Dagur - 06.10.1987, Page 15
6. október 1987 - DAGUR - 15
Bókrún með þrjár
nýjar bækur
Hjá forlaginu Bókrúnu hf. verða
tvær ljóðabækur á markaði fyrir
jólin. Bókin utan vegar, eftir
Steinunni Eyjólfsdóttur, 50 blað-
síðna kilja með teikningum eftir
Guðrúnu Svöfu Svafarsdóttur og
Andlit í bláum vötnum, 73 ljóð
eftir Ragnhildi Ófeigsdóttur.
í október kemur út Minnisbók
Bókrúnar 1988, um 200 blað-
síðna almanaksbók með fróðleik
við hvern dag um konur og við-
Áttunda landsþing íslenska esper-'
antosambandsins var haldið á
Hótel Sögu dagana 5.-6. þessa
mánaðar. Þingið hófst með tón-,
leikum, Sigrún Eðvaldsdóttir lék
á fiðlu við undirleik Selmu
Guðmundsdóttur. Síðan flutti
gestur þingsins, breski málfræð-
ingurinn dr. John C. Wells,
erindi á esperanto um hundrað
ára afmæli alþjóðamálsins. Hann
er einn kunnasti esperantofræð-
ingur á okkar dögum, og utan
esperantohreyfingarinnar þekkt-
ur fyrir rannsóknir sínar á ensk-
um framburði og rit um þau efni.
Á næsta ári er væntanleg eftir
hann ensk framburðarbók þar
sem sýndur er framburður 60-70
þúsund orða í ensku. Að loknu
þinginu flutti hann erindi í boði
Heimspekideildar Háskólans,
mánudaginn 7. þ.m., um ókosti
enskrar tungu sem alþjóðamáls.
í erindi sínu á landsþinginu
ræddi dr. John C. Wells urn
árangur, sigra og ósigra esper-
antohreyfingarinnar, og benti
meðal annars á að við rannsóknir
á tungumálum til að nota við
tölvuþýðingar úr einu máli á ann-
að hefur esperanto reynst heppi-
legast mála sökum þess hve það
er reglulegt og rökrétt. En hann
kom á þingið beint af alþjóðlegri
ráðstefnu tölvufræðinga í Edin-
borg, þar sem þetta kom fram.
Þá flutti Árni Böðvarsson stutt
erindi um tungumálamisrétti og
minnti meðal annars á þá al-
kunnu staðreynd að tveir aðilar
við samningaborð eða í kappræð-
um njóta ekki sama réttar ef ann-
ar fær að nota móðurmál sitt en
hinn verður að tala útlent mál.
Einnig var sagt frá alþjóða-
þingi esperantista sem haldið var
í Varsjá í Póllandi nú í sumar, en
þátttakendur þar voru um 6000
hvaðanæva úr heiminum, í fyrsta
skipti allmargir frá Afríku. Loks
var sitt hvað' til skemmtunar á
landsþinginu, meðal annars
fluttu nokkrir ungir esperantistar
leikþátt.
Á þinginu fóru einnig fram
aðalfundarstörf, rætt um nám-
skeið, bókaútgáfu og annað í
starfsemi íslenska esperanto-
sarobandsins næstu tvö árin. For-
fangsefni þeirra: í bókinni eru
tólf heilsíðu ljósmyndir og efni
frá fimm konum á jafnmörgum
síðum, auk annars efnis til
skemmtunar og fróðleiks.
Nú er ritverkið Úr ævi og starfi
íslenskra kvenna I-III eftir
Björgu Einarsdóttur fáanlegt í
sérhannaðri gjafaöskju. Sam-
hliða þessu safnriti hefur forlagið
gefið út þrjú póstkort og eitt
veggspjald.
maður sambandsins til næstu
tveggja ára var kjörinn Hallgrím-
ur Sæmundsson, en aðrir í stjórn
eru Árni Böðvarsson ritari, Jón
Bragi Björgvinsson gjaldkeri,
Jón Hafsteinn Jónsson, Loftur
Melberg, Steinunn Sigurðardótt-
ir og Þórarinn Magnússon.
Loks var samþykkt svofelld
ályktun og henni beint til
menntamálaráðuneytisins:
„Áttunda landsþing íslenska
esperantosambandsins vekur
athygli menntamálaráðuneytisins
á því að í ár eru hundrað ár liðin
frá birtingu alþjóðamálsins es-
peranto. Af því tilefni mælist
landsþingið til þess við ráðuneyt-
ið að það taki til íhugunar mögu-
leika á því að kynna alþjóðamál-
ið eftir föngum í skólum, og verði
slík kynning fastur þáttur í
kennslu á skyldunámsstigi.
fslenska esperantosambandið
er reiðubúið til samvinnu um
slíka kynningu, til dæmis með
gerð kynningarnámsefnis sem
gæti tengst samfélagsfræði.“
Rétt mun vera að taka fram að
öll fundarstörf, umræður og fyrir-
lestrar fóru fram á esperanto.
Um þessar mundir eru að hefj-
ast nokkur námskeið í málinu,
bæði fyrir byrjendur og fram-
haldsnemendur, og má fá upplýs-
ingar um þau hjá stjórnarmönn-
um sambandsins.
Mál og menning:
Nýjar
kennslubækur
Nú í byrjun september sendir
Bókaútgáfa Máis og menning-
ar frá sér tug nýrra og vand-
aðra kennslubóka. Höfuð-
áhersla hefur verið lögð á bæk-
ur til bókmenntakennslu en
einnig eru hér á ferðinni
kennsiubók í efnafræði, mál-
fræðibækur og æfingahefti.
Bækurnar eru þessar:
Napóleon Bónaparti
og tólf aðrar smásögur 1880-
1960. Safn sígildra íslenskra
smásagna, einkum ætlað fram-
haldsskólum. Guðmundur Andri
Thorsson valdi sögurnar, ritaði
inngang og örstuttan kafla um
hvern höfund að auki.
Gegnum Ijóðmúrinn
- Sýnisbók íslenskra ljóða á 20.
öld. í bókinni eru liðlega 200 ljóð
eftir 86 skáld, elsta ljóðið er frá
árinu 1910 en þau yngstu ort árið
1987. Bókin er einkum ætluð til
nota í framhaldsskólum og hafa
íslenskukennararnir Ingi Bogi
Bogason, Sigurður Svavarsson og
Vigdís Grímsdóttir séð um útgáf-
una.
Tristrams saga.
Sagan af Tristram ogísönder ein
hin frægasta þeirra riddarasagna
sem snúið var á norræna tungu á
miðöldum. Yrkisefnið er ástin
mikla sem ekkert fær sigrað, ekki
einu sinni dauðinn. Þessi nýja
útgáfa er með nútímastafsetn-
ingu, Vésteinn Ólason bjó sög-
una til prentunar og skrifaði eftir-
mála og skýringar.
Almenn efnafræði
eftir Hafþór Guðjónsson er ætluð
nemendum í fyrsta bekk eða
fyrsta áfanga efnafræði á fram-
haldsskólastigi. í bókinni eru
fjölmörg verkefni og heimatil-
raunir og inn í hana er skotið
stuttum greinum um efni og efna-
fræðileg fyrirbæri sem tengjast
daglegu lífi okkar. Tilraunaút-
gáfa.
Flyskræk.
- Ti danske noveller. Tíu dansk-
ar smásögur, aliar skrifaðar eftir
1960, ætlaðar framhaldsskóla-
nemum. Brynhildur Ragnarsdótt-
ir, Jóna Björg Sætran og Þórhild-
ur Oddsdóttir völdu sögurnar og
tóku saman verkefni.
Tæt paa grammatikken.
Ný bók með dönskum mál-
fræðiæfingum fyrir framhalds-
skóla, samin af Jónu Björgu
Sætran. í bókinni er m.a. að
finna ábendingar um framburð
og framburðaræfingar, almennar
málfræðireglur og æfingar í
tengslum við almennan orða-
forða. Tilraunaútgáfa.
Vinningstölur 3. október 1987.
Heildarvinningsupphæð kr. 4.696.967.-
1. vinningur kr. 2.355.575.-
Þar sem enginn fékk fyrsta vinning
færist hann yfir á fyrsta vinning í næsta úrdrætti.
2. vinningur kr. 704.400.-
Skiptist á milli 400 vinningshafa kr. 1.761,-
3. vinningur.kr. 1.636.992.-
Skiptist á milli 9408 vinningshafa kr. 174,-
Upplýsingasími
91-685111.
Landsþing íslenska
esperantosambandsins
LYFTARAR
Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns-
og diesellyftara, ennfremur snúninga- og hliðarfærslur.
Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara, flytjum lyft-
ara.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð.
Tökum lyftara í umboössölu.
LYFTARASALAN HF. _________________||
Vatnagörðum 16. Símar 82770 og 82655.
u
Tilboð óskast
í neðanskráðar bifreiðar sem eru skemmdar
eftir umferðaróhöpp.
Lada Sport
Lada Sport
Toyota Cressida
MMC Colt
BMW 320
árgerð 1987
árgerð 1986
árgerð 1978
árgerð 1980
árgerð 1980
Bifreiðarnar verða til sýnis við Bifreiðaverkst. Jóhannesar
Kristjánssonar Gránufélagsgötu.
Tilboðum sé skilað til Sjóvátryggingarfélags íslands hf.
Ráðhústorgi 5, 600 Akureyri fyrir kl. 12.00 fimmtud. 8. okt.
’87.
Hjúkrunarfiræðingar
Norðurlandsdeild eystri innan HFI
stendur að fræðsludegi
laugardaginn 10. október í kennslustofu FSA,
frá kl. 9 til 17.30.
Efni: Verkir og verkjameðferð.
Fyrirlesari verður
Randi Morthensen hjúkrunarkennari frá Danmörku.
Nánari upplýsingar gefa:
Valgerður Valgarðsdóttir, sími 22100/240 og
Sólveig Hallgrímsdóttir, sími 22100/215.
Atvinna
Óskum aö ráöa lipran og laghentan starfsmann til
afgreiöslu og létta iðnaðarstarfa. Framtíöarvinna.
NORDURFELL HF.
Kaupangi 602 Akureyri Simi 23565
Fjórðungsmót
hestamanna ’87
MYNDBAND
Myndband af F.M. ’87 á Melgerðismelum er
tilbúið til dreifingar.
Lengd 2 klst. og 20 mín. Verð kr. 1.800.-
Spólan er til sölu á Búnaðarsambandi Eyjafjarðar, ásamt
dómum og mótsskrá.
Tekið verður við pöntunum í síma 24477 f.h. og 27384 á
kvöldin.
Póstsendum um land allt. Framkvæmdaráð.
Nauðungaruppboð
Eftirtaldar bifreiöar og aðrir lausafjármunir verða
boðnar/boönir upp og seldar/seldir, ef viðunandi boö
fást, á opinberu uppboöi sem fram fer viö sýsluskrif-
stofuna í Húsavík 10. októbern.k. og hefstkl. 14.00.
Þ-1617, Þ-4357, Þ-3126, Þ-4450, Þ-3356, Þ-4813,
Þ-3833, Þ-4814, Þ-4255, Þ-90, Þ-4321, Málmey
ÞH-206.
Frystikista, þvottavél, sjónvarpstæki, rafmagnsorgel
ofl.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Húsavík, 02. 10. 1987.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu
Bæjarfógeti Húsavíkur.