Dagur - 06.10.1987, Side 13
6.^«tÓbérít967í-ÐAGU«5-t^
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Uppskeruhátíð UMFS:
Stöðugt betri árangur
- hjá keppnisfólki félagsins
Uppskeruhátíð Ungmenna-
félags Svarfdæla var haldin í
Víkurröst á Dalvík fyrir
skömmu. Þar kom fram að í
sumar var keppt í sundi, frjáls-
um íþróttum og knattspyrnu á
vegum félagsins. Knattspyrna
er langfjölmennasta greinin
sem iðkuð er á vegum UMFS
en um 110-120 manns hafa æft
með félaginu í sumar í sex
flokkum.
Sund:
Keppendur frá UMFS fóru á
aldursflokkamót UMSE í sundi
og stóðu sig með mikilli prýði, þótt'
ekki hafi verið æft mjög mikið.
Þetta var í fyrsta skipti í langan
tíma sem keppt var undir merki
UMFS í sundi. Á uppskeruhátíð-
inni fengu Bjarni Jónsson oj; syst-
urnar Aðalbjörg og Aslaug
Stefánsdætur viðurkenningu fyrir
árangur sinn í sundi.
Frjálsar íþróttir:
Þjálfari í sumar var Guðmund-
ur Sigurðsson úr Ólafsfirði og er
þetta þriðja sumarið í röð sem
markviss þjálfun fer fram í frjáls-
um íþróttum hjá UMFS. Árang-
urinn er líka að skila sér. Hingað
til hafa keppendur frá UMFS
staðið sig vel á mótum en oftast
vantað herslumuninn. í sumar
vann UMFS hins vegar héraðs-
mót UMSE í frjálsum íþróttum
fullorðinna, í fyrsta skipti í langan
tíma, sem segir mikið um fram-
farirnar. Aðstaðan á Dalvík er
þó enn harla bágborin en mun
lagast mikið þegar aðalvöllur
UMFS verður tilbúinn en þar
verður mjög góð aðstaða fyrir
frjálsíþróttafólk.
Keppendur frá UMFS tóku
þátt í þremur mótum í sumar og
unnu þau öll. Þetta voru Bænda-
dagshlaup UMSE, héraðsmót
UMSE og aldursflokkamót
UMSE. UMFS veitti margar
viðurkenningar fyrir góðan
árangur í frjálsum íþróttum en
þær hlutu: Snjólaug Vilhelms-
dóttir en hún vann m.a. 3 íslands-
meistaratitla á árinu, Þóra
Einarsdóttir, Páll Jónsson, Arnar
Snorrason en hann var valinn í
landsliðið í frjálsum íþróttum í
400 m hlaupi og 4x400 m hlaupi,
Sigurlaug Hauksdóttir, Gunn-
laugur Jónsson, Hallgrímur
Matthíasson, Bryndís Brynjars-
dóttir, Ingigerður Júlíusdóttir og
Sigurður Matthíasson einn
fremsti spjótkastari landsins, sem
keppti mjög víða eins og undan-
farin ár.
Knattspyrna:
í sumar var knattspyrna æfð í
sex flokkum hjá UMSE en eins
og kemur fram í inngangi er þetta
langfjölmennasta íþróttagreinin
sem stunduð er innan félagsins.
6. flokkur:
Þjálfari 6. flokks var Þorsteinn
Guðbjartsson. Strákarnir tóku
þátt í fjórum mótum og stóðu sig
vel. Þarna er á ferðinni góður
efniviður sem á örugglega eftir að
láta mikið að sér kveða í framtíð-
inni. Heiðar Sigurjónsson var
valinn efnilegasti leikmaður 6.
flokks en aðrir sem hlutu viður-
kenningu voru, Birgir Hannesson
fyrir frábæra ástundun, Jóhann
Hreiðarsson og Atli Viðar
Björnsson fyrir góða ástundun og
Anton Ingvason fyrir góða
frammistöðu.
5. flokkur:
Birgir Össurason þjálfaði 5.
flokk og undir hans stjórn tóku
strákarnir þátt í íslandsmótinu og
auk þess tveimur öðrum mótum.
Birgir þjálfaði einnig 4. og 3.
flokk. UMFS lék í Norðurlands-
riðli og vann 1 leik í riðlinum en
tapaði 4 leikjum. UMFS sigraði í
héraðsmóti UMSE í knattspyrnu
12 ára og yngri. Sigurbjörn
Hreiðarsson var valinn efnileg-
asti leikmaðurinn en aðrir sem
hlutu viðurkenningu voru, Logi
Kjartansson fyrir frábæra ástund-
un og Steinn Símonarson og
Sverrir Þorleifsson fyrir góða
ástundun.
4. flokkur:
Fjórði flokkur UMFS tók þátt
íslandsmótinu og Iék í Norður-
landsriðli. Liðið vann 1 leik,
gerði 2 jafntefli og tapaði 4 leikj-
um. Daði Jónsson var valinn
efnilegasti leikmaðurinn en aðrir
sem hlutu viðurkenningu voru,
Ottó B. Ottósson fyrir frábæra
ástundun og þeir Jóhann Jónsson
og Emil Einarsson fyrir góða
ástundun.
3. flokkur:
Þriðji flokkur UMFS tók ekki
þátt í íslandsmótinu. Liðið tók
þátt í héraðsmóti UMSE og
hraðmóti UMSE og vann bæði
mótin. Örvar Eiríksson var val-
inn efnilegasti leikmaðurinn en
aðrir sem hlutu viðurkenningu
voru, Pálmi Óskarsson og Pálmi
Friðriksson fyrir góða ástundun.
Kvennaflokkur:
Garðar Jónsson var þjálfari
kvennaflokks. Þetta er annað
sumarið í röð sem reglulegar
æfingar eru í kvennaflokki og
hafa stúlkurnar tekið miklum
framförum. Er verið að hugleiða
það hvort senda eigi þær til
keppni í 2. deild næsta sumar.
Þær tóku þátt í tveimur mótum í
sumar, Bæjarmóti og kvenna-
móti UMSE og urðu í 2. sæti í
þeim báðum. Guðný Friðriks-
dóttir var valinn efnilegasti leik-
maðurinn en aðrar sem hlutu
viðurkenningu voru, Helga
Björk Eiríksdóttir fyrir frábæra
ástundun og þær Kristín Gunn-
þórsdóttir og Snjólaug Árnadótt-
ir fyrir góða ástundun.
Meistaraflokkur karla:
Garðar Jónsson þjálfaði einnig
meistaraflokk karla, auk þess
sem hann lék með liðinu. Liðið
lék í E-riðli 4. deildar á íslands-
mótinu og var aðeins hársbreidd
frá því að komast í 3. deild.
UMFS hlaut jafn mörg stig og
Hvöt í riðlinum en Hvatarmenn
voru með hagstæðara marka-
hlutfall, sigruðu því í riðlinum og
gerðu sér síðan lítið fyrir og unnu
4. deildina. Svarfdælingar ætla
sér að vinna sæti í 3. deild á næsta
ári og ef vel er á málum haldið
ætti það að geta tekist. Auk
íslandsmótsins tóku strákarnir
þátt í bikarmóti UMSE, Mjólk-
urbikarkeppni KSÍ og héraðs-
Sigurlið Guðjóns E. Jónssonar í Bændaglíinunni í golfi um helgina.
Bændaglíman í golfi:
Lið Guðjóns sigraði
Síðasta stórmót sumarsins hjá
Golfklúbbi Akureyrar,
Bændaglíman fór fram á laug-
ardag. Bændur að þessu sinni
voru þeir Hilmar Gíslason
bæjarverkstjóri og Guðjón E.
Jónsson formaður Sjómanna-
félags Eyjafjarðar. Þeir félagar
skiptu með sér þeim 46 kepp-
endum sem auk þeirra mættu
mótið. Bændaglíman er holu-
keppni og voru leiknar 9 holur.
Keppnin var gífurlega jöfn og
spennandi en það fór þó þannig
að lokum að lið Guðjóns stóð
uppi sem sigurvegari, eftir að
Guðjón hafði lagt Hilmar að velli
í bráðabana. Eftir 9 holu keppni
voru liðin hnífjöfn og því þúrftu
bændurnir Guðjón og Hilmar að
gera út um málið í bráðabana.
Guðjón gerði sér þá lítið fyrir og
fór 18. holuna á þremur höggum
eða pari en Hilmar á einu yfir
pari. Það þýddi að Guðjón og
hans menn höfðu unnið yfir-
burðasigur.
móti UMSE þar sem þeir urðu í
2. sæti.
Albert knattspyrnumaður
UMFS:
Leikmenn meistaraflokks
völdu sjálfir knattspyrnumann
ársins úr sínum röðum og urðu
úrslit þau að Albert Ágústsson
varð hlutskarpastur. í öðru sæti
varð Garðar Jónsson og í þriðja
sæti Sigurvin Jónsson. Björn
Friðþjófsson hlaut viðurkenn-
ingu fyrir frábæra ástundun og
þeir Ingólfur Kristinsson, Sigur-
vin Jónsson og Arnar Snorrason
fyrir góða ástundun.
UMFS vinnur Sjóvábikarinn til
eignar:
Þótt ekki sé búið að reikna út
stig einstakra félaga innan
UMSE í öllum greinum sem
keppt hefur verið í, er þó ljóst að
UMFS er stigahæst og hlýtur
svokallaðan Sjóvábikar. Það
mun verða í þriðja sinn sem
félagið hlýtur þennan glæsilega
grip og vinnur hann því til eignar.
Eins og kemur fram hér að
ofan verður árangur stöðugt betri'
í þeim greinum sem keppt er í á
vegum UMFS. Á Dalvík er mjög
góður efniviður íþróttafólks og
eru margir þeirra reiðubúnir að
leggja mikið á sig til þess að ná
góðum árangri. í sumar hefur
verið unnið af krafti við nýjan
glæsilegan grasvöll og með til-
komu hans mun öll aðstaða
knattspyrnu- og frjálsíþróttafólks
batna til mikilla muna, sem mun
án efa skila sér í enn betri
árangri. Stjórn UMFS hefur unn-
ið mikið og gott starf á undan-
förnum árum, sem virðist ætla að
skila sér ríkulega. Stjórn UMFS
skipa: Snorri Finnlaugsson for-
maður, Eiríkur Helgason
varaformaður, Ásmundur Jóns-
son gjaldkeri, Júlíus Viðarsson
ritari og Brynjar Aðalsteinsson
meðstjórnandi.
Gústaf Björnsson.
Knattspyrna:
Gústaf hættur
meðKS
Siglfírðingar leita um þessar
inundir að þjálfara fyrir
meistaraflokk sinn næsta
keppnistímabil. Gústaf
Björnsson sem verið hefur
þjálfari og leikmaður liðsins
síðustu tvö ár er hættur með
liðið. Þá hefur Jónas bróðir
Gústafs, sem lék með liðinu í
sumar gengið til liðs við Fram
á ný.
Dagur hafði spurnir af því að
Mark Duffield ætlaði einnig að
yfirgefa KS og hafði því samband
við hann til þess að fá nánari
fréttir af því máli. „Ég hef ekkert
ákveðið í þessum efnum og þetta
er því algjörlega úr lausu lofti
gripið. Ég hef að vísu mikinn
áhuga á því að leika í 1. deild á
ný en hvort af því verður get ég
ekkert sagt um á þessu stigi,“
sagði Mark Duffield um málið.
KS-ingar ætluðu sér stóra
hluti í 2. deildinni í sumar en
lentu í fallbaráttu lengst. Þeir
náðu þó að bjarga sér fyrir horn
með ágætum endaspretti. Það
gæti því reynst Iiðinu dýrkeypt
þurfi það að horfa á eftir fleiri
leikmönnum en þeim Gústaf og
Jónasi.
1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2
Sveinbjöm sigraði
Pétur örugglega
Það vafðist ekki fyrir Sveinbirni Sigurðssyni að leggja Pétur
Guðjónsson að velli í getraunaleiknum um helgina en þeir félag-
ar urðu jafnir vikuna á undan. Sveinbjörn hafði 9 leiki rétta á
móti 6 leikjum Péturs. Sveinbjörn heldur áfram í keppninni og
hann hefur skorað á Þorvald Þorvaldsson er þjálfaði kvennalið
KA í knattspyrnu í sumar. Hann ætlaði að skora á kvenmann
en þar sem ekki náðist í þann sem hann ætlaði að skora á að
þessu sinni, hyggst hann slá Þorvald út í millitíðinni. Þorvaldur
er áhangandi Leeds og einnig hefur hann nokkuð sterkar taugar
til Liverpool. Áhangendur þessara liða hafa ekki náð teljandi
árangri í getraunaleiknum og því má búast við enn einum sigri
hjá Sveinbirni. En það skýrist þó ekki fyrr en á laugardag.
Sveinbjörn:
Þorvaldur:
Arsenal-Oxford
Coventry-Southampton
Derby-Nottm .Forest
Everton-Chelsea
Norwich-Tottenham
Portsmouth-Luton
Sheff.Wed.-Man.Utd.
Watford-Newcastle
West Ham-Charlton
Wimbledon-Liverpool
Leicester-Barnsley
W.B.A.-Bradford
1 Arsenal-Oxford 1
1 Coventry-Southampton 1
x Derby-Nottm.Forest x
1 Everton-Chelsea 1
x Norwich-Tottenham 2
x Portsmouth-Luton x
x Sheff.Wed.-Man.Utd. 2
1 Watford-Newcastle 1
1 West Ham-Charlton 1
2 Wimbledon-Liverpool 2
1 Leicester-Barnsley 2
1 W.B.A.-Bradford x
Tipparar munið að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fimmtudög-
um svo enginn verði nú af vinningi.
1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2