Dagur - 18.04.1988, Blaðsíða 1

Dagur - 18.04.1988, Blaðsíða 1
Menntaskólinn á Akureyri: Allt frosið í Útgarði Útgarður, skáli Menntaskól- ans á Akureyri í Yaðlaheiði, hefur verið lokaður frá því í lok febrúar. Þar er allt frosið sem frosið getur að heita má, vatnið frosið í leiðslunum og allt fast í rotþrónni þannig að ekki hefur verið hægt að nota salerni í skálanum. Af heil- brigðis- og mannúðarástæðum var Útgarði því lokað. „Það er metri ofan á rotþróna og þegar jörð er frosin þýðir ekki annað en fara með loftpressu á staðinn en því var ekki við komið, auk þess sem hér er um kostnaðarsamar framkvæmdir að ræða. Við verðum því að bíða eftir því að frost fari úr jörðu en ég taldi ekki forsvaranlegt að hafa skálann opinn við þessar aðstæður,“ sagði Jóhann Sigur- jónsson skólameistari. Menntaskólanemar hafa feng- ið tveggja daga frí á vorönn til þess að fara í skálaferð en ekki verður um frekari ferðalög að ræða á þessu misseri. Jóhann sagði þó að stuttar útivistarferðir í góðu veðri gætu komið í staðinn fyrir þetta frí. Skálinn hefur auk þess verið notaður talsvert á haustönn, en þá ekki á skóla- tíma. Yfir sumartímann er hann hins vegar mannlaus og þegar sal- erni eru ekki notuð hafa skapast erfiðleikar þegar frysta tekur, þó aldrei neitt í líkingu við ástandið eins og það er núna í skálanum. SS Vegagerð bóndans á Siglunesi: Kemur á borð bæjar- stjómar í maí „Ég á von á því að eitthvað fari að gerast í málinu nú alveg á næstunni og það muni jafnvel taka óvænta stefnu. Nei! Ég hef nú ekki miklar áhyggjur út af þessum undirskriftalista, held að það sé heldur ómerkilegt plagg þegar á því er að fínna nöfn barna allt niður í 11 ára. En málið er á viðkvæmu stigi og ég vil ekki tjá mig frekar,“ sagði Stefán Einarsson bóndi á Siglunesi í samtali við Dag. I vetur barst bæjarstjórn Siglu- Sæluvikan fór vel í fólk fjarðar listi með undirskriftum 178 aðila, bæði Siglfirðinga og burt- fluttra. Þar er vegarlagningunni frá Siglunesi til bæjarins mótmælt. Á sl. hausti var samþykkt að taka landsvæðið austan Siglu- fjarðar, þar sem Stefán bóndi á Siglunesi fyrirhugar vegagerð sína, til aðalskipulags Siglufjarð- arkaupstaðar. Að sögn Isaks Ólafssonar bæjarstjóra er málið nú hjá bæjartæknifræðingi og byggingar- og skipulagsnefnd til umfjöllunar. Bárust 7 eða 8 athugasemdir þegar skipulagstil- lagan var auglýst og á Isak ekki von á að málið verði komið á borð bæjarstjórnar að nýju fyrr en í fyrsta lagi um 10. maí nk. -þá :: - ■ |j|j( llilill ■ 1181!!! : • Mynd: TLV Guðrún H. Krístjánsdóttir varð þrefaldur íslandsmeistari á Skíðamóti íslands. Skíðamóti íslands lauk á Akureyri í gær: Veðurguðimir settu marií sitt á mótshaldið Keppni á 50. Skíðalandsmóti íslands lauk í Illíðarfjalli við Akureyri í gær. Mótið var sett í Akureyrarkirkju á fímmtu- dagskvöld en keppni hófst á föstudag og stóð linnulaust þar til seinni partinn í gær. Kepp- endur voru um 60 talsins og komu víðs vegar af landinu. Veðurguðirnir settu mark sitt á mótshaldið og komu m.a. í veg fyrir að keppni gæti hafist á fimmtudag eins og til stóð. Ekki var hægt að keppa í göngu þá og keppni í alpagreinum sem hefjast átti á föstudag, varð einnig að fresta um einn dag. Engu að síð- ur tókst að ljúka mótinu í gær en þá var keppt í boðgöngu, nor- rænni tvíkeppni, stökki, alpa- greinum og samhliðasvigi. Mótiö þótti þó hafa tekist mjög vel en því lauk með verðlaunaaf- hendingu og lokahófi í Sjallanum í gærkvöld. KK Siglufjörður: Skemmdir af völdum snjóflóða - borhola í Skútudal óvirk eftir snjófióð Sæluviku Skagfírðinga lauk um helgina. Mikill fjöldi fólks sótti danslciki í héraðinu á laugardagskvöld, en þá var dansað í 3 húsum á Sauðár- króki og í Miðgarði í Varma- hlíð. Að sögn lögreglunnar á Sauð- árkróki fóru Sæluvikuskemmtan- irnar hið besta fram og var helgin ekkert frábrugðin venjulegri helgi þó svo að mikið líf væri í bænum. Veður hefur verið gott síðustu daga en kalt, þangað til í gær að sólin braust fram á nýjan leik eftir að hafa verið víðs fjarri um nokkurt skeið. Algjörlega snjólaust er nú í vestanverðum Skagafirði og hafa vegfarendur sem komið hafa vesturfyrir Tröllaskaga haft á orði, að þaðsé eins og að koma í aðra veröld. -þá Nokkur snjóflóð hafa fallið á Siglufírði um og fyrir helgina en flest þeirra án þess að skemmdir hafí hiotist af. Þó er ein borhola Hitaveitu Siglufjarðar óvirk eftir að snjóflóð féll á hana aðfara- nótt föstudags og einnig féll flóð á skíðalyfturnar í Hóls- dal og fór önnur lyftan með fíóðinu niður á jafnsléttu. Mikil snjókoma var á Siglu- firði fyrir helgina eins og annars staðar á Norðausturlandi. Á laugardaginn þegar óveðrið gekk niður var farið upp í Skútudal þar sem borholur hita- veitunnar eru og kom þá í ljós að flóð hafði fallið á eina holu veitunnar. Timburskúr var yfir holunni sem lagðist saman undan flóðinu og þak hans barst nokk- ur hundruð metra í burtu. Dæla sem var á holunni brotnaði af og er því holan óvirk. Þetta var ein af þremur holum hitaveit- unnar sem var virkjuð en hinar holurnar tvær sluppu við skemmdir. Ekki verður hægt að huga að viðgerð á holunni fyrr en í vor þegar snjóa leysir þar sem erfitt er að koma tækjum upp í Skútudal. Talið er að hol- urnar tvær sem nú eru virkar geti annað eftirspurn eftir heitu vatni þótt hugsanlega verði að spara vatn á mestu álagstímum. Vestanmegin í Hólshyrnu féll einnig snjóflóð aðfaranótt föstudagsi Flóðið féll á tvær skíðalyftur og bognuðu efstu tvö möstur stærri lyftunnar en hin lyftan, sem er ekki á steypt- um möstrum, fór í heilu lagi niður á jafnsléttu. Ljóst er að hér er um töluverðar skemmdir að ræða. Þegar haft var samband til Siglufjarðar undir kvöld í gær höfðu að minnsta kosti 8 snjó- flóð fallið en aðrar skemmdir ekki orðið á mannvirkjum. JÓH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.