Dagur - 07.09.1987, Síða 5
7. september 1987 - OAGUR - 5
að lífga hann við,“ sagði Les.
„Þetta var hræðileg sjón, ég var
gjörsamlega lamaður. Þetta var
voðalegt. Sú hugsun ásækir mig
að dóttir mín hafi ef til vill vakn-
að og reynt að berja á hurðina
eftir hjálp. En slökkviliðsmenn-
irnir halda að þau hafi dáið í
svefni af völdum reyksins.“
„Við grétum alla leið á sjúkra-
húsið. Hinn hræðilegi eldur hafði
tekið frá okkur börnin og við vor-
um skilin eftir með enga von um
að geta átt fleiri. Strax á þessari
stundu fór ég að sjá eftir að hafa
farið í ófrjósemisaðgerðina, en
þá hélt ég að ekki væri aftur
snúið.“
Starfslið sjúkrahússins sagði
þeim aftur á móti aðra sögu. Þau
sögðu að hægt væri að setja hann
aftur í samband, en að líkur á
frjósemi væru litlar, aðeins einn á
móti fimmtíu.
GiII gefur barninu sem hún hélt að
hún myndi ekki eignast.
„Þetta var sársaukafull aðgerð
en allir voru mjög hjálpsamir og
Gill var farin að hressast við til-
hugsunina um annað barn.“
Innan fárra mánaða var Les til-
búinn til þess að reyna aftur og
mánuði seinna færði Gill honum
dásamlegustu fréttir sem hann
hafði heyrt. „Ég er ófrísk", Sagði
hún.
„Ég var viðstaddur fæðinguna
og það var unaðslegt að horfa á
son minn koma í heiminn. Allt í
einu var allt farið að ganga vel
aftur. Eftir alla sorgina sem við
höfðum gengið í gegnum, var
Martyn eins og draumur sem
verður að veruleika."
Veður í ágúst:
Úrkoma
langt undir
meðallagi
„Þið fenguð afskaplega ntildan
og góðan ágúst,“ sagði Adda
Bára Sigfúsdóttir veður-
fræðingur á Veðurstofu ís-
lands þegar hún var beðin um
yfirlit yfir veðrið í ágúst á
Norðurlandi.
Adda Bára sagði að meðalhiti
mánaðarins hafi verið 10,1 gráða
sem er hálfu stigi yfir meðallagi. í
meðalári er úrkoma á Akureyri
32 millimetrar en í ágúst var hún
aðeins 12 millimetrar og því langt
undir meðallagi. Þetta sagði
Adda Bára að gilti um allt land,
ágúst hefði verið þurr mánuður.
Sólskinsstundirnar hjá okkur
voru 145 éða 14 stundum meira
en í meðalári. „Þið hafið fengið
þó nokkra verulega góða sólar-
daga, en þeir hafa verið dreifðir."
Ríkjandi vindátt var norðlæg,
en annars var mánuðurinn mjög
hægviðrasamur og komst vind-
hraðinn aldrei yfir 4 vindstig.
VG
Búnaðardeild SÍS:
40% aukning í
sölu dráttarvéla
„Sala á dráttarvélum á okkar
vegum hefur aukist um 40%
frá fyrra ári. Að mínu áliti
byggist þetta á aukinni hlut-
deild okkar í dráttarvélamark-
aðinum en ekki því að bændur
kaupi fleiri dráttarvélar en
áður,“ sagði Gunnar Gunnars-
son, forstöðumaður í Búnaðar-
deildar SÍS í Reykjavík.
Að sögn Gunnars er þó ekki
um aukningu að ræða í sölu ann-
arra tækja en dráttarvéla. „Á síð-
asta ári var sala á mjaltakerfum
og öðrum búnaði í fjós í hámarki
og segja má að viss mettun hafi
orðið á þeim markaði í bili því
sala á þessum búnaði hefur verið
dræm á þessu ári. En við erum
búnir að selja hátt í hundrað nýj-
ar Massey Ferguson dráttarvélar
á þessu ári en seldum alls 62 allt
síðasta ár. Af heybindivélum og
heyhleðsluvögnum seldum við
heldur minna magn en í fyrra en
annars er jöfn og góð sala í öllum
algengustu heyvinnuvélum.
Nýju gerðunum af dráttarvél-
unum, Massey Ferguson 300 og
3000, hefur verið mjög vel tekið
af bændum. Þetta þýðir þó ekki
að bændur endurnýji dráttarvéla-
kost sinn hraðar en áður, þvert á
móti bendir allt til að bændur
haldi tækjakaupum í lágmarki og
nýti tæki sín til hins ýtrasta þann-
ig að úreldingartími þeirra er
langur,“ sagði Gunnar Gunnars-
son. EHB
Strandflutningar Sambandsins:
Hafa gengið ágætlega
- segir Ómar Jóhannsson
„Að vísu erum við ennþá á til-
raunatímanum, en eins og til
var stofnað hefur þetta gengið
ágætlega,“ sagði Ómar
Jóhannsson framkvæmda-
stjóri Skipadeildar Sambands-
ins þegar hann var spurður
hvernig strandflutningarnir
sem þeir hófu í vor hafa
gengið.
„Þetta er byggt nær eingöngu á
söfnun freðfisks af ströndinni í
tengingu við gámaskipin til
Evrópu og Jökulfellið til Ameríku.
Það var viljandi gert að byrja á
þessu þegar rólegast var í fiskút-
flutningi, eða yfir sumarfrítím-
ann þegar fiskvinnsla er í lág-
marki. Eg get ekki sagt annað en
að þetta hafi skilað sér fyllilega
miðað við væntingar.
Nú fer að koma meiri pressa
varðandi fiskinn og kemur þá í
ljós þegar vinnsla fisks verður
aftur komin á eðlilegt stig,
hvernig þetta kemur til með að
ganga. Akvörðun um framhald
verður því ekki tekin fyrr en
þetta kemur í ljós, en flest bendir
til að svo verði.
Með þessum skipum hefur líka
verið tekin gámavara bæði að
sunnan og norður og öfugt. Það
hefur einnig skilað sér vel, þrátt
fyrir að það sé Ríkisskip sem er
að verulegu leyti með þessa flutn-
inga. Nýtingin hefur þó verið
ágæt hjá okkur.“
Ómar var einnig spurður hvort
þeir kæmu til með að þurfa að
fjölga skipum til þessara flutn-
inga, og sagðist hann ekki reikna
með að þess þyrfti vegna fisk-
flutninganna, en varðandi flutn-
ing á annarri vöru þarf að skoða
það dæmi nánar í framhaldi af
því hver árangur verður í lok til-
raunatímabilsins. VG
útgerðarmenn: sjómenn:
ALLT TIL FISKVEIÐA HJÁ
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
SJÁVARÚTVEGSINS.
Asiaco hf. hefur þjónaö sjávarútveginum í
meira en aldarfjórðung. Viö bjóðum úrval
veiðarfæra, búnaðar og rekstrarvara til fisk-
veiða og fiskiðnaðar. Einnig seljum við fyrir
ykkur aflann.
Reynið viðskiptin. Hröð afgreiðsla af lager
eða beint frá framleiðendum.
dfe asiaco hf
Vesturgötu 2, Pósthólf 826,
121 Reykjavík, Sími: 91-26733