Dagur - 26.08.1987, Blaðsíða 12
mmm
Akurevri, miðvikudagur 26. ágúst 1987
Menntaskólinn á Akureyri:
Bygging Jónasarhúss
gæli leyst vandann
Stórbætt þjónusta
Getum smíðað alla vega púströr.
Eigum til beygjur 45° og 90°
Stóraukið úrval af kútum, pakkningum og
festingum í flesta bíla.
CNl
CVI
(Ó
cn
cn
Varahlutaverslun
„Til þess að ekki þurfi að
koma til fækkunar nemenda
Sláturhús KEA:
Haustslátrun
hefst 10.
sept.
Alls verður slátrað 47.902 fjár
hjá Sláturhúsi KEA á Akur-
eyri í haust samkvæmt upp-
gefnum tölum en samsvarandi
tölur í fyrra voru 35.500 fjár.
Mismunurinn stafar af því að
Sláturhús KEA fær nú sláturfé
frá Svalbarðseyrarsvæðinu en
þar var slátrað um 13.000 fjár í
fyrra.
„Það virðist engin minnkun
vera hjá þeim,“ sagði Óli Valdi-
marsson sláturhússtjóri en hann
hafði búist við töluverðri fækkun
sláturfjár. „Þetta eru að vísu bara
uppgefnar tölur. Þeir gáfu upp
35.500 í fyrra en það voru um
10% afföll af þeirri tölu, en mað-
ur verður samt sem áður að
reikna með þessum fjölda," sagði
Óli.
Hann sagði að haustslátrunin
myndi að öllum líkindum hefjast
10. september og standa til 28.
október. „Þetta er heilmikil törn
sem er allt í lagi í sjálfu sér en
þetta er aðallega spurning um
mannskap. Fær maður einhverja
til að slátra? Það er líka óvenju
slæmt ástand á vinnumarkaðin-
um í dag,“ sagði Óli að lokum.
SS
og einnig til þess að efla sér-
staklega náttúrufræðikennslu í
Menntaskólanum á Akureyri
er það mat mitt að æskilegt sé
að ganga til samstarfs við þá
aðila sem nú vinna að undir-
búningi Náttúrufræðistofnunar
Norðurlands og byggingu Jón-
asarhúss,“ segir Jóhann Sigur-
jónsson skólameistari í bréfi til
formanns húsnæðisnefndar
Náttúrufræðistofnunar Norð-
urlands.
Við höfum áður fjallað um til-
lögur nefndarinnar en þar kom
m.a. fram áhugi á lóð Mennta-
skólans vestan við Lystigarðinn
sem talin er henta mjög vel fyrir
Náttúrufræðistofnun Norður-
lands. Hún er miðsvæðis í skóla-
kjarnanum á Brekkunni, nálægt
Lystigarðinum og Fjórðungs-
sjúkrahúsinu.
Við höfum hins vegar ekki
skýrt frá því með hvaða hætti
nefndin geri ráð fyrir að Náttúru-
fræðistofnun eignist lóðina, en
það kemur fram í þessu bréfi
skólameistara: „Mætti t.d.
ímynda sér að skólinn fengi inni í
því húsi fyrir kennslustofur í
náttúrufræðum og/eða bókasafn
gegn því að leggja til land undir
húsið.“
í bréfi Jóhanns kemur fram að
skólinn þarf aukið rými, bæði fyr-
ir kennslustofur og bókasafn með
lestraraðstöðu. Einn kosturinn til
úrbóta gæti verið bygging Nátt-
úrufræðistofnunar Norðurlands,
a.m.k. er ljóst að núverandi
ástand er ekki viðunandi. SS
Framsóknarkonur þinga
Dagana 4.-6.september n.k.
mun Landssamband framsókn-
arkvenna halda 3. landsþing
sitt að Varmahlíö í Skagaflröi.
Aðalmál þingsins veröa, starf
og stefna LFK, staða fram-
sóknarkvenna innan Fram-
sóknarflokksins og hvernig
verður farið að því að auka
hlut kvenna í flokknum á
næstu árum.
Dagskrá þingsins verður fjöl-
breytt, og munu m.a. erlendir
gestir frá Noregi og Svíþjóð
halda þar fyrirlestra.
Guðlaug Björnsdóttir situr í
landsstjórn LFK fyrir Norður-
latid eystra, og sagðist hún í sam-
tali við Dag vænta að árangur
þessa þings verði ekki síðri en á
fyrri þingum. LFK hafi komið vel
undir sig fótunum, og að þær ætli
að halda því starfi áfram.
Guðlaug væntir góðrar þátt-
töku á þinginu og hvetur allar
framsóknarkonur til að mæta á
þingið, sérstaklega þar sem þær
hafi nú fengið þingmann í sínar
raðir. VG
Konráð Árnason.
r
Ottast ekki samkeppni við
niðurgreidda steinull
- segir Konráð Árnason, sem keypti vélar af Plasteinangrun
og ætlar að búa til einangrunarplast
Trésmiöjan Fagverk er að
flytja að Oseyri 4, í húsnæði
Haga hf. en þar var Trésmiðj-
an Vinkill til húsa en er nú
flutt. Konráð Arnason festi
kaup á húsnæðinu í apríl sl. og
hann keypti einnig vélar af
Plasteinangrun hf. og verður
með framleiðslu á einangrun-
arplasti í stórum hluta hús-
næðisins.
Plasteinangrun hættir því
framleiðslu einangrunarplasts en
Konráð sagðist fullviss um að
markaðurinn væri nægur. Nú er
unnið við uppsetningu véla en í
millitíðinni hefur Konráð keypt
stóra plastkubba frá Sauðárkróki
sem hann sagar síðan niður eftir
þörfum.
Hann sagði það nauðsynlegt að
Sundlaugarbygging við Glerárskóla:
Híbýli hf. með lægsta tilboðið
I gær voru opnuð tilboð í sund-
laugarbyggingu við Glerár-
skóla, á teiknistofu húsameist-
ara. Það voru Híbýli hf., Reis-
ir sf. Hafnarfirði og Fjölnis-
menn sf. sem buðu í verkið.
Kostnaðaráætlun sundlaugar-
byggingarinnar er 34.121.725 kr.
og var Híbýli hf. með lægsta til-
boðið, 35.699.940 kr. Er það
4,62% yfir kostnaðaráætlun. Til-
boð Fjölnismanna kom næst og
hljóðaði upp á 37.697.754 kr. og
er það 10,4% yfir kostnaðaráætl-
un. Tilboð Reisis hf. var síðan
42.538.837 kr. og er það 24,66%
yfir kostnaðaráætlun. HJS
Tilboð í sundlaugarbyggingu við Glcrárskóla opnuð í gær.
halda þeim markaði sem fyrir
væri og því hefði hann farið út í
að kaupa plast annars staðar frá
þar til uppsetningu framleiðslu-
vélanna væri lokið. Framleiðsla
ætti að geta hafist eftir um hálfan
mánuð.
Aðspurður sagðist Konráð
ætla að minnka eitthvað við sig
hjá trésmiðjunni til að byrja með
og einbeita sér að einangrunar-
plastinu. Markaðurinn kallaði á
plastið og sagist hann ekki óttast
svo mjög samkeppnina við stein-
ullina, þótt hún væri niðurgreidd
af ríkinu og átti hann þar við
tapreksturinn á Steinullarverk-
smiðjunni. SS
Reglugerð um sér-
kennslu endurskoðuð
- Ráðuneytið reynir að leysa
ágreiningsmál í kjördæminu
„Við vinnum að því að hlutur
sérkennslunnar verði viðun-
andi,“ sagði Guðmundur
Magnússon aðstoðarmaður
menntamálaráðherra. Innan
ráðuneytisins verður á næst-
unni unniö að endurskoðun á
sérkennslumálum og sagði
Guðmundur að hugmyndin
væri að endurskoða reglugerð
um sérkennslu. „Þá verður
tekið á þcssum málum í öllum
umdæmum landsins, en sjón-
unum verður ekki síst beint að
Norðurlandsumdæmi eystra og
þeirn umkvörtunum sem þar
hafa veriö uppi.“
Sagði Guðmundur að reynt
yrði að finna einhvern flöt til að
leysa þau ágreiningsmál sem uppi
eru í umdæminu, en ágreiningur-
inn stendur fyrst og síðast um
sérkennsluna.
Guðmundur sagði að þessi mál
yrðu skoðuð í tengslum við fjár-
lagagerð, „en við ráðum auðvit-
að ekki þeim tölum sem síðar
koma á fjárlögum, en við vinnum
að því að hlutur sérkennslunnar
verði viðunandi á næstu fjárlög-
um og þegar er unnið að því í
ráðuneytinu," sagði Guðmundur.
Sigurður Hallmarsson skóla-
stjóri á Húsavík hefur verið sett-
ur fræðslustjóri í Norðurlands-
umdæmi eystra frá næstu mán-
aðamótum og um óákveðinn
tíma. Er Guðmundur var spurð-
ur livað fælist í „óákveðnum
tíma," sagði hann ekki til neitt
svar við því. Ólafur Guðmunds-
son hefði verið settur til 1. júní á
næsta ári, „þannig að ég geng að
því sem vísu að Sigurður verði að
minnsta kosti þann tíma. Það er
annars samningsatriði hversu
lengi hann vill vinna,“ sagði Guð-
mundur. mþþ