Dagur - 18.04.1988, Síða 11
18. apríl 1988 - DAGUR - 11
Enginn bilbugur á
eyfirskum hestamönnum
Hestamannafélögin Funi, Léttir
og Þráinn héldu almennan félags-
fund í Félagsmiðstöðinni í Lund-
arskóla 10. apríl sl. Fundarefni
var skýrsla frá formannafundi 12.
mars og mótahald á Melgerðis-
melum á sumri komanda. Fjör-
ugar umræður urðu um for-
mannafundinn og afsökunar-
beiðni þá sem stjórn LH lét frá
sér fara í lok hans. Voru fundar-
menn á einu máli um það að þótt
viðurkenning hefði fengist á
málstað eyfirskra hestamanna
væri langt í land með það að
félögin gengju aftur inn í samtök
hestamanna. Ekkert hefði enn
komið fram sem benti til þess að
stjórn LH vildi með einhverjum
hætti bæta fyrir mistök sín og
væri afsökunarbeiðnin aðeins
fyrsta skrefið og raunar einungis
til þess að opna umræður milli
stjórna eyfirsku félaganna og
stjórnar LH. Á fundinum var
samþykkt eftirfarandi tillaga
samhljóða:
„Almennur félagsfundur Funa,
Léttis og Þráins, haldinn í
Lundarskóla 10. apríl 1988 fagn-
ar því að stjórn LH hafi loksins,
þann 12. mars sl., viðurkennt að
það hafi verið mistök að taka
ekki tillit til Varmahlíðarsam-
þykktarinnar. Fundurinn getur
fallist á afsökunarbeiðni stjórnar-
innar vegna þess að hún kom
ekki til fundar við Eyfirðinga.
Fundurinn mótmælir þeirri túlk-
un stjórnar LH sem komið hefur
fram í fjölmiðlum að afsökunar-
beiðnin leysi allan vanda. Varð-
andi inngöngu í LH þá sér fund-
urinn ekki að neitt hafi komið
fram ennþá sem örvað gæti félög-
in til inngöngu aftur og ekki hef-
ur komið fram hvernig bæta megi
fyrir þau mistök, sem stjórnin
hefur viðurkennt að hafa gert.
Lýsir fundurinn furðu sinni á því
Hestamenn láta ekki deigan síga.
að nú skuli ætlast til þess að
félögin í Eyjafirði mæti á fund í
Varmahlíð til að undirbúa næsta
landsmót á Vindheimamelum."
Síðari hluti fundarins fór í að
ræða væntanlegt mótahald á Mel-
gerðismelum nk. sumar. Fram
kom að fyrirhugað er að halda
mikla kynbótasýningu og opna
gæðingakeppni 18..og 19. júní og
verður forskoðun kynbótahrossa
15.-17. júní. Stefnt er að því að
mót þetta verði glæsilegt og fjöl-
breytt með voldugum sýningum
og spennandi keppni. Einnig er
fyrirhugað að halda annað mót á
Melgerðismelum 23. og 24. júlí
þar sem uppistaðan yrði kapp-
reiðar á bestu hlaupabraut lands-
ins og fjölbreytt íþróttamót.
Mátti af máli fundarmanna ráða
að engin uppgjöf eða undanslátt-
ur væri í hugum eyfirskra hesta-
manna og hafa átökin undan-
farna mánuði þjappað þeim enn
betur saman. (Fréttatilkynning.)
A söluskrá:
Skarðshlíð: 2ja herb. íbúð á 3. hæð.
Smárahlíð: 2ja herb. íbúð á 2. hæð.
Hrísalundur: 2ja herb. íbúð á 3. hæð.
Oddagata: 3ja herb. íbúð á neðri hæð.
Hólabraut: 3ja herb. íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi.
Hrísalundur: 3ja herb. íbúð á 3. hæð.
Brekkugata: 4ra herb. timburhús á steyptum kjallara.
Melasíða: 4ra herb. íbúð á 4. hæð.
Höfðahlíð: 145 fm. mjög góð sérhæð.
Þverholt: Einbýlishús með bílskúr samt. um 195 fm.
Engimýri: 220 fm. einbýlishús.
Steinahlíð: 5 herb. raðhús með bílskúr. Samtals um 200
fm.
Glerárgata: Skrifstofu- eða iðnaðarhúsnæði á 3. hæð og
4. hæð.
Draupnisgata: 100 fm. iðnaðarhúsnæði.
Opið frá kl. 13-15 og 17-19
Félag
fasteignasala
Fasteignasalan hf.
Gránufélagsgötu 4,
efri hæð, sími 21878.
Hermann R. Jónsson, sölumaður
heimasími utan skrifstofutíma er 25025.
Hreinn Pálsson, lögfræðingur.
Guðmundur Kr. Jóhannsson, viðskiptafræðingur.
Dagurinn hefst með
hollum morgunverði
Tæknifræðingafélag Islands:
Umtalsverð
fjölgun í
stéttinni
Þriðjudaginn 22. mars sl. var
aðalfundur Tæknifræðingafé-
lags íslands fyrir árið 1987
haldinn í húsnæði félagsins
Lágmúla 7, Reykjavík. Daði
Ágústsson, rafmagnstækni-
fræðingur, formaður félagsins,
flutti skýrslu stjórnar fyrir liðið
starfsár og gat um helstu atriði
í starfsemi félagsins.
Má nefna að nú er hafin ritun
sögu félagsins og hefur Jón Böðv-
arsson, ritstjóri Iðnsögu íslend-
inga, tekið að sér að stýra verk-
inu.
Árlegt síldarkvöld félagsins
var að þessu sinni haldið í Holiday
Inn 6. nóvember 1987 og var Þor-
steinn Pálsson, forsætisráðherra
gestur kvöldsins. Formaðurinn
ræddi ítarlega um Norrænt tækni-
ár 1988 og skýrði hugmyndir
stjórnar félagsins um framlag
T.F.Í. til þess. Þá nefndi Daði í
skýrslu sinni þá miklu umræðu
sem átti sér stað á síðastliðnu ári
þegar í ljós kom að þolhönnun
ýmissa mannvirkja væri verulega
áfátt. Við úttekt á því máli kom í
ljós að engir tæknifræðingar áttu
þar hlut að máli og kvað Daði
það ánæguefni að þeir hefðu ekki
lent í hópi svonefndra „fúskara“.
Endurmenntun var sem áður
ríkur þáttur í starfi félagsins á
starfsárinu og er T.F.Í. aðili að
Endurmenntunarnefnd Háskóla
íslands, þar sem geysimerkilegt
starf er unnið.
Of langt mál yrði að rekja
skýrslu stjórnar ítarlegar en auk
þess sem hér greinir fjallaði
stjórn um menntunarmál tækni-
fræðinga almennt, stóð fyrir
skoðunarferð og sinnti erlendum
samskiptum.
Sameiginlegt málgagn tækni-
fræðinga og verkfræðinga, Verk-
tækni, kom reglulega út á starfs-
árinu og voru félagsmenn hvattir
til þess að vera duglegir að skrifa
í blaðið.
Félagsmenn eru nú um 630
talsins og er umtalsverð fjölgun í
stéttinni á hverju ári. I stjórn
sitja nú: Daði Ágústsson, for-
maður, Sveinn Frímannsson,
varaformaður, Júlíus Þórarins-
son, gjaldkeri, Eiríkur Þor-
björnsson, ritari, Hreinn Jónas-
son, meðstjórnandi. Varainenn
eru Haraldur Sigursteinsson og
Gunnar Sæmundsson.
Kjarngóður morgunmatur
sem jafnframt er Ijúffengur
og fer vel í maga.
★
Fæst í öllum KEA-búðum á sérstöku
tilboðsverði næstu daga.
ATH! Sama tilboðsverð í öllum KEA-búðum