Dagur - 18.04.1988, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 18. apríl 1988
Aðalfundur
Sjálfsbjargar á Akureyri og nágrenni
veröur haldinn að Bjargi, Bugöusíöu 1, þriðjud. 26.
apríl kl. 20.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á landssambandsþing.
Önnur mál.
Mætum vel - Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Flug/siglmg - bffl 1988
- fjölmargir möguleikar -
Bjóðum upp á námskeið fyrir ferðalanga
sem hyggjast ferðast um Evrópu.
1. Undirbúningur feröar.
2. Fjárhagsáætlun.
3. Skipulagning, áfangar og gististaðir.
4. Notkun korta og upplýsingaöflun.
5. Helstu sérákvæöi á umferð erlendis.
6. Akstur á hraðbrautum.
7. Nokkrar hagnýtar ráðleggingar.
Námskeið verður haldið laugardaginn 23. apríl á
Hótel KEA, Akureyri kl. 10.30-16.00.
Upplýsingar veittar, ásamt innritun á Ferðaskrifstofu
Akureyrar, sími 96-25000.
FLUCLEIDIR
FRI
Ferðaskrifstofa ríkisins
Námskeiðið er haldið í samráði við
Umferðarráð.
V
J
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hamragerði 6, Akureyri, þingl. eigandi Árni
Jónsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3.
hæð, Akureyri föstud. 22. apríl '88 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóðs og Bæjar-
sjóður Akureyrar.
Bæjarfogetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Faxaborg 5, Hesthús, Akureyri, talinn eigandi
Þorsteinn Björnsson; fer fram í dómsal embættisins Hafnar-
stræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 22. apríl '88 kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Steingrímur Þormóðsson hdl. og inn-
heimtumaður ríkissjóðs.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Lækjargötu 3, e.h. Akureyri, þingl. eigandi
Ragnheiður Pálsdóttir, fer fram í dómsal embættisins Hafnar-
arstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 22. apríl '88 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Bæjarsjóður Akureyrar og Gunnar
Sólnes hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Kaupvangsstræti 21, neðri hæð, Akureyri, þingl.
eigandi Rafsegull hf., fer fram í dómsal embættisins Hafnar-
stræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 22. apríl '88 kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru: Bæjarsjóður Akureyrar cg innheimtu-
maður ríkissjóðs.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
íþróftir
Leikið um sæti í úrvaisdeiid:
Þórsurum tókst ekki að tryggja
sér áframhaldandi sæti í
úrvalsdeild að ári, er þeir
mættu Stúdentum tvívegis á
Akureyri um helgina í auka-
keppni um sætið. Þórsarar
unnu fyrri leikinn sem fram fór
í Höliinni á laugardagskvöld
en í gær er Iiðin mættust í
Skemmunni, snéru Stúdentar
dæminu við og sigruðu. Liðin
þurfa því að mætast í þriðja
leiknum í vikunni og fer hann
fram í Reykjavík.
Liðið sem fyrr sigrar í tveimur
leikjum leikur í úrvalsdeild að ári
og því eiga Þórsarar erfiðan leik
á útivelli fyrir höndum. Stúdent-
ar höfnuðu í öðru sæti 1. deildar
en Þórsarar urðu næst neðstir í
úrvalsdeild í vetur.
í fyrri leiknum á laugardags-
kvöld, sem var afspyrnuslakur,
náðu Þórsarar strax undirtökun-
um og höfðu 15 stiga forystu í
leikhléi, 43:28. í síðari hálfleik
minnkuðu gestirnir fljótlega
muninn og síðustu 10 mín. leiks-
ins var hann oftast 4 stig. En
Þórsarar voru sterkari í lokin og
sigruðu 90:81.
í leiknum í gær var jafnræði
með liðunum framan af fyrri hálf-
leik og jafnt nánast á öllum
tölum. En í lokin náðu Þórsarar
að komast yfir og Ieiddu 37:31 í
leikhléi. Þórsarar höfðu 2 stiga
forystu nánast allan seinni hálf-
leikinn og þegar skammt var til
leiksloka var staðan 61:59. En í
lokin skoruðu Stúdentar 6 stig á
móti 1 stigi Þórsara og sigruðu í
leiknum 65:62.
Leikurinn í gær var einnig
mjög lélegur og víst er að Þórsar-
ar þurfa heldur betur að taka sig
saman í andlitinu fyrir þriðja
leikinn, ef ekki á illa að fara.
Leikir Þórs og ÍS um helgina voru lítið augnayndi. Þessi mynd er úr fyrri
hálfleiknum á laugardagskvöld. Mynd: gb
Þór og ÍS þurfa að
mætast í þriðja sinn
- Liðin unnu sinn ieikinn hvort á Akureyri um heigina
Rugl á Wembley
- Forest sigraði á afmælismótinu - Tranmere kom á óvart
- Rislítil afmælishátíð
Vegna 100 ára afmælis enska
knattspyrnusambandsins voru
engir deildaleikir um helgina,
en sambandið hélt knatt-
spyrnumót á Wembley. 16
félög tóku þátt í mótinu eftir
að hafa unnið sér rétt til þátt-
töku með góðri frammistöðu í
deildarleikjum á ákveðnu
tímabili fyrr í vetur. Á laugar-
dag fóru fram tvær umferðir,
leiktími 2x20 mín. og víta-
spyrnukeppni ef um jafntefli
var að ræða.
Óvænt úrslit urðu strax í 1.
umferð, Liverpool gerði marka-
laust jafntefli gegn Newcastle, en
Nigel Clough og félagar hjá Forest
urðu sigurvegarar á afmælismótinu
á Wembley um helgina.
í vítaspyrnukeppninni mistókst
Steve McMahon að skora fyrir
liðið sem þar með féll úr keppni.
Wimbledon sem leikur til úrslita
gegn Liverpool í FA-bikarnum
féll einnig úr í 1. umferð og það
gegn 4. deildarliði Tranmere.
Eina mark leiksins skoraði Dave
Martindale með skoti í stöng og
inn á 27. mín.
Nottingham For. sigraði Leeds
Utd. auðveldlega með mörkum
Franz Carr á 6. mín. eftir þvögu,
Stuart Pearce úr vítaspyrnu eftir
brot á Nigel Clough og rétt fyrir
lokin braust Pearce í gegn og
renndi boltanum til Gary Parker
sem gerði þriðja mark liðsins.
2. deildar liðin Blackburn og
Áston Villa gerðu markalaust
jafntefli, en Villa komst áfram
eftir sigur í vítakeppni.
Everton komst áfram eftir
vítakeppni gegn 4. deildarliði
Wolves, Wayne Clarke skoraði
fyrst fyrir Everton en Robert
Dennison jafnaði síðan með
glæsilegu marki fyrir Wolves, en
það dugði ekki því Everton hafði
betri vítaskyttur og sigraði.
Manchester Utd. sigraði
Luton, Wigan úr 3. deild sigraði
Sunderland annað 3. deildarlið
og Sheffield Wed. hafði betur
gegn Crystal Palace. Allir þessir
leikir í 1. umferð.
í 2. umferð kom Tranmere enn
á óvart og sigraði lið Newcastle
2:0. Leik Aston Villa og Notting-
ham For. lauk 0:0, en Forest sigr-
aði í vítakeppni. Everton féll fyr-
ir Manchester Utd. þar sem
Steve Bruce gerði eina mark
leiksins og loks sigraði Sheffield
Wed. Wigan.
Undanúrslitin og úrslitaleikur-
inn sjálfur fóru síðan fram á
sunnudeginum og var leiktíminn
þá 2x30 mín. Tranmere náði tví-
vegis forystunni gegn Notting-
ham For. Ian Muir var að verki í
bæði skiptin, en Nigel Clough og
Franz Carr jöfnuðu jafnharðan
fyrir Forest. I vítakeppninni var
það síðan Muir sem mistókst að
skora fyrir Tranmere sem þar
með féll úr keppninni. Lið Tran-
mere var talið leika besta fótbolt-
ann í mótinu og eina liðið sem
komst vel frá leikjunum. Liðið
getur líka vel við unað þar sem
verðlaun þess námu f 30.000.
Sheffield Wed. sló síðan út lið
Manchester Utd. eftir að Utd.
hafði náð forystu, Mel Sterland
jafnaði út víti og Colin West
skoraði síðan sigurmarkið.
Úrslitaleikurinn sjálfur milli
Nottingham For. og Sheffield
Wed. var mjög slakur og lauk
honum án þess að mark væri
skorað, en Forest hafði betur í
vítakeppni og sigraði 3:2. Áhorf-
endur púuðu á leikmenn liðanna
sem ekki virtust nenna að leggja
sig fram í leiknum og keppniri öll
hin lélegasta. Gefið var upp að
samtals hefðu um 60.000 áhorf-
endur komið á Wembley, en þó
voru aldrei fleiri en 10.000 á
staðnum í einu og mun færri á
sjálfum úrslitaleiknum. Þ.L.A.