Dagur - 14.10.1987, Page 3

Dagur - 14.10.1987, Page 3
14. október 1987 - DAGUR - 3 við erum í rauninni mjög ólíkar. Það er gott að við skulum vera komnar með tvær hæðir því þá getum við þumbast hvor á sinni hæð,“ sagði Gréta og nú hlógu þær vinkonurnar hjartanlega. „Einu sinni kom maður inn þegar Sigrún var að prenta, ég bauð honum að koma inn á skrif- stofu með mér en hann stoppaði við prentvélina hjá Sigrúnu og sagði svo: „Pað er þá satt að þið prentið sjálfar.“ í fyrstu urðum við varar við að ef viðskiptavinir komu þegar mennirnir okkar voru að hjálpa okkur þá var alltaf leitað til þeirra. Konur eru ekki oft í forsvari fyrir svona fyrirtæki og þegar við höfum farið suður til að afla okkur upplýsinga, beina menn oft máli sínu til eiginmann- anna, ef þeir eru með. Bjarni og Ingi hafa alltaf hvatt okkur og verið okkur mjög hjálplegir, þeir vinna við röðun og frágang fyrir okkur eða þvo upp meðan við erum á vélunum og þetta finnst fólki sem kemur hingað skrýtin verkaskipting." - Hvernig stóð á að þið fóruð út í þennan rekstur? „Við unnum báðar á tann- læknastofunni hjá ágætis vinnu- veitendum en við vorum mikið búnar að velta fyrir okkur að fara að vinna sjálfstætt að einhverju. Svo heyri ég að Örk sé til sölu, það var á laugardegi og Gréta var úti á Ítalíu. Ég ræddi málið við manninn minn og ákvað svo að reyna að ná í Grétu, fann ferða- bækling frá Terru og hringdi svo í eitthvert númer í Reykjavík sem ég sá í þessum bæklingi og sagði þeim sem svaraði að ég þyrfti endilega að ná í Grétu á Rimini. Mér var gefið upp eitthvert voða- legt númer sem ég hringi í og þá svarar einhver Itali, ég talaði mína frábæru ensku en hann bara skildi mig ekki þvr hann talaði ekki sams konar ensku og ég. Loksins náði ég þó einhverju sambandi við manninn og bað um íslenskan fararstjóra. Þá var klukkan orðin um eitt eftir mið- nætti á Ítalíu. Loksins kom Gréta í símann: „Hæ elskan, ertu að koma,“ sagði hún, því gripurinn var eitthvað dálítið að djamma. Hún var hress og kát og mikil músík heyrðist á bak við hana. Ég var ekkert að skemmta mér og fannst Gréta ekkert sniðug svo ég byrsti mig við hana. Ég sagði að Örk væri til sölu og við yrðum að gefa ákveðið svar sem fyrst. „Já, já, skrifaðu bara undir hvað sem er fyrir mig, allt í lagi,“ sagði Gréta. Við töluðum svo saman morguninn eftir og þá var Gréta með eftirþanka eftir skemmtunina en við vorum samt ákveðnar í að slá til og kaupa Örk. Þetta gekk alltsaman vel nema að Gréta hefur ekki þorað að fá sér í glas síðan af ótta við að hún mundi kaupa eitthvað eða selja. Alla vega fær hún sér ekki í glas ef hún veit að ég er einhvers staðar nálægt síma.“ „Sigrún eyðilagði sumarfríið mitt með þessu, það vildi þannig til að Jóhannes, fyrsti eigandi Arkar var með í ferðinni og eftir þetta lágum við saman í sandin- um og ræddum um prent, hann mataði mig á upplýsingum og styrkti mig í trúnni á að fara út í þetta.“ - Hefur prentvillupúkinn ekki verið að stríða ykkur og gert eitthvað skemmtilegt af sér? „Honum líður alveg rosalega vel hjá okkur og virðist ekki skilja að hann er ekki vinsæll gestur. Okkur finnst allt leiðin- legt sem hann gerir en þó var mikið hlegið einu sinni að auglýs- ingu frá einum skólanum þar sem stóð „hrigna“ í staðinn fyrir hringja í síma. Við eigum góða að sem við getum hringt í þegar við erum að velta prófarkalestrinum fyrir okkur og síðan ég fór að fást við þetta dáist ég mjög að þeim útlendingum sem geta lært íslensku," sagði Sigrún. „Það er dálítil verkaskipting hjá okkur, ég fæ stundum að panta en Gréta sér um að borga því hún er fjárhirðir. Ég kem aldrei nálægt bókhaldi eða tölv- unni, en ég vinn við prentunina. Svo sjáum við báðar um að rukka, við þurfum ekkert að kvarta yfir því að það gangi illa að rukka en það er það leiðinleg- asta sem við gerum og við reyn- um stundum að koma því hvor á aðra.“ IM Höfði hf. Húsavík: Aflaverðmæti Júlíusar 73,1 milljón - 8,6 milljónir í hagnað íshaf hf. Húsavík: Kolbeinsey aflaði fyrir 83,3 milljónir -13 milljón króna hagnaður Aðalfundur Höfða hf. var haldinn á Húsavík 5. okt. sl. 1986 var tíunda heila rekstrar- ár fyrirtækisins og nú var í fyrsta sinn gert upp með hagn- aði sem nam 8,6 milljónum króna. Rekstrartekjur fyrirtækisins námu samtals tæpum 93,5 millj- ónum. Afli Júlíusar Havsteen var rúm þúsund tonn og aflaverð- mæti 73,1 milljón en Netagerð Höfða seldi vörur fyrir 19,4 millj- ónir. Hjá fyrirtækinu störfuðu að meðaltali 27 starfsmenn og námu heildarlaunagreiðslur tæpum 38,9 milljónum. A árinu var togaranum breytt í frystiskip, til frystingar á rækju og eftir þessar breytingar jókst aflaverðmætið til muna. Á tíma- bilinu 1. jan. til 13. apríl landaði skipið 483,7 tonnum að verðmæti 20 milljónir en eftir breytinguna, frá 24. júní til 22. des. landaði skipið 567,7 tonnum að verðmæti 53,2 milljónir. Framkvæmdastjóri Höfða hf. er Kristján Ásgeirsson. Er Dagur innti hann eftir hvort hann væri ánægður með stöðu fyrirtækisins sagði Kristján: „Maður ligguryfir því að hafa einhvern efnahags- legan ávinning út úr þessu, þann- ig að það geti gengiö, því þetta er það sem við lifum á, eins og oft er sagt en enginn vill hlusta á.“ IM Togarinn Kolbeinscy afladi 3437 tonna af físki á árinu 1986, að verðmæti 83,3 millj- ónir króna. Að meðaltali störf- uðu 18 starfsmenn hjá fyrir- tækinu íshafí hf. og námu heildarlaunagreiðslur tæpum 25,4 milljónum. Hagnaður árs- ins nam rúmlega 13 milljón- um króna. Aðalfundur félagsins var hald- inn á Húsavík 6. okt. sl. Fyrir- tækið var stofnað í nóvember 1^85 og í janúar 1986 keypti það Kolbeinsey aftur til Húsavíkur, í dag verður efnt til ráðstefnu á Hótel KEA á vegum Banka- mannaskóla íslands. Yfírskrift ráðstefnunnar er „Nýjungar á lánsfjármarkaði og innflutn- ingur fjármagns“. Þrír fyrirlestrar verða haldnir. Sveinn Sveinsson lögmaður fjall- ar um erlendar lántökur; Þor- steinn Ólafs, forstöðumaður Verðbréfamarkaðar Samvinnu- bankans og Þórður Ólafsson, forstöðumaður Bankaeftirlitsins fjalla um þróun fjármagns- en skipið var selt á nauðungar- uppboði haustið áður eins og flestum mun vera minnisstætt. Framkvæmdastjóri Ishafs hf. er Kristján Ásgeirsson. „Reksturinn gengur eins og maður gat gert ráð fyrir, Kol- beinsey rekur sig vel og hefur reyndar alltaf verið gott skip í rekstri. Við höfum möguleika á að veiða hluta af kvóta Júlíusar Havsteen á Kolbeinsey og það er hagstætt,“ sagði Kristján er Dag- ur innti hann eftir hvernig reksturinn gengi. markaðarins og loks fjallar Ás- geir Eiríksson frá Lind h.f. um tjármögnunarleigu. Ráðstefnan er ætluð fyrir bankamenn sem starfa við stjórn bankaútibúa og sparisjóða og/ eða gjaldeyris- og verðbréfavið- skipti, svo og fyrir aðra sem móta lánastefnuna í peningastofnunum á Norðurlandi. Sem fyrr segir verður ráðstefn- an haldin á Hótel KEA og hefst kl. 9.00 árdegis. Ráðgert er að ráðstefnunni ljúki kl. 17.00. BB. „Það er óhætt að fullyrða að annað atvinnutæki hefði ekki unnið betur fyrir Húsavík og ég veit ekki hver staða Húsavíkur væri ef við hefðum ekki endur- heimt skipið. Meðan menn koma ekki með eitthvað annað sem sýnir okkur að það geti velt meiru inn í þetta byggðarlag þá eru kaupin á skipinu réttlætan- leg.“ IM Heilsugæslustöðín á Akureyri: Farsóttir á svæðinu í september I lok hvers mánaðar senda embættislæknar, landlækni skýrslu um samanlagðan fjölda tilfella ákveðinna sjúkdöma á sínu starfssvæði. Skráningar sem þessar ber að taka með fyrirvara og túlka með tilliti til þess að það er matsatriði hjá einstaka læknuni hvort skrá eigi ýmsar vægari sýkingar. Samkvæmt skýrslu yfir septem- ber eru 279 manns skráðir með kvef og hálsbólgu á svæði Heilsu- gæslustöðvarinnar á Akureyri. Alvarlegri hálsbólgutilfelli eru 18 og skráð er að 12 hafi fengið lungnabólgu. Af öðrum sjúkdómum má nefna 8 hlaupabólu- og 2 hettu- sóttartilfelli, 58 tilfelli um niður- gang, 5 með kláðamaur og 2 fengu lús. VG Sauðárkrókur: Ekkert staðar- útvarp að sinni Sauðkrækingamir ungu, Omar Halldórsson og Karl Jónsson sem í sumar höfðu uppi áform um stofnsetningu útvarps- stöðvar á staðnum nú í haust, hafa slegið áformum sínum á frest. „Það reyndist vera ákaflega lít- ill áhugi meðal fólks fyrir þessu. Þeir voru örfáir sem höfðu sam- band við okkur og sýndu áhuga á dagskrárgerð og að taka þátt í þessum rekstri með okkur. Okk- ur þykir því rétt að bíða með þetta og sjá til hvort áhuginn á ekki eftir að aukast. Þetta er það dýrt að við tveir treystum okkur ekki í þetta einir. Þótt við værum búnir að fá lánuð tæki til útsend- inga hefði stofnkostnaðurinn og kostnaður við tilraunaútsending- arnar sem við ætluðum að stæðu í mánuð, hlaupið á 300-400 þús- undum," sagði Ómar Halldórs- son í samtali við Dag. ' -þá Þeir hafa haft nóg að gera við að ryðja snjó af götum Akureyrar undanfariö. Nú lítur út fyrir smá hlé. Mynd: tlv Akureyri: Ráðstefna fyrír bankamenn

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.