Dagur - 23.02.1988, Blaðsíða 8

Dagur - 23.02.1988, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 23. febrúar 1988 Opnir dagar í Verkn í dag hefjast Opnir dagar í Verkmenntaskólanum á Akur- eyri. Skólafélag VMA stendur fyrir dagskrá þessara daga en í raun fæddist hugmyndin fyrst á kennarastofu skólans. Viðamikil dagskrá hefur verið sett upp og geta nemendur gert sitt af hverju, sér til skemmtunar, næstu fjóra dagana. En hér er hreint ekki um að ræða neitt frí í skólanum enda hafa þeir sem að undirbúningi hafa staðið búið svo um hnúta að fólk fær fjarvistarstig ef það mætir ekki í skólann og jafnt kennurum sem nemendum ber skylda til að taka þátt í dagskránni. Á meðan á þessum dögum stendur verður gefið út dagblað í skólanum sem gegnir því ágæta nafni Jón Krukkur. Reyndar þjófstörtuðu þeir Krukksmenn, gáfu blaðið út í fyrsta sinn í gær og verður gefið út fram á föstudag. Einnig verður sett upp útvarpsstöð í skólanum, Útvarp VMA, sem sendir út frá þriðjudegi til föstudags frá kl. 8 til kl. 24. Þessar sendingar munu nást um allan bæ og munu bæjarbúar geta fylgst með dagskrá Opnu daganna í gegnum Útvarp VMA. Er okkur bar að garði nú fyrir helgina var undirbúningur í fullum gangi og dagskráin nánast búin að fá á sig endanlega mynd. Mikill áhugi virtist fyrir þessari uppákomu í félagslífinu enda hér á ferð nýmæli í skólastarfinu. En dagar sem þessir þurfa mikinn undirbúning og því munu nemendur VMA sjá árangur undirbúningsstarfsins nú þegar þessum Opnu dögurn er ýtt úr vör. Boðið upp á jjölbreytta dagskrá Dagskrá Opnu daganna í VMA verður mjög fjölþætt. Dag- skráin stendur frá þriðjudags- morgni til föstudagskvölds en þá lýkur Opnu dögunum með furðufataballi. Þó brugðið sé með þessu út af hefðbundinni stundaskrá þá mun samt verða iítillega stuðst við hana þar sem kennarar munu hafa nafna- kall og sjá til að fólk mæti í skólann. Þriðjudagur Opnu dagarnir verða settir í dag kl. 8.15. Kennarar taka nafnakall kl. 8.30 og síðan er stundaskrá umbylt fram að hádegi og nemendum gefst kostur á að kynna sér deildir skólans. Eftir hádegi fara nemendur í skíðaferð í Hlíðarfjall þar sem 2. bekkur sér um að veita kakó og kleinur og rennur ágóði af veitingasöl- unni í ferðasjóð bekkjarins. Dagskrá þessa fyrsta dags Opnu daganna lýkur með kvöldvöku sem fram fer á sal skólans. Þar mun m.a. leikkonan Sunna Borg lesa úr verkum Kristjáns frá Djúpalæk. Miðvikudagur 7 Nemendur byrja miðvikudaginn með hoppi og aerobic æfingum með Ásdísi Karlsdóttur í íþrótta- höllinni. Þessi dagur telst heilsu- dagur og verða nemendur þá ein- ungis að neyta grænmetis og ann- arra hollustufæðutegunda. Þegar nemendur hafa lokið æfingum verður boðið upp á dagsferð í Bændaskólann á Hólum í Hjalta- dal. Frá kl. 10 til klukkan 14 munu nemendur fara til skiptis á skauta eða taka þátt í lúdó, skák eða ólsen ólsenkeppni. Eftir hádegi verður bekkja- keppni í ræðumennsku. Meðan á keppninni stendur mun fara fram fundur um menningarbæinn Akureyri. Framsögumenn á þess- um fundi verða Jón Hlöðver Áskelsson skólastjóri Tónlistar- skólans, Helgi Vilberg skólastjóri Myndlistaskólans, Pétur Einars- son leikhússtjóri og Sigurður Hallmarsson fræðslustjóri. Full- trúi menningarmálanefndar bæjarins verður Bárður Halldórs- son og Ingólfur Ármannsson menningarmálafulltrúi bæjarins heldur einnig erindi á fundinum. Þórey Eyþórsdóttir mun kynna nytjalist og Bolli Gústavsson mun tala um bókmenntir. Á meðan þessu fer fram mun nemendum verða gefinn kostur á að bregða sér í útreiðartúr. Síð- degis munu verða námskeið í framköllun og stækkun Ijós- mynda, dansnámskeið á vegum dansskóla Sigvalda og einnig snyrtinámskeið. Fyrir þá sem áhuga hafa á að svífa um loftin blá verður haldin kynning á fallhlífarstökki kl. 20 en um kynninguna sér Sigurður Dagblaðið Jón Krukkur Sigfús Aðalsteinsson, ritstjóri Jóns Krukks undirbýr útkomu blaðsins í gær kom í fyrsta sinn út dagblaðið Jón Krukkur en ætlunin er að blaðið verði gefið út á Opnu dögunum. Blaðinu verður dreift í skólanum um kl. 10 á morgnana og hefur það að geyma allar nýjustu fréttir af gangi mála á Opnum dögum. Tíu manna ritstjórn sér um skrif og umsjón með blað- inu. Áætlað var að prenta um 1000 eintök af fyrsta tölublaðinu en gert er ráð fyrir að síðan verði prentuð 800-1000 eintök. Blaðið stendur undir sér fjárhags- lega með auglýsingum en auglýsingar hafa verið seldar í samvinnu við Útvarp VMA. Sigfús Aðalsteinsson er ritstjóri Jóns Krukks. JÓH Málfundafélag skólans hefur með höndum skipulagningu fyrir ræðukeppni si undirbúningurinn í fullum gangi. Baldursson fallhlífarstökkvari. Á sama tíma verður boðið upp á námskeið í þurrblómaskreyt- ingu. Fimmtudagur Á fimmtudagsmorgun mun verða opið hús í raungreinadeild skól- ans og geta nemendur þá kynnst starfinu á þeim bænum. Pá mun einnig verða haldinn fyrirlestur um verslunarbæinn Akureyri en framsögumaður verður Porsteinn Thorlacius, eigandi bókaverslun- arinnar Eddu á Akureyri. Að fyrirlestrinum loknum mun nemendum gefast kostur á að spreyta sig í félagsvist og billiard. Einnig verður boðið upp á kynningarferðir bæði í Mjólkur- samlag KEA og leikhúsið áður en nemendur ganga til hádeg- isverðar. Eftir hádegi heldur ræðu- keppnin áfram og matvælabraut verður kynnt. Kynning matvæla- brautar er raunar eini dagskrár- liður Opnu daganna sem opinn verður almenningi. Síðla fimmtudags veður áfram- haldandi danskennsla, sauma- og snyrtinámskeið en kl. 20 hefst fundur um trúmál. Þar munu verða fulltrúar nokkurra trúar- bragða sem skiptast á skoðununt og svara spurningum. Búast má við fjörugum fundi og er ætlunin að reyna að vera með útsendingu frá fundinum í Útvarpi VMA sem starfrækt verður á Opnu dögunum. Á miðnætti verður allsérstæður dagskrárliður sem heitir því „hryllilega" nafni Horror Show. Þá er ætlunin að allur nemenda- skarinn fari í einhvers konar rat- leik í Kjarnaskógi en hvaða þrautir bíða þeirra þar er best að segja sem minnst um. Föstudagur Föstudagurinn hefst á stjórnmálaflokkakynningu. Þing- menn og bæjarfulltrúar ætla að „Verðum með a himins og jari - segir Jónas Þór Guðmundsson annar útvar Jónas Þór Guðmundsson er annar af nýjustu útvarpsstjór- um bæjarins. Hann og félagi hans Arni Freysteinsson hafa það hlutverk með höndum á Opnu dögum VMA að stjórna Útvarpi VMA sem hefur göngu sína kl. 8 í dag. Útsend- ingar Útvarps VMA munu nást um allan bæ og hugsan- lega út fyrir bæinn en sent verður út þessa fjóra daga frá kl. 8 á morgnana til miðnættis á kvöldin á FM-102,8. Jónas Þór segir að um 10 manns komi til með að vinna við Útvarp VMA en það eru virkir félagar í tónlistarfélagi skólans (FÁT). Tæki til útsendinganna eru fengin hjá Pósti og síma en æskulýðsráð bæjarins hefur verið innan handar við að útvega hluta tækjabúnaðarins. Plötur koma hins vegar úr einkasöfnum dag- skrárgerðarmanna og einnig mun skemmtistaðurinn Zebra leggja til plötur. Allt í beinni útsendingu „Allir þættir munu tengjast dagskrá Opnu daganna. Þarna verða sagðar lauslegar fréttir af einstökum dagskrárliðum en annars fá menn mjög frjálsar hendur. Við göngum bara úr skugga um að handrit séu skrifuð á góðu íslensku máli en að miklu leyti mun efnið byggjast upp á góðri tónlist,“ segir Jónas Þór. - Verða þarna þættir t.d. um einstaka tónlistarmenn eða ein- stakar tónlistarstefnur?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.