Dagur - 18.04.1988, Page 4
4 - DAGUR - 18. apríi 1988
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 660 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 60 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 465 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉSPÉTURSSON
(Reykjavlk vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERTTRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN JÓSTEINSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (Iþróttir), STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960),
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Fjáröflun til Skák-
sambands íslands
Fyrir skömmu var lagt fram á Alþingi frumvarp til
laga um fjáröflun til Skáksambands íslands. Fyrsti
flutningsmaður er framsóknarmaðurinn Guð-
mundur G. Þórarinsson, fyrrum forseti Skáksam-
bandsins en meðflutningsmenn þeir Albert Guð-
mundsson, Borgaraflokki og Steingrímur J. Sigfús-
son, Alþýðubandalagi. í frumvarpinu er gert ráð
fyrir að sérstakt gjald verði lagt á greiðslukort, 20
krónur á mánuði, og þeir peningar renni til Skák-
sambands íslands. Miðað við þann fjölda greiðslu-
korta sem er í notkun í dag, myndi þetta gjald skila
Skáksambandinu 1,5 milljónum króna í tekjur mán-
aðarlega.
Frumvarp þetta hefur fengið misjafnar undir-
tektir á Alþingi. Nokkrir þingmenn hafa sagt að
þeir séu því algerlega mótfallnir að nokkur skattur
verði lagður á greiðslukort yfirleitt. Aðrir hafa
brugðist vel við og eru tilbúnir til að veita frum-
varpinu brautargengi.
Frumvarp þremenninganna um 20 króna skatt á
notendur greiðslukorta á ekkert skylt við þær hug-
myndir sem fram hafa komið að láta korthafa sjálfa
greiða þann kostnað sem af notkun greiðslukorta
hlýst. Þótt það sé bæði sjálfsögð og eðlileg krafa,
hefur hún ekki enn komið fram í lagafrumvarpi á
Alþingi. Þó hefur verið sýnt fram á það að sá kostn-
aður sem hlýst af notkun greiðslukorta nemur um
5% af verði viðkomandi vöru og þjónustu. í lang-
flestum tilfellum er þessum kostnaði velt út í verð-
lagið og neytendur látnir borga brúsann, jafnt þeir
sem nota greiðslukort og hinir sem greiða út í
hönd. Margir bíða eftir því að þetta ranglæti verði
leiðrétt. Burtséð frá því, er frumvarp þingmann-
anna þriggja góðra gjalda vert. Það kom vel í ljós
eftir frækilega frammistöðu Jóhanns Hjartarsonar í
einvíginu við Korstnoj, hversu fjárhagur Skák-
sambands íslands er í raun bágborinn. Það hafði
ekki fjárhagslegt bolmagn til að standa undir
kostnaði við áframhaldandi þátttöku Jóhanns í
skákeinvígjunum. Einstaklingar og fyrirtæki komu
þá til hjálpar með því að efna til samskota.
Veik fjárhagsstaða Skáksambandsins kemur
ekki á óvart þegar haft er í huga að á fjárlögum
þessa árs fær það aðeins eina milljón króna til ráð-
stöfunar. Þeir peningar duga skammt, því gróskan
í skáklistinni hefur sjaldan eða aldrei verið meiri.
Sérstaða skáklistarinnar hér á landi er mikil og
fjárþörfin brýn. Ljóst er að engan munar um að láta
20 krónur af hendi rakna mánaðarlega til styrktar
svo góðu málefni. Hins vegar skipta þeir peningar
sköpum fyrir Skáksamband íslands og framgang
skáklistarinnar í landinu. Þingmenn ættu að hafa
það í huga þegar áðurnefnt frumvarp verður tekið
til afgreiðslu á næstu vikum. BB.
evróp
Hljómsveitin Boulevard frá Finnlandi.
Tommy Körberg frá Svíþjóö.
Scott Fitzgerald frá Bretlandi.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fer fram í
Dyflinni á írlandi laugardaginn 30. apríl nk. Ef að lík-
um lætur verða fáir á ferli utan húss hér heima meðan
á þeirri útsendingu stendur. Margir binda miklar vonir
við framlag íslands til keppninnar en reynslan hefur
kennt okkur að best er að gera sem minnstar væntingar
varðandi árangur íslands í söngvakeppninni. Öll sæti
ofan við það sextánda hljóta að að teljast góð! Sjón-
varpið mun í þessari viku kynna þau lög, sem keppa til
úrslita í keppninni. 21 þjóð tekur þátt að þessu sinni og
er ísland fyrst í röðinni. Lögin verða kynnt strax að
loknum fréttum og auglýsingum öll kvöld vikunnar, 2-3
lög í senn. Röð laganna er þessi:
1. ísland. Lagið heitir SÓKRA-
TES, eftir Sverri Stormsker, flutt
af Sverri og Stefáni Hilmarssyni
en þeir kalla sig BEATHOVEN.
2. Svíþjóö. Lagið heitir STAD I
LJUS, höfundur lags og texta er
Py Báckman en Tornmy Körberg
syngur.
3. Finnland. Lagið heitir
NAURAVAT SILMÁT
MUISTETAAN og er flutt af
hljómsveitinni Boulevard. Lagið
er eftir Pepe Willberg en textann
samdi Kirsti Willberg.
4. Bretland. lagið heitir GO og
er sungið af Scott Fitzgerald. Lag
og texti er eftir Julie Forsyth.
5. Tyrkland.
6. Spánn.
7. Holland.
8. ísrael.
9. Sviss. Lagið heitir NE PART-
ES PAS SANS MOI og er sungið
af Céline Dion. Höfundur Iags:
Atilla Sereftug. Texti: Nella
Martinetti.
10. írland.
11. Þýskaland. Lagið heitir
LIED FÚR EINEN FREUND
sungið af mæðgunum Maxi og
Chris Garden. Lag: Ralph Sieg-
el. Texti: Bernd Meinunger.
12. Austurríki. Lagið heitir LISA
MONA LISA og er sungið af
Wilfried Scheutz. Höfundar lags
og texta: Wilfried, Ronnie Herb-
holzheimer og Klause Kofler.
13. Danmörk. Lagið heitir KA’
DU SE HVA’ JEG SA’ og er
sungið af Kirsten Siggaard og
Sören Bundgaard. Lagið er eftir
Sören en texta skrifaði Keld
Heick.
14. Grikkland.
15. Noregur. Lagið heitir FOR
VÁR JORD. Söngvari er Karo-
line Kriiger, lagið er eftir Anita
Skorgan en texta samdi Erik
Hillestad.
16. Belgía.
17. Luxemburg. Lagið heitir
CROIRE og er flutt af söngkon-
unni Lara Fabian. Lag: Jacques
Cardona. Texti: Alain Garcia.
18. Ítalía.
19. Frakkland.
20. Portúgal. Lagið heitir VOLT-
AREI. Söngkonan Dora syngur.
Lag: José Calvárie. Texti: José
Niza.
21. Júgóslavía.
rr