Dagur - 23.02.1988, Page 4

Dagur - 23.02.1988, Page 4
 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 55 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR. RITSTJÓRAR: ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.) BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ANDRÉSPÉTURSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, FRIMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir), STEFÁN SÆMUNDSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDI'S FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Vaxtalækkun í gær kom til framkvæmda vaxtalækkun hjá sparisjóðum og bönkum, að Samvinnubank- anum undanskildum. Lækkun er mismikil eft- ir peningastofnunum, allt frá 2% upp í 7%. Þessi lækkun kemur í kjölfar þess, að láns- kjaravísitalan fyrir marsmánuð hækkar nú aðeins um 0,5%, eða sem svarar til rúmlega 6% hækkunar á heilu ári. Hækkun lánskjara- vísitölunnar fyrstu þrjá mánuði þessa árs samsvarar um 18,6% verðbólgu á heilu ári og 12 mánaða hækkun, frá mars ’87 til mars ’88, er tæplega 22%. Það gefur augaleið, að nú- gildandi 36-37% nafnvextir eru mjög háir raunvextir við þessar aðstæður. Það var því mjög eðlileg ákvörðun að lækka nafnvextina nú, enda löngu orðið ljóst að vextir hér á landi eru allt of háir. Hvort vextir halda áfram að lækka á næst- unni er ekki ljóst á þessari stundu. Ef sam- komulag næst um skynsamlega kjarasamn- inga ætti frekari lækkun nafnvaxta svo og lækkun raunvaxta að vera í sjónmáli. Með skynsamlegum kjarasamningum er átt við að aðilar vinnumarkaðarins komi sér fyrst og fremst saman um tvennt: Annars vegar að hækka laun þeirra sem minnst bera úr býtum og hins vegar að viðhalda þeim kaupmætti sem þegar hefur náðst. Launamisréttið í landinu má ekki aukast meira en orðið er og þess vegna kemur sterklega til greina að hækka laun hlutfallslega upp að ákveðnu marki, en hækka laun þar fyrir ofan minna eða alls ekki neitt. Kjarasamningar sem gera meira en að tryggja núverandi kaupmátt eru óraunhæfir og til þess eins fallnir að auka verðbólguna og þar með þann efnahags- vanda sem við er að glíma. Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þeirri staðreynd að mikil verðbólga kallar á háa vexti og háir vextir auka svo aftur verð- bólguna sem fyrir er. Þessi víxlverkun er óhjákvæmileg og hefur í raun myndað full- komna hringrás í íslensku efnahagslífi. Með vaxtalækkuninni nú er stigið mikilvægt skref út úr þessum vítahring. Þar til í ljós kemur með hvaða hætti kjara- samningar verða, halda forráðamenn pen- ingastofnana að sér höndum með frekari vaxtalækkanir. Sú vaxtalækkun sem kom til framkvæmda í gær, hefur ekki áhrif á raun- vextina, en þeir gætu lækkað í náinni framtíð ef rétt verður haldið á málum. Vaxtaokrinu, sem verið hefur við lýði á innlendum fjár- magnsmarkaði síðustu misseri, verður að linna. BB. Jón Halldór Hannesson: Heilbrigði og ham- ingja með íhugun Á síðastliðnu ári voru haldin nokkur námskeið í innhverfri íhugun á Akureyri á vegum íslenska íhugunarfélagsins. Inn- hverf íhugun hefur jafnan verið kynnt sem tækni er virkjar dýpri og máttugari svið huga okkar og leiðir þannig til skýrari hugsunar og árangursríkari athafna. Nýjustu rannsóknir á áhrifum þessarar auðstunduðu sjálfs- þroskaaðferðar benda til þess að hér geti verið á ferðinni ein mátt- ugasta forvarnar aðferð sem þekkt er. í októberhefti hins virta alþjóðlega læknarits „Psychoso- matic Medicine" birtist grein þar sem leidd voru rök að þessu. Samkvæmt greininni sýndi rannsókn á sjúkratrygginga- skýrslum hjá bandarísku trygg- ingafyrirtæki að iðkendur inn- hverfrar íhugunar leituðu 87% sjaldnar til læknis vegna hjarta- sjúkdóma, 55% sjaldnar vegna æxla og 30% sjaldnar vegna smit- sjúkdóma borið saman við sam- bærilega viðmiðunarhópa. (Rannsóknin náði til áranna 1981-1985). Munurinn á iðkend- um og öðrum virtist aukast með árunum. Þannig leituðu iðkendur innhverfrar íhugunar á aldrinum 19-39 ára sér læknisaðstoðar 50% sjaldnar en viðmiðunarhópur, en iðkendur eldri en 40 ára leituðu sér læknisaðstoðar 70% sjaldnar en sambærilegur hópur, eins og sjá má á súluritinu. í raun ættu þessar niðurstöður ekki að koma svo ýkja mikið á óvart því gerðar hafa verið um 350 rannsóknir á íhuguninni og sýna þær m.a. að aðferðin lækkar blóðþrýsting (Psychosomatic Medicine, 1975), minnkar kól- estrolmagn (Journal of Human Stress, 1979), dregur úr streitu- C 'O x: eð c 5 Heimsóknir til lækna 250 JK 200 C 'S 150 o o o 100 r—H 50 Viðmiðunar- •hópur Viðmiðunar- hópur Viðmiðunar- hópur Iðkend- ur Ií 40+ (Heimild: Medical Care Utilization and the Transcendental Meditation Program, Dr. D. Orme-Johnson, í Psychosomatic Medicine sep/okt. 1987) Um 80-100 manns heimsóttu Hitaveitu Akureyrar um hclgina. Mynd: RPB Opið hús hjá Hitaveitunni: Gestir fóru fróðari heim Um síðustu helgi var opið hús hjá Hitaveitu Akureyrar í tilefni Norræns tækniárs 1988. Gafst þá almenningi kostur á að koma og sjá hvaða starf- semi fer þar fram. Um 80-100 manns komu í heimsókn þennan dag, en að sögn Franz Árnasonar hitaveitu- stjóra, hefðu þeir gjarnan viljað fá meiri aðsókn. „í raun er hitaveita mest neðan- jarðar, en fólk gat séð dælustöðv- arnar og borholurnar, eða réttara sagt þann búnað sem þar er ofan á. í kyndistöðvunum eru bæði varmadælur og katlar sem hægt var að skoða. í dælustöðinni í Þórunnarstræti slær svo hjarta veitunnar og þar er kerfinu stýrt. Þangað gafst fólki kostur á að koma og fræðast um hvernig veit- unni er stýrt.“ Franz sagðist ætla að fólk hafi farið fróðara heim þennan dag og að þeir sem komu hafi verið ánægðir með heimsóknina. VG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.