Dagur - 29.04.1988, Síða 8
2#M.ðPríi<jlf9§&:
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva:
Sextánda sæti enn - eða hvað?
Hann er glaöhlakkalegur, Scott
Fitzgerald, fulltrúi Breta, enda hef-
ur honum veriö spáð góðu gengi í
keppninni.
Það hefur tæplega farið fram hjá mörgum, að annað
kvöld verður sýnd í Sjónvarpinu Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva. Nú sem fyrr, eru miklar
vonir bundnar við framlag íslands til keppninnar, lag
Sverris Stormsker, Sókrates. Veðbankar erlendis eru
ekki jafn bjartsýnir og landinn því þeir spá laginu
einhverju miðjusætanna. Ef miðað er við fyrri ár, yrði
að telja það góðan árangur, nái lagið svo langt. F»egar
lagið sigraði í undankeppni þóttust margir geta spáð
því að Sverrir yrði landi og þjóð ekki til sóma á erlendri
grund sakir hegðunar sinnar. Líklega hefur það valdið
þessum sömu vonbrigðum, hversu prúður drengurinn
hefur verið til þessa. F»að mætti ætla að Jón Páll,
sterkasti maður heims, hafi svona góð „tök“ á honum,
en hann ku hafa borið hann á örmum sér á götum
Dyflinnar. Pjóðirnar sem taka þátt í keppninni að
þessu sinni eru alls 21. Helst hefur verið veðjað á að lög
Bretlands og Sviss sigri í keppninni, en allt kemur þetta
í ljós annað kvöld og því ekki um annað að ræða en að
bíða og sjá. Hér á síðunni birtum við atkvæðaseðil fyrir
heimilið, sem gefur kost á að fylgjast betur með
atkvæðagreiðslunni í beinni útsendingu.
Hvar lenda þeir? Hinir íslensku Beathoven, Sverrir Stormsker og Stefán
Hilmarsson sem augu flestra munu beinast að annað kvöld.
ísland «o 'O !£ > (/) Finnland Bretland Tyrkland Spánn Holland ísrael Sviss írland ■O -c (0 ro (/> £L Austurríki Danmörk Grikkland Noregur Belgía Luxemburg Ítalía Frakkland Portúgal Júgóslavía Samtals Röð e 5. <5 (B <
1. Ísland: SÓKRATES Flytjendur: Beathoven
2. Svíþjóð: STAD I LJUS Flytjandi: Tommy Körberg
3. Finnland: NAURAVAT SILMÁT MUISTETAAN Flytjendur: Boulevard
4. Bretland:GO Flytjandi: Scott Fitzgerald
5. Tyrkland: SUFI (HeyjaHey) Flytjandi: Maznar-Suat-Ozkan
6. Spánn: LA CHICA QUI YO QUIERO Flytjendur: La De Cata
7. Holland: SHANGRI-LA Flytjandi: Gerard Joling
8. ísrael: BEN-ADAM Flytjandi: Yardena Ara Zi
9. Sviss: NE PARTES PAS SANS MOI Flytjandi: Céline Dion
10. írland: TAKE ME HOME Flytjendur: Jump the gun
11. Þýskaland: LIED FUR EINEN FREUND Flytjendur: Maxi og Chris Garden
12. Austurríki: LISA MONA LISA Flytjandi: Wilfried Scheutz
13. Danmörk: KA’ DU SE HVA’ JEG SA’ Flytjendur: Kirsten Siggaard og Sören Bundgaard
14. Grikkland: CLOWN Flytjendur: Afroditi Fryda og kór
15. Noregur: FOR VÁR JORD Flytjandi: Karolina Kriiger
16. Belgía: LAISSER BRILLER LE SOLEIL Flytjandi: Reynaert
17. Luxemburg: CROIRE Flytjandi: Lara Fabian
18. Ítalía: Tl SCRIVO Flytjandi: Luca Barbarossa
19. Frakkland: CHANTEUR DE CHARME Flytjandi: Gerard Le Norman
20. Portúgal: VOLTAREI Flytjandi: Dora '
21. Júgóslavía: MANGUP Flytjendur: Silver wings