Dagur - 18.04.1988, Síða 16

Dagur - 18.04.1988, Síða 16
mm Akureyri, mánudagur 18. aprfl 1988 TEKJUBREF■ KJAR4BRÉF FJARMAL ÞIN - SERGREIN OKKAR TJARFESTINGARFEIAGID Ráðhústorgi 3, Akureyri Afurðir mjólkurkúa: Síðasta ár sló öll met Afurðir eftir hverja kú á Is- landi hafa aldrei verið meiri en á síðasta ári. Hver mjólkurkýr skilaði að meðaltali 50 kg meira en árið áður en át á sama tíma 20 kg minna af kjarnfóðri. Afurðir eftir íslenskar mjólkurkýr hafa auk- ist á síðustu árum og voru á síðasta ári 6% meiri en 1980. Starfsmenn Búnaðarfélags íslands hafa nú unnið úr skýrsl- um nautgriparæktarfélaga bænda fyrir árið 1987. Skýrslufærðar erú um 60% af mjólkurkúm lands- manna og samkvæmt útreikning- um eru afurðir eftir hverja-kú að meðaltali 3986 kg. Skýringar á vaxandi afurðum kúnna eru m.a. kynbætur á stofn- inum, gott skýrsluhald, nákvæm- ari meðhöndlun gripa og bætt heyverkun. Á sama tíma og afurðir eftir hverja kú aukast, minnkar kjarnfóðurgjöf. Kjarn- fóðurgjöf á árskú árið ,1983 var að meðaltali 807 kg en hefur minnkað niður í 532 kg á árskú árið 1987. Þetta þýðir 34% minni kjarnfóðurgjöf á þessum tíma. Flestir skýrsluhaldarar meðal kúabænda eru í Eyjafirði eða 162 en næstflestir eru í Árnessýslu eða 152. Stærstu mjólkurbúin eru í Eyjafirði með að meðaltali 27,3 árskýr en í Árnessýslu eru aö meðaltali 27 árskýr á hverju búi. JÓH Akureyri og Húsavík: Aðalskoðun bifreiða gengur bærilega Aðalskoðun bifreiða fer nú fram bæði á Akureyri og á Húsavík. Þetta er annatími hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins, en bifreiðaeftirlitsmenn þurfa að skoða þúsundir bíla á nokkrum mánuðum. Á Húsavík hófst aðalskoðun bifreiða 22. febrúar, og lýkur henni 29. apríl. Skoðun hefur gengið vel, ef frá eru taldir nokkrir dagar þar sem hún hefur fallið niður vegna veðurs. Sigurður Indriðason, fulltrúi hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins á Akureyri, sagði að aðalskoðun hefði hafist 5. apríl, og er reiknað með að henni ljúki 10. júní. Á Dalvík verður skoðað frá 13. til 15. júní, en að því loknu munu bifreiðaeftirlitsmenn fara til Ólafsfjarðar og Siglufjarðar til að skoða vélknúin ökutæki. Um þessar mundir er búið að skoða númer upp að A-2700 á Akur- Póstur og sími: Hluti fjölskyldunnar í Stórugröf í heimsókn á fæðingardcildinni á Sauðárkróki, á 20 ára hjúskaparafmælisdegi Guðrúnar og Sigfúsar. „Það er kvóti á öllu nema bameignum" - segir húsfreyjan í Stórugröf eftir að hafa átt 9. barnið „Nei okkar bú telst nú ekki stórt. Því það er kvóti á öllu í dag, nema barneignum,“ sagði Guðrún Gunnsteins- dóttir húsfreyja í Stórugröf syðri í Skagafirði sem á þriðjudagskvöldið síðasta eignaðist sitt 9. barn, 13 marka stúlkubarn. Það mun- aði ekki miklu að barnið fæddist á 20 ára hjú- skaparafmæli þeirra hjón- anna Guðrúnar og Sigfúsar Helgasonar, en hann var næsta dag. Nokkurs uggs hefur gætt hér á landi vegna fækkandi barnsfæðinga, og t.d. hefur það ásamt öðrum breytingum í sveitum orðið til þess að erfið- lega hefur gengið að halda upp eðlilegu skólastarfi víða. En hjónin í Stórugröf syðri verða ekki sökuð um það. Guðrún sem er 38 ára gömul segist hafa mjög gaman af börn- um og sé alveg til í að eiga fleiri. Aðspurð hvort að það sé ekki óskaplega dýrt að eiga svona mörg börn segir hún: „Ég veit það ekki. Ekki meðan þau eru ung, og líklega er heldur ódýr- ara að vera með börn í sveit en kaupstað, fyrir utan að maður er miklu frjálslegri og öruggari með þau þar. Það er ekki fyrr en þau þurfa að fara burt í skóla sem maður fer að finna fyrir því að ráði. Tvö af okkar börnum eru núna fyrir sunnan í skóla og þurfa að leigja sér þar húsnæði og sjá fyrir sér. Annars eru þau elstu farin að vinna og eru ákaf- lega dugleg að bjarga sér.“ Þetta var reyndar 10. barnið sem Guðrún gengur með, því þau Sigfús misstu fyrsta barn sitt í fæðingu. Eiga þau 6 dætur og 3 syni. Börnin eru á aldrin- um; 19, 18,17, 15, 12,10, 8, 3ja og svo nýfædda stúlkan. Tvö þau fyrstu eru fædd á sama árinu og svo skemmtilega vill til að þrjú systkinanna eiga afmæli 26. mars. -þá Stórmarkaður KEA: Framkvæmdum frestað til næsta árs? Ekki hefur verið ákveðið hvort ráðist verði af fullum krafti í byggingu stórmarkaðs KEA við Glerárgötu í sumar eða hvort framkvæmdum verði frestað til næsta árs. Skilyrði til fjárfestinga þykja óhagstæð um þessar mundir, fjármagn dýrt því vextir eru háir. Valur Arnþórsson kaupfélags- stjóri sagði að þetta mál væri í athugun, m.a. þyrfti að kanna hvað áhrif virðisaukaskattur hefði á fjárfestingar á næsta ári. Hann sagði að ýmislegt benti til þess að það gæti orðið hagstæð- ara að fjárfesta á næsta ári, t.a.m. væri í bígerð að fella niður skatta af erlendum lánum um næstu áramót. Þá sagði Valur að eftir væri að finna raflagnadeild kaupfélagsins samastað og það mál þyrfti að leysa áður en ráðist verður í byggingu stórmarkaðarins. SS Norðurland: Flestir vegir færir Umferö á Norðurlandi gekk nokkuö vel um helgina. Á laugardaginn gekk veður niður og var strax hafist handa við snjómokstur. Hreinsað var frá Akureyri til Húsavíkur, Mývatnssveitar og Dalvíkur. Þá var Öxnadalsheiði rudd, svo og vegurinn til Siglufjarð- ar. Ekki var ráðist í að moka með ströndinni austur frá Húsavík þar sem enn var vont veður á þessum slóðum. Dansleikjahald í tengslum við Sæluviku á Sauðárkróki gekk hið besta fyrir sig. Svipaða sögu er að segja af öðrum dansleikjum á Norðurlandi um helgina. Á laugardaginn slasaðist mað- ur á fæti er bifreið og snjósleði skullu saman á Akureyri. Önnur óhöpp sem urðu í umferðinni á Akureyri um helgina voru minni- háttar. JÓH Flutningsgeta símakerfisins stóreykst - Ijósleiðarastrengur milli Akureyrar og Reykjavíkur á næsta ári Norðlendingar geta vel við unað í símamálum, að sögn Ársæls Magnússonar, um- dæmisstjóra Pósts og síma á Akureyri. Undanfarið ár hefur verið unnið að veigamiklum og umfangsmiklum framkvæmd- um á vegum stofnunarinnar, og á þessu ári og því næsta verða nánast stökkbreytingar á tæknibúnaði í umdæminu með tilkomu Ijósleiðara milli Reykjavíkur og Akureyrar, sem getur flutt 12 þúsund sambönd. Að sögn Ársæls hafa fjárveit- ingar til stofnunarinnar í heild verið skornar niður en þó er bjart útlit varðandi framkvæmdir norðanlands næstu mánuðina og á næsta ári. Stórstígasta breyting- in er fyrirhuguð framkvæmd við lagningu ljósleiðarastrengs milli Sauðárkróks og Akureyrar um Dalvík, en til þess verks er áætl- að að verja 68 milljónum króna. Þegar ljósleiðarinn er kominn í gagnið á næsta ári verður núver- andi örbylgjukerfi haft til vara. Öryggi símakerfisins verður mun meira og flutningsgeta þess stór- eykst, en um er að ræða 6 ljós- leiðarastrengi og getur hver strengur flutt yfir 2000 sambönd. Á þessu ári er áætlað að verja 14 milljónum kr. til jarðsíma- lagna í þéttbýlisstöðum norðan- lands, 20 milljóni'r fara í nýbygg- ingu Póst og síma á Blönduósi, áætlanir eru uppi um endurbætur á jarðsímalögn til Grenivíkur eða, að öðrum kosti, örbylgju- sambandi yfir fjörðinn við Dalvík ef ljósleiðarinn verður tekinn þangað. Síðla sumars verður „Flakkar- inn“ fluttur frá Egilsstöðum til Dalvíkur, og verða Dalvíkingar með varastöðina þar til þeir fá stafræna sfmstöð á næsta ári, en hún mun kosta um 11 milljónir króna. Akureyringar eiga von á nýrri stafrænni langlínumiðstöð við símstöðina í bænum fyrir lok næsta árs. Hér er um merkan áfanga að ræða í símaþjónustu, að sögn Ársæls, og skapar lang- línumiðstöðin aukna möguleika í þjónustu samhliða ljósleiðaran- um. Kostnaður er áætlaður 22 milljónir króna. Hvað farsímakerfið varðar þá er búið að tengja Siglufjörð við kerfið, en á árinu munu Fljótin, Ólafsfjörður, Námaskarð og Öxarfjörður tengjast kerfinu. EHB

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.