Dagur - 29.04.1988, Blaðsíða 23

Dagur - 29.04.1988, Blaðsíða 23
29. apríl 1988 - DAGUR - 23 Sniglabandið og er núna á föstu með Sverri!" - Ertu þá hættur í Sniglaband- inu? „Eigum við ekki að segja að ég sé í leyfi frá störfum í Snigla- bandinu um óákveðinn tíma.“ - En hvenær byrjaði ykkar samstarf? Stefán: „Það var í fyrra, snemmendis..." Sverrir: „Já, Stígur hefði ábyggilega endað í Sniglaband- inu hefði ég ekki komið auga á hann í Kvennó!" - Nú kom þín fyrsta plata út fyrir þremur árum, Sverrir, hafði hún lengi staðið til? „Já, fyrir útgáfu hennar átti ég ein 8-900 lög á lager og þau lög hafa reyndar verið að koma út allar götur síðan.“ - Þú hefur einmitt oft verið gagnrýndur fyrir að vanda kannski ekki nægilega öll lögin? „Petta er nú bara tveggja ára gömul meinloka hjá einhverjum úrillum gagnrýnendum, þeir sjá bara ofsjónum yfir því ef menn eru afkastamiklir. Það er bara þeirra höfuðverkur, eða bein- verkur því það er sjaldnast neitt milli eyrnanna á þeim flestum.“ - En hvað um „leynigagnrýn- endurna“, plötusnúðana á Sí- byljustöðvunum? „Sko, meðan þeir eru að spila mín lög vil ég ekki meina að þeir séu að spila síbylju, þá myndi ég segja að þeir stæðu undir nafni sem ágætis plötusnúðar. í raun- inni eru einu kröfurnar sem ég geri til poppstöðvanna er að þær spili lög eftir mig! Að vísu er það dálítil hræsni þegar plötusnúðar sem aldrei hafa spilað lög eftir mig eru allt í einu farnir að gera það, í kjölfar júróvisjon. - Nú hefur þú óneitanlega sér- stakan stíl. Hvernig vinnurðu lög þín, ertu handverksmaður? „Já, auðvitað er maður hand- verksmaður að vissu leyti, þetta er eins og maður sem er að negla nagla í vegg, en til þess að negla í vegg verður maður náttúrlega að hafa heila. Mér er alveg sama hvernig lögin verða til, hvort sem þau koma út úr kjaftinum á mér eða fingurgómunum. Ég sem flest öli mín lög á píanó, að vísu er þetta lag sem núna er á toppnum, Þú og þeir, eitt örfárra laga sem maður hefur samið á gítar. Þar að auki er þetta eitt fárra laga sem ég tók aldrei upp á kassettu, heldur bara mundi það. Skrýtið, því yfirleitt gleymi ég nýjum lögum hvort sem þau eru góð eða slæm.“ - Nú ert þú oftast flest í flestu á plötunum þínum, útsetur t.d. allt sjálfur. „Málið er það að maður er svo frekur, vill endilega fá að ráða. Hins vegar er það þannig að þeg- ar maður er búinn að semja eitt stykki lag er manni illa við að ganga frá króanum þannig að hann sé bara í bleiu og búið. Maður vill klæða hann upp, hafa hönd í bagga með hvernig hann kemur t.a.m. til með að líta út á sviðinu í Dublin. Maður vill fylgjast með lögunum frá vöggu til grafar. Það er þess vegna sem ég kem líklega til með að útsetja næstu plötu ásamt Stebba. Eyþór Gunnarsson mun alltaf verða pródúser að því leytinu til að hann verður svona handverks- maður í orðsins fyllstu merkingu, þ.e.a.s. hann heldur á barninu undir skírn en ég helli yfir hann vatninu, krakkann ekki Eyþór! Eyþór er mjög góður aðstoðar- maður, hann sér um að koma þessu skikkanlega á teip, hefur enda miklu meiri reynslu í því en ég, þannig að hann er sá maður sem ég kem til með að vilja vinna með.“ - Hvernig er með textagerð- ina, endurskrifarðu textana mik- ið eða semurðu þá í stundarbrjál- æði? „Nei, alls ekki, þó að textarnir virki kannski þannig að þeir séu samdir í stundarbrjálæði þá ligg- ur mikil vinna að baki. Eg endurskrifa hvern texta, þó að hann sé kannski ekki nema 300 orð, aftur og aftur og er svona í kringum 10 daga með hvern texta. Það er nefnilega svo margt í sambandi við textagerð sem maður þarf að taka tillit til og fólk virðist engan veginn gera sér grein fyrir. Þessir palla- eða sleggjudómar sem hafa verið um textana fram að þessu byggjast á gamalli þröngsýni eða no. 1, 2 og 3 heimsku! Fólk veit ekki út á hvað textagerð gengur. Maður verður að taka tillit til stuðla og höfuðstafa séu þeir á annað borð brúkaðir, einnig kemur hljóð- fræði inn í spilið, t.d. hvort söng- varinn hefur hátt eða lágt radd- svið.“ - En hverjir teljast þá góðir textasmiðir? „Megas hefur náttúrlega alltaf verið góður og Bubbi, frá og með Dögun. Þeir eru alla vegana meðal þriggja bestu textasmiða landsins!“ - Stefán, þín uppáhöld í tón- listinni? „Ég hef gaman af öllu svo sum, nema kántríi. Annars hlusta ég fremur lítið eftir góðum textum, alla vegana á ensku enda eru þeir flestir þannig að ef þú myndir snúa þeim upp á íslensku mætti halda að Hallbjörn Hjartarson hefði samið þá alla!“ - Sverrir, er óskabarn þjóðar- innar með eitthvað í bígerð? „Af hverju er alltaf verið að kalla mig óskabarn þjóðarinnar, ég fatta þetta alls ekki, ég er ekk- ert óskabarn, ég er óskamaður þjóðarinnar... Stebbi má vera óskabarnið. Nei annars, ég er annar helmingurinn af þessum dúett, Beathoven, um þessar mundir og við munum væntan- lega gefa út plötu fyrir næstu jól með mínum lögum og Stebba söng.“ - Er þetta fullt starf að vera poppari? Stefán: „Já, núna að minnsta kosti og Sverrir er alvöru popp- ari, fyrir hádegi að minnsta kosti!“ Sverrir: „Að öllu gamni slepptu þá hefur þetta verið mitt aðalstarf undanfarin þrjú ár.“ - Er þá ekki best að snúa sér að því sem lesendur fýsir eflaust mest að vita eitthvað um. Júró- visjon. Hvernig hefur ykkur lík- að öll athyglin í kjölfar sigursins í forkeppninni? Stormsker: „Mér finnst þetta bara virkilega almennilegt, eigin- lega fer ég alltaf á alveg hvínandi bömmer ef það birtist ekki mynd af mér í blöðunum daglega. Þá sný ég bara tánum upp í loft og sef af mér daginn.“ - Nú er eldri kynslóðin hrædd um að þið gerið einhvern fjand- ann af ykkur þarna í Dublin... Stefán: „Fólk getur varla verið hrætt um að ég geri eitthvað af mér þarna úti, ég er svoddan óskabarn. Nei annars, ég held að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af neinu slíku.“ Sverrir: „Stebbi er nefnilega algjör engill!" - Er undirbúningurinn að ein- hverju leyti hafinn? Stormsker: „Nei, þetta er allt í lausu lofti og þetta lausa loft er allt inn í hausnum á honum Birni Emilssyni en hann er fram- kvæmdastjóri keppninnar. En eins og ég segi þá er undirbúning- urinn á algjöru byrjunarstigi, við komum til með að æfa raddirnar í flugvélinni á leiðinni út og fata- málin held ég að blessist hrein- lega á einhverjum pöbbnum í Dublin. Eigum við ekki bara að segja að öll málin reddist úti í Dublin, bæði fatamál, söngmál og sviðssetning. Annars gerir þetta ekkert til, við briUerum hvort sem er!“ AKUREYRARB/ER Hjúkrunarfræðingar Dvalarheimilið í Skjaldarvík óskar að ráða deildarstjóra frá 1. júlí. Upplýsingar um starfið gefur hjúkrunarforstjóri í síma 23174 eða 21640. Upplýsingar um kaup og kjör gefur starfsmanna- stjóri Akureyrarbæjar í síma 21000. AKUREYRARB/CR Unglingavinna Skráning 13,14 og 15 ára unglinga (árgangar ’73, ’74 og ’75) sem óska eftir sumarvinnu hefst mánudaginn 2. maí. Skráningin fer fram á Vinnumiðlunarskrifstofunni Gránufélagsgötu 4, sími 24169 frá kl. 9-12 og 13- 16 alla virka daga. Skráningu lýkur föstudaginn 13. maí. Garðyrkjustjóri. -----------------— v AKUREYRAR&ÆR Skólagarðar Skráning 10, 11 og 12 ára unglinga (árgangar ’76, 77 og ’78) sem vilja nýta sér aðstöðu í skólagörðum bæjarins á komandi sumri hefst mánudaginn 2. maí. Skráning fer fram á Vinnumiðlunarskrifstofunni Gránufélagsgötu 4, (sími 24169) frá kl. 9-12 og 13-16 alla virka daga. Skráningu lýkur föstudaginn 13. maí. Garðyrkjustjóri. Smiðir athugið! Okkur vantar smiði sem fyrst. Mikil vinna - Komið og ræðið málin. Haraldur og Guctlciugur byggingaverktakar Möðrusiöu 6. Símar: Har. 25131. GuV 22351. Starfskraftur óskast í gestamóttöku. Upplýsingar í síma 22970. Hótel Akureyri. Starfsfólk vantar í fiskverkun KEA Grímsey. Fæði og húsnæði á staðnum. Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 96-73105 og á kvöldin í síma 96-73118. i.«< iK.»nni

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.