Dagur - 06.10.1987, Síða 10

Dagur - 06.10.1987, Síða 10
10 - DAGUR’- &. Október>;19«5 „LOdega dettur þettaallt níður í nokkur ár“ - fjallskilastjórinn Kristinn Hermannsson tekinn tali Fyrir utan réttina hitti ég fyrir Kristin Hermannsson bónda, eða kannski réttara sagt fyrr- verandi bónda á Molastöðum, en Kristinn þurfti að skera nið- ur á seinasta hausti allt sitt fé vegna riðu. Kristinn er fjall- skilastjóri í Holtshreppi. „Það er gaman að vera hérna. Það má segja að það hafi oft ver- ið mikið stuð á mönnum. En nú líklega dettur þetta allt niður í nokkur ár. Ætli það vanti ekki 12-1400 hausa hérna núna frá því í fyrra og svo fækkar enn í ár.“ - Eru þetta langar göngur hjá ykkur? „Nei, þetta eru sáralitlar göngur. Þær taka bara 2 daga. Fyrri daginn er neðra svæðið smalað og síðan er farið af stað um sjöleytið að morgni réttar- dagsins og komið að upp úr hádeginu.“ - Hvernig var að ganga? „Það var mjög gott að ganga núna. Féð hefur komið svo mikið niður eftir að kólnaði og fór að snjóa í fjöllin. Það var neðarlega í fjöllunum og mikið niður í byggð. Þetta voru léttar göngur og við náttúrlega heppnir með veður eins og vanalega.“ - „Þú ert aðflutttur. Ertu búinn að búa lengi hérna í Fljót- unum? „Ég kom hingað 1976 og það var allt of fljótt sem maður þurfti að hætta með kindurnar. Maður reiknar síður með að byrja aftur. Ég er lærður bifvélavirki og hef undanfarið unnið á Reykjum í laxeldisstöðinni Miklalaxi, sé um - sagði Jón í Minna-Holti réttarstjóri í landi Lundar í Stíflu sem skáldkonan Guðrún kenndi sig við er Holtsrélt eða Stíflurétt eins og hún er oft kölluð. Þar var réttað sunnudaginn 20. september. Stíflurétt var allt fram á síðustu ár líklega ein fjárflesta rétt í austanverðum Skagafirði og það þótti mikil upplifun að fara í Stífluna á réttardaginn. Þegar Dag bar að garði var stutt síðan féð kom til réttar. Nokkuð margir bílar voru komn- ir að réttinni, en þar sem þetta var í fyrsta skipti sem undirritað- ur kom í Stíflurétt var ekki gott fyrir hann að dæma um hvort þeir voru fleiri eða færri en vanalega. Fólkið var komið inn í almenninginn og farið að draga féð. Þar á meðal réttarstjórinn sjálfur Jón Sigurðsson í Minna- Holti. Hann gaf sér þó tíma til að rabbs og var fyrst spurður um hvað lengi hafi verið réttað á þessum stað í Stíflunni. • „Ég kom hingað í Fljótin 1954 og þá var réttað hérna vestan við ána til móts við bæinn Depla hér norðan við. Það hefur svo líklega verið sumarið ’59 sem þessi rétt var byggð að tilstuðlan þáverandi oddvita Jóns á Móafelli og Hartmann á Þrasastöðum hafði umsjón með byggingu hennar. Með tilkomu þessarar réttar var réttin vestan við ána að sjálf- sögðu aflögð." - Voru þetta nokkuð miklar réttir hér áður fyrr? „Já á tímabili og það eru ekki nema 3-4 ár síðan hér var á fjórða þúsund fjár. En síðan hafa bæir farið í eyði og eins hefur rið- helmingi færri, þar sem skorið verður niður vegna riðu á a.m.k. 3 bæjum í hreppnum." - Hefur þá ekki fjörið minnk- að eitthvað á réttinni samfara þessari fækkun fjárins? „Nei, það er nú ekki svo mikið og það hefur alltaf verið heldur líflegt hérna á Holtsrétt. Það er kominn þarna fjöldi fólks og fjöldi bíla og á sjálfsagt eftir að fjölga mikið í dag. Stemmningin hefur verið góð. Menn flugust á hér áður fyrr, en það var bara í an gert skurk hérna. Það voru ekki nema 1700 kindur til niður- jöfnunar í haust og næsta haust verða þær líklega allt að þvf „Það heftir alltaf verið líflegt héma í Holtsrétt“

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.