Dagur - 29.04.1988, Blaðsíða 5

Dagur - 29.04.1988, Blaðsíða 5
29. apríl 1988- DAGUR-5 Fruma-Sarah, látin kona siátrarans, birtist óvænt í afar líflegum draumi. (Sprintze) og Arnbjörg Valsdótt- ir/Júlía Egilsdóttir (Bielke). Með önnur hlutverk fara: Sunna Borg (hjúskaparmiðlar- inn Yenta), Gunnar Rafn Guð- mundsson (Motel, klæðskeri), Skúli Gautason (Perchik, stúdent), Þráinn Karlsson (Lazar Wolfe, slátrari), Jón Benónýsson (Mordcha, veitingamaður), Árni Valur Viggósson (Rabbíi), Þorgeir Gunnarsson (Mendel, sonur hans), Valdimar Gunnars- son (Avram, bóksali), Gunnfríð- ur Hreiðarsdóttir (Tzeitel, amma), Pétur Eggerz (lögreglu- þjónn), Friðþjófur Sigurðsson (Fyedka, ungur Rússi), Kristjana N. Jónsdóttir (Shandel, móðir Motels), Páll Finnsson (ungur drengur), og Bryngeir Kristins- son (rússneskur söngvari). Þá leikur Margrét Kr. Pétursdóttir Fruma-Sarah, dansarar eru þeir Ingólfur Björn Sigurðsson og Jóhann Arnarsson og kór LA bregður sér í hlutverk annarra þorpsbúa. ' Þá er ekkert annað eftir en bíða og sjá hvernig tekst að púsla þessum brotum saman í heil- steyptan söngleik og eftir æfing- unni að dæma virðist Fiðlarinn ætla að ganga fullkomlega upp þrátt fyrir að sviðið sé ekki bein- línis sniðið fyrir slíkan mann- fjölda. SS Úr byrjunaratriði Fiðlarans. Tevje kynnir íbúa þorpsins. AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKIRTEINA RIKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1983-2. fl. 01.05.88-01.11.88 kr. 295,59 1984-3. fl. 12.05.88-12.11.88 kr. 282,13 Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, apríl 1988 SEÐLABANKIÍSLANDS Hátíðahöld verkalýðsfélaganna Messa: Klukkan 11.00 verður messað í Akureyrarkirkju í tilefni dagsins. Prestur verður séra Birgir Snæbjörnsson. Hátíðarsamkoma í Alþýðuhúsinu kl. 14.00. 1. Hátíðin sett og flutt 1. maí ávaip verkalýðsfélaganna á Akureyri. Formaður 1. maí nefndar Áimann Helgason flytur ávarpið. 2. Eiður Guðmundsson, starfsmaður Alþýðusambands Norðurlands flytur ræðu dagsins. 3. Ávarp: Jóna Steinbergsdóttir, for- maður Félags verslunar- og skrif- stofufólks á Akureyri. Inn á milli dagskráratriða verður skotið skemmtiefni. Þann 1. maí verða flest stéttarfélög í Alþýðuhúsinu með opið hús. Laugardaginn 30. apríl og 1. maí verður í húsakynnum Einingar sýning Einingar- félaga á söfnunargripum, handavinnu o.fl. Sýningin verður opin báða þessa daga frá kl. 14.00 tU kl. 22.00. Fjölmennið til hátíðahaldanna. Beríð merki dagsins. 1. maí nefnd verkalýðsfélaganna á Akureyri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.