Dagur - 06.10.1987, Page 6

Dagur - 06.10.1987, Page 6
6 - DÁGIM - 6Í ^któBér 1987' - Nýr skemmtistaður opnaður á Akureyri Spegilmynd á hvolfi. Prúðbúið fólk skálar fyrir nýja skemmtistaðnum. Á föstudaginn 2. október var opnaður nýr skemmtistaður á Akur- eyri, sem hlotið hefur nafnið Zebra. Eigandi staðarins er Kristján Kristjánsson sem rekið hefur skemmtistaðinn H 100 í um það bil ár. Zebra er í sama húsnæði og H 100 var þ.e. að Hafnarstræti 100 en lagt hefur verið í kostnað vegna breytinga á staðnum. Staðurinn hefur tekið stakkaskiptum. Mest hefur verið lagt í fyrstu hæðina, en sú nýbreytni verður í framtíðinni að þar verður hægt að fá keyptan mat. Annars staðar í húsinu hafa veggir verið teknir, mál- að var og gera þessar breytingar andrúmsloft- ið mun léttara og skemmtilegra. Eigandi staðarins hefur í hyggju að höfða til eldra fólks en áður hefur tíðkast á þessum stað og mun framvegis verða 20 ára aldurs- takmark á laugardags- kvöldum. Aðra daga sem staðurinn verður opinn verður aldurs- takmark 18 ár. Á föstudagskvöld, opnunarkvöldið var tískusýning frá verslun- inni Perfect, Stuð- kompaníið lék fyrir dansi og Helena Jóns- dóttir skemmti. Fjölmenni var við opnunina og skemmti fólk sér hið besta. VG Eigandi Zebra, Kristján Kristjánsson. Frá tískusýningu verslunarinnar Perfect. Fjölmenni var við opnunina og skemmti fólk sér hið besta. Þær fylgdust grannt með skemmtiatriðunum þessar stöllur. Myndir: rþb

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.