugasta og útbreidd-
asta málgagn í ferðaþjónustu á
íslandi. Bókin er gefin út í 60.000
eintökum á íslensku og 40.000
eintökum á ensku. Þessi góði
ferðafélagi kostar kr. 185 og fæst
á flestum blaðasölustöðum.