Dagur - 07.09.1987, Síða 2

Dagur - 07.09.1987, Síða 2
2 - DAGUR - 7. september 1987 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SfMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 55 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR. RITSTJÓRAR: ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.) BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR..EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. JeiðarL_____________________________ Dýrasta bygging íslandssögunnar Fyrir skömmu var það upplýst, að kostnaðurinn við hönnun og byggingu nýju flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli hefði farið gersamlega úr böndum. Reyndar greinir menn á um hversu mikill aukakostnaðurinn er, en talan þúsund miljónir, einn miljarður króna hefur verið nefnd í því sambandi. Það er vægast sagt hrikaleg tala og engar viðhlítandi skýringar hafa verið gefnar á ósköpunum. Þegar ákveðið var að reisa nýja flugstöð á Keflavíkurflugvelli, var það m.a. gert á þeirri forsendu að Bandaríkjastjórn myndi greiða um helming byggingarkostnaðarins, enda fengju þeir gömlu flugstöðina til eigin nota þegar þar að kæmi. Hins vegar fylgdi ekki sögunni, að framlag Bandaríkjamanna til flugstöðvarinnar var föst upphæð sem tók engum breytingum á byggingartímanum. Á meðan hækkaði bygging- arvísitalan gegndarlaust og dollarinn féll í verði. Það fylgdi sem sagt ekki sögunni að það kæmi eingöngu í hlut íslendinga að borga mismuninn af upphaflegri kostnaðaráætlun og raunveruleg- um útgjöldum. Það var ekki upplýst fyrr en nú á dögunum að um einn miljarð vantaði til að endar næðu saman. Flugstöð Leifs Eiríkssonar á þann vafasama heiður, að vera dýrasta bygging sem reist hefur verið hér á landi. Stöðin er sögð kosta 2850 miljónir króna og rúmmetrinn í stöðinni kostar því hvorki meira né minna en 30.300 krónur. Til samanburðar má geta þess, að rúmmetrinn í Kringlunni er talinn kosta um 11.000 krónur og rúmmetrinn í nýja Útvarpshúsinu um 15.900 krónur. Flest bendir til þess að hönnun flug- stöðvarinnar hafi frá upphafi stuðlað að háum byggingarkostnaði og einnig er ljóst að sífelldar hönnunarbreytingar á byggingartímanum höfðu enn frekari kostnaðarhækkanir í för með sér. Þrátt fyrir allt þetta er enn mörgu ólokið innanhúss. Þannig á t.d. eftir að koma upp veit- ingabúð fyrir farþega sem hafa innritað sig sýó. og endanlegri fríhöfn fyrir komufarþega. Þær framkvæmdir kosta örugglega skildinginn ef þær verða í samræmi við það sem á undan er gengið. Niðurstaðan er sem sagt sú að almenningur á að taka að sér að greiða a.m.k. einn miljarð króna aukalega vegna þess að fyrirhyggjuleysi og óráðsía réð ferðinni við byggingu nýju flugstöðv- arinnar. Slíku tekur enginn þegjandi og hljóða- laust. Þess vegna spyr almenningur nú spurn- inga og krefst skýringa. Þeirra skýringa er nú beðið með eftirvæntingu. BB viðtal dagsins. Gísli Pálsson. „Það lifir enginn á spádómum" —spjallað við Gísla Pálsson, bónda á Hofi i Vatnsdal Riðuveikisjúkdómurinn hefur herjað á sauðfé hér á landi svo áratugum skiptir. Sjúkdómur sá hefur reynst mönnum hin mesta ráðgáta og engin lyf hafa enn fundist sem komið geta í veg fyrir að sauðfé veikist af þessum sjúkdómi. Menn hafa því brugðið á það ráð að skera niður fé á sýktum svæðum og fá síðan nýja stofna aftur að vissum tíma Iiðnum. Nú í haust verður skorið niður fé á stað- festum riðuveikibæjum í Húnavatnssýslum og einn af þessum bæjum er Hof í Vatnsdal. Það var því ekki úr vegi að líta inn á Hofi í spjalla við Gísla bónda Pálsson um ástandið í sauðfjárbú- skapnum og að hverju bændur ætluðu að snúa sér að í staðinn fyrir sauðféð. „Hér í Árhreppi verður allt sauðfé skorið niður á 6 bæjum í rhaust. Þetta eru bæir sem komið hefur upp riðuveiki á síðustu 5 árum þó að vísu hafi á sumum bæjum lítið drepist úr riðuveiki á þessum tíma. Ég er sammála stjórnvöldum um þessar aðgerðir vegna þess að þetta er veiki sem þarf að útrýma og það er tækifæri til þess nú í offramleiðslunni. Aðgerðir sem þessar eru auð- vitað mikið átak fyrir sveitarfé- lögin t.d. hér í Áshreppi því hér er skorið niður á tveimur fjár- flestu heimilunum í hreppnum. Hitt er annað sem kemur á móti að heiðlönd hér hafa verið ofbeitt á síðustu árum og maður verður því að vona að þeir sem eftir verða geti notið góðs af þessum niðurskurði." - Eru allir hér á svæðinu sam- mála um þessar aðgerðir? „Það voru allir sem samþykktu þessar aðgerðir og enginn gerði það nauðugur. Menn telja þetta skynsamlega leið þó svo að þetta komi illa niður á okkur, bæði fjárhagslega og atvinnulega séð.“ - Verða miklar breytingar við þennan niðurskurð? „Já, þetta eru verulegar breyt- ingar á högum fólks. Hér á Hofi vorum við, ég og sonur minn Jón, komnir af stað í loðdýrarækt og snúum okkur því alfarið að henni, erum reyndar að byggja loðdýrahús núna þessa dagana. Ég held líka að þótt menn snúi sér ekki að öðrum búskap þá séu þessar bætur sem greiddar eru vegna niðurskurðarins viðunandi # Köttur á Njálsgötunni Svo var það hún Sigga sem hringdi í okkur núna rétt í þessu. Grábröndótti köttur- inn hennar hann Brandur er týndur einhvers staðar á Njálsgötunni og þeir sem hafa séð til hans eru beðnir að hringja í sima. Tilkynningu sem þessa meg- um við útvarpshlustendur heyra æ ofan i sí. Kettir af ýmsum stærðum, gerðum og litum ganga lausir híngað og þangað um höfuðborgina og eigendurnir grípa símtólið, hringja í næstu útvarpsstöð og málið er leyst. Rétt um daginn tilkynnti dag- skrárgerðarmaðurinn um kött einn sem reikaði villtur m íí ruLI . »— r VwaJ um borgina. Eftir að hafa gef- ið upp lit og fleiri nauðsyn- legar staðreyndir kom að stærðinni. Vandaðist þá málið, en eftir nokkra umhugsun sagði maðurinn í útvarpinu: Ja, hann er ein- hvers staðar á milli þess að vera-köttur og kettlingur! # Mittá milli... í framhaldi af þessu veltum við vinnufélagarnir fyrir okk- ur hverslags skepna gengi laus á Njálsgötunni. Eitthváð sem var á milli þess að vera köttur og kettlingur? Við rifj- uðum upp nokkrar blaðsíður úr dýrafræðinni en hvergi kom þar neitt fram sem leyst gæti þetta mikla vandamál. Eingöngu var þar fjallað um ketti og þess getið að afkvæmin kölluðust kettling- ar. Ekki var getíð um neins konar millistig. En það var fyrir mörgum árum sem S&S var í barnaskóla og margt breyst síðan þá. Þróunin hef- ur orðið ör og tækninýjung- arnar ófáar komið fram. Ails ekki er loku fyrir það skotið að tegundin köttur hafi geng- ið í gegn um stökkbreytingu og komið sé fram þetta milli- stig sem dagskrárgerðar- maðurinn hefur svo ekki vit- að hvers nafn var. Frekar en skrifari. En eins og ég segi það hefur svo margt breyst frá því maður var í barna- skóla. Og bara svona í lokin: Einhver hefur haldið því fram að maðurinn hafi í upphafi verið rotta.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.