Dagur - 26.08.1987, Page 11
26. ágúst 1987 - DAGUR— 11
Guðmundur Helgi Þórðarson:
Um lögbindingu lágmarkslauna
í stjórnarmyndunarviðræðunum
sl. vor lögðu tveir hagfræðingar
fram álitsgerð um lögbindingu lág-
markslauna að beiðni Porsteins
Pálssonar formanns Sjálfstæðis-
flokksins. Annar þessara hag-
fræðinga vinnur hjá Alþýðu-
sambandi íslands, en hinn hjá
Vinnuveitendasambandi íslands.
Þeir lögðu þessa álitsgerð fram í
sameiningu og ekki getið um
annað en þeir hafi verið sam-
mála. Það verður að ætla, að Por-
steinn hafi leitað til þeirra öðrum
fremur vegna þess að þeir voru
ráðunautar hjá aðilum vinnu-
markaðarins og myndu því taka
mið af sjónarmiðum þeirra, enda
óeðlilegt að þeir tækju sér fyrir
hendur undir þessum kringum-
stæðum að túlka skoðanir, sem
brytu í bága við stefnu viðkom-
andi samtaka.
Álitsgerð þessi hefur vakið
undrun margra og fordæmingu,
og á það kannske fyrst og fremst
við um hagfræðing ÁSÍ, því að úr
hinni áttinni eru menn ýmsu
vanir. Pað er sem sagt álit hag-
fræðinganna, að það eigi ekki að
lögfesta lágmarkslaun og sé engin
þörf á því. Fyrir því færa þeir
margvísleg rök s.s. að við búum
við lög um þessi efni, sem séu
„einstök", að „réttlæti í þessum
efnum sé ákaflega afstætt“, að
svona löggjöf verði óvinsæl og
skapi þrýsting, að tæknileg
vandamál séu mýmörg, að laun
fari eftir lögmálum framboðs og
eftirspurnar og eigi að gera það
og fleira. Má segja, að í rökum
þeirra sé hver silkihúfan upp af
annarri.
Hér verður aðeins ein af
athugasemdum þeirra félaga gerð
að umræðuefni. Hagfræðingarnir
þykjast ekki vita, hvað sé átt við,
þegar talað er um lágmarkslaun,
og m.a. af þeim sökum sé ógern-
ingur að ákveða þau og lögbinda.
Þeir spyrja hvort þar sé átt við
„lágmarkslaun fyrir dagvinnu eða
lágmark fyrir heildartekjur? Eða
á að lágmarka dagvinnu að við-
bættum bónusgreiðslum. Hvern-
ig á að fara með yfirvinnu, vakta-
álag, ferða-, flutnings-, fæðis-,
vaktaskipta-, og pokagjald, svo
að örfá kæmi séu nefnd. Hvað
með hrein akkorð, uppmælingu
og premíukerfi?"
Þetta er alveg furðuleg klausa,
sérstaklega þetta með pokagjald-
ið. Mér finnst einhver Bakka-
bræðra blær yfir þessu. Þegar ég
las þetta fyrst, fannst mér hag-
fræðingarnir vera að gera gys að.
einhverjum. En hverjum? Þor-
steini Pálssyni? Öllu pólitíska lið-
inu? Eða láglaunafólkinu? Eða
var það virkilega svo, að þeir
vissu ekki, um hvað var verið að
tala? Þessu geta þeir einir svarað,
sem geta kannað sálardjúp þess-
ara manna.
í mínum augum er með lág-
markslaunum átt við þau laun,
sem launafólk má fá lægst fyrir
dagvinnu, eins og hún er á hverj-
um tíma miðað við eðlilegar
vinnuaðstæður og eðlilegan
vinnutíma og að þetta nægi fólki
til framfærslu. Þegar farið er að
blanda þarna inn í aukagreiðslum
eins og þeir félagar gera, er verið
að rugla málið af ásettu ráði.
Mætti raunar margt um það
segja, t.d. tala þeir um akkorð og
aukaatvinnu eins og eðlilegan
hlut. Hugmyndin um lögbindingu
lágmarkslauna er kannske brýn-
asta velferðarmálið í dag og hef-
ur allt of lítið verið rætt opinber-
lega.
Ástæðurnar fyrir nauðsyn á
slíkri lögbindingu eru margar, og
skulu hér nokkrar taldar:
Harkan gagnvart láglaunafólki
hefur aukist á síðustu árum sam-
fara árásum á velferðarkerfið,
svo að þessir hópar þurfa meiri
stuðning en áður. Nýlegar
hrakspár í efnahagsmálum, sem
hagfræðingar eru látnir þylja,
boða væntanlega meiri hörku í
þessum efnum.
Launþegasamtökin hafa ekki
burði til að verja láglaunahópana
og ekki útlit fyrir, að þar verði
breyting á í bráð. Áður umrædd
álitsgerð hagfræðinganna tveggja
spáir ekki góðu þar um. Af þeim
sökum m.a. verður löggjafinn að
grípa inn í og setja öryggisnet
fyrir launþega.
Lögfest lágmarkslaun er senni-
legasta virkasta heilbrigðisráð-
stöfunin, sem hægt er að fram-
kvæma á íslandi í dag. Laun und-
ir hungurmörkum eru heilsuspill-
andi, og launahækkun í þeim til-
fellum fyrirbyggjandi aðgerð
gegn sjúkdómum.
Það eru efnahagslegar forsend-
ur á íslandi í dag til að greiða öll-
um laun yfir hungurmörkum. Ef
eitthvað skortir á, er það sök
þeirra stjórnmálamanna, sem að
völdum sitja hverju sinni. Það er
þeirra verk að skapa forsendur
fyrir réttlátri skiptingu þjóðar-
tekna.
Spurningin um lágmarkslaun
er spurningin um siðað þjóðfé-
lag. Það er villimennska að halda
stórum hópi fólks undir hungur-
mörkum hjá einni ríkustu þjóð í
heimi. Sé það látið viðgangast,
bitnar það loks á þjóðfélaginu
öllu. Með því að tryggja hag lág-
launafólks er því verið að vinna
að betra þjóðfélagi fyrir alla
þjóðina.
Eins og ég vék áður að, þarf að
ræða þetta mál á opinberum vett-
vangi. Hugmyndin um láglauna-
mark þarf að skýrast betur í hug-
um fólks, hvort sem hún gerir
það nokkurn tíma í kollinum á
hagfræðingunum. Mér finnst að
þarna geti e.t.v. verið einn megin
átakspunkturinn milli vinstri og
hægri, félagshyggju og markaðs-
hyggju, siðmenningar og villi-
mennsku.
Guðmundur Helgi Þórðarson
er læknir.
Rugmálastjóm
- Útboð
Flugmálastjórn óskar eftir tilboðum í lengingu
Reykjahlíðarflugvallar við Mývatn.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu umdæmis-
stjóra Flugmálastjórnar á Akureyrarflugvelli.
Tilboðum skal skila til sama aðila fyrir kl. 14.00 þann
7. september n.k. og verða þau þá opnuð að við-
stöddum bjóðendum, ef þeir óska.
Áskilið er að taka hvaða tilboði sem berst eða hafna
öllum.
Flugmálastjórn.
ELDHUSUNDRIÐ
FRÁAEG
Margra tœkja maki
á makalausu verði!
KM21 frá AEG er sannkallað eldhúsundur enda er
fjölhœfnin undraverð.
Bara að nefnaþað, KM21 gerir það: Hrœrir, þeytir,
hnoðar, rífur, hakkar, blandar, hristir, brytjar, sker...
Eldhúsundrið frá ÁEG er margra tœkja maki en á
makalausu verði, aðeins kr. (>-745,- stgr.
Vestur-þýsk gœði á þessu verði, - engin spurning!
GÆDI
AE G heimillstcekl
- þvt þú hleypir ekki hverju sem er í húsverkin!
ALVEG
Utsala - Utsala
Opnum í dag miðvikudag, okkar árlegu verk-
smiðjuútsölu. Mikið úrval af fatnaði, vefnaðar-
vöru og taubútum.
Ath. útsalan er í Grænumýri 10
Fatagerðin Iris s.f.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Saumanámskeið
Verkmenntaskólinn á Akureyri gefur bæjarbúum
kost á saumanámskeiðum af og til í vetur.
Þau fyrstu hefjast í byrjun september.
Hringið og fáið upplýsingar í síma 26810.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Skólasetning
verður í Akureyrarkirkju þriðjudaginn 1. september
kl. 5 síðdegis.
Kennarafundur verður sama dag kl. 9.00 á Eyrar-
landsholti.
Skólameistari.
NONNAHUS
30 ára afmæli safnsins 1957-1987.
Á afmæli bæjarins laugard. 29. ágúst verður safnið
opið frá kl. 9 til 17 og sunnud. 30. ágúst kl. 14 til 17.
Aðgangur ókeypis báða dagana.
Hátíðardagskrá:
Nokkur börn lesa kafla úr Nonnabókunum, kl. 15 og
16 báða dagana, einnig verður myndasýning um
Nonna.
Kaffihlaðborð verður báða dagana í Zontahúsi,
Aðalstræti 54 frá kl. 14 til 17.
Zontaklúbbur Akureyrar.
Vantar nokkrar stúlkur
til starta hjá Súkkulaðiverksmiðjunni Lindu. Æski-
legur aldur 18-40 ára. Upplýsingar gefur fram-
kvæmdastjóri í síma 22800.
Súkkulaðiverksmiðjan Linda hf.
Vélstjóra
vantar á m/s (sborg EA 159 frá Hrísey.
Uppl. í síma 22913 eða um borð í bátnum í síma
985-22359.
Starfskraftur óskast
til framleiðslustarfa sem fyrst.
0^! Gúmmívinnslan hf.
Rettarhvammi 1 Akureyri Simi 96-26776
Starfskraftur óskast
Óskum eftir að ráða ungan mann í útkeyrslu,
afgreiðslu og þjónustu við myndlykla.