Dagur - 06.10.1987, Blaðsíða 5
6.-október4987> - DAQURi - 5
Bjarni Þór Einarsson bæjarstjóri eltir boltann einbeittur á svip en Örn
Jóhannsson bæjarfulltrúi ætlar að forða sér.
fegursta náttkjólnum og eins hitti
hann boltann ótrúlega oft, auk
þess sem honum tókst að koma
boltanum í mark án þess að beita
ofboðslegu ofbeldi.
Engin gul eða rauð spjöld voru
gefin í leiknum en þó nokkur blá
spjöld voru á lofti, einnig reyndi
dómarinn oft að reka leikendur
út af vegna grófra brota en það
þýddi lítið, þar sem leikendur
vildu helst vera inni á vellinum og
virtust ekki skemmta sér síður en
áhorfendur.
Áður en hinn eftirminnilegi
leikur hófst sýndu börn á aldrin-
um 10-12 ára fimleika og í leik-
hléi sýndu ungar stúlkur leikþátt,
eftirhermur og dans. Einnig
kepptu stjórnarmenn Björgunar-
sveitarinnar Garðars í blöðru-
blæstri.
Helga Kristinsdóttir sem starf-
ar í fjáröflunarnefnd slysavarna-
deildarinnar var kynnir á
skemmtuninni. Hún sagði í sani-
tali við Dag að um árabil hefði
kökubasar verið hefðbundin fjár-
öflunarleið en nú hefði konurnar
langað að reyna eitthvað nýtt.
Skemmtunin hefði tekist vel, þær
sem að henni stóðu væru ánægð-
ar með það sem inn kom og von-
andi yrði framhald á slíkum uppá-
.komum. IM
Halldór Kristinsson sýslumaður og Lissý Halldórsdóttir bankastarfsmaður
berjast um knöttinn.
Fréttatilkynning:
Óánægja með lokun Norðurgötu
íbúi við Grenivelli skrifar:
Ég vil koma á framfæri örfáum
orðum vegna lokunar Norður-
götu sem kemur í kjölfar við-
byggingar Hagkaups.
Eg sem íbúi Grenivalla austan
Norðurgötu hélt að við sem
búum á þessu svæði hefðum nú
þegar nóg af viðskiptavinum
Haugkaups að segja þar sem
ýmsir þeirra kjósa að stytta sér
íeið í gegnum garða okkar. Það
hlýtur að fylla mælinn þegar á að
fara að breyta rólegri götu eins
og Grenivellirnir eru í mikla
Lélegar
efndir
S.St. skrifar
Ég get ekki á mér setið með að
lýsa óánægju minni með störf
ríkisstjórnarinnar og þá sérstak-
lega fjármálaráðherrans, Jóns
Baldvins Hannibalssonar. í kosn-
ingunum töluðu alþýðuflokks-
menn mikið um nauðsyn þess að
tryggja öldruðum áhyggjulaust
ævikvöld. Ég tilheyri þeim
þjóðfélagshópi og bjóst að sjálf-
sögðu við að Jón Baldvin stæði
við gefin loforð þegar hann hefði
til þess völd og áhrif.
Én raunin er allt önnur. Fyrsta
verk hans var að skattleggja
bifreiðaeign okkar meira en áður
og næsta verk var að leggja sölu-
skatt á matvæli. Síðan voru elli-
launin reyndar hækkuð, en sú
hækkun nægir ekki til að bæta
okkur upp það tekjutap sem við
þegar höfum orðið fyrir vegna
fyrrnefndra aðgerða.
Það er því allt útlit fyrir að ævi-
kvöldið verði langt í frá áhyggju-
laust og maður bíður bara eftir
næstu aðgerðum. Mér finnst full
ástæða til að vekja athygli á þessu
misræmi orða og athafna hjá fjár-
málaráðherranum.
STAÐAR NEM!
Öll hjól eiga aö stóövast
algerlega áðuren
aö stöðvunarlinu.
er komið.
umferðargötu.
Fyrir utan þetta þá hljóta þess-
ir stóru bílar sem losa vörur sínar
við verslun Hagkaups að valda
töluverðri mengun í næsta
nágrenni. Ég er því afar ósátt við
afgreiðslu Akureyrarbæjar á
þessu máli.
Nordisk Forum '88
Norræn kvennaráðstefna í Osló 1988 efnir til
samkeppni meðal kvenna um gerð veggspjalds.
Skilafrestur til 1. nóvember 1987.
Nánari upplýsingar
Nanna Þórsdóttir í síma 22199.
Akureyri - Mývatn - Akureyri
Vetraráætlun
Gildir frá 08.10. 87-09.05/88.
Ath. Breyting á áætlun um jól og páska.
Frá Reynihlíð
föstudag kl. 08.00 og 20.00
sunnudag kl. 17.00
Frá Akureyri
fimmtudag kl. 20.00
föstudag kl. 16.30
sunnudag kl. 14.00
Farpantanir í Hótel Reynihlíð s 96-44170 og afgreiðslu
Sérleyfisbíla Geislagötu 10 s 96-24729 og 24475.
SÉRLEYFISBÍLAR AKUREYRAR SF.
Skotveiðimenn
Tilboðsverð
á rjúpnaskotum
Ef keypt eru 500-1000 skot
er veittur 5% staðgreiðsluafsláttur.
Ef keypt eru 1000 skot eða meira
er veittur 12% staðgreiðsluafsláttur.
Haglabyssur og hagiaskot í urvali.
Opið laugardaga 9-12.
W lli Eyfjörö
Hjalteyrargötu 4 ■ sími 22Z75
Út er komið á vegum Náms-
gagnastofnunar og íslandsdeildar
Norðurlandaráðs námsefni fyrir
8. og 9. bekk grunnskólanna um
norræna samvinnu og umhverfis-
mál. Bera hefti þau sem komin
eru út yfirskriftina í norðri og eru
staðfærðar þýðingar á heftum úr
heftaröðinni Nordpá sem gefin er
út af Norðurlandaráði. Út eru
komin í þeirri röð 11 hefti um
ýmis efni, þá.a m. stríðs- og eftir-
stríðsárin á Norðurlöndum, þró-
unaraðstoð og fíkniefni. Þetta er
í fyrsta sinn sem gefið er út sam-
norrænt námsefni og eru heftin á
dönsku að einu undanskildu en í
því eru kaflar á dönsku, norsku
og sænsku.
Námsgagnastofnun sér um
dreifingu íslensku heftanna, en
þýðandinn er Sigurlín Svein-
bjarnardóttir, námsstjóri í
dönsku.
óskar eftir að ráða hugmyndaríkt fólk
til að skrifa fasta þætti í blaðið.
Tilskilin er góð íslensku- og vélritunarkunnátta
og góð almenn menntun.
Um eftirtalda efnisþætti er að ræða:
★ Popptónlist
★ Sígild tónlist
★ Matargerð o.fl.
Ennfremur óskar blaðið eftir fólki
til að skrifa fasta þætti um sjálfvalið efni.
Umsóknir berist Braga V. Bergmann ritstjóra,
sem jafnframt veitir nánari upplýsingar ef óskað er.
Umsóknarfrestur er til 10. október nk.
★ Unglingar
Út ★ Neytendur
★ Hannyrðir
Strandgötu 31, Akureyri. Sími 24222.