Dagur - 29.04.1988, Side 13
hvað er að gerasf?
29. apríl 1988 - DAGUR - 13
Vortónleikar
forskóladeildar
Fyrstu vortónleikar Tónlist-
arskólans verða haldnir í
Akureyrarkirkju á morgun,
laugardaginn 30. apríl kl.
13.30.
En það eru 80 nemendur í
forskóladeild á aldrinum 5-9
ára sem flytja þar ýmis lög
og viðfangsefni sem þau
hafa æft í vetur. Þarna verð-
ur leikið á blokkflautur með
undirleik annarra hljóðgjafa
og hljóðfæra undir stjórn
þeirra Lilju Hallgrímsdóttur
og Sigurlínu Jónsdóttur.
Aðgangur er ókeypis.
Tónleika
á Húsaví
<
Prjár hljómsveitir skipaðar
yngri og eldri nemendum í
Tónlistarskólanum á Akur-
eyri, leika fyrir almenning
og skólafólk í Barnaskólan-
um á Húsvík í dag, föstu-
daginn 29. apríl kl. 13 (1 eft-
ir hádegi). Alls taka um 60
nemendur þátt í þessari tón-
leikaferð.
Stærsta verkið á tónleika-
skrá þeirra er hinn sívinsæli
Brandenborgarkonsert nr. 5
eftir Bach, en í honum leika
einleik: Ásta Óskarsdóttir á
fiðlu, Margrét Stefánsdótt-
ir á flautu og Aðalheiður
Þorsteinsdóttir á píanó.
Auk ýmissa smærri verka og
laga verður einn þáttur flutt-
ur úr konsert fyrir strengja-
sveit og 2 lágfiðlur eftir Tel-
emann, en einleikarar í því
verki eru þær Elísabet
Hjálmarsdóttir og Eydís
Ulfarsdóttir.
Stjórnendur eru þau
Magna Guðmundsdóttir,
Michael J. Clarke og Nigel
W. Lillicrap.
Aðgangur ókeypis.
Hljómsveit
Ingimars Eydal:
Eurovision
í Mánasal
Laugardagskvöldið 30. apríl
mun hljómsveit Ingimars
Eydal skemmta í Mánasal
Sjallans, en undanfarnar
vikur hefur hljómsveitin
verið í fríi úr Sjallanum.
Þema kvöldsins í Mánasaln-
um verður „Eurovision-
keppnin" en lögin úr keppn-
inni verða væntanlega á
hvers manns vörum um
helgina. Fyrirhugað er að
hafa fleiri slík „þemakvöld“
í Mánasalnum með hljóm-
sveit Ingimars Eydal og
verður efni þeirra kynnt
síðar.
Jónas í hvalnum:
Nemenda-
heimsókn
fellur niður
Fyrirhuguð heimsókn
nemenda í Hafralækjar-
skóla í Dalvíkur- og Glerár-
kirkju sunnudaginn 1. maí
með söngleikinn Jónas í
hvalnum fellur niður af sér-
stökum ástæðum.
Íslandsglíman
á laugardag
Íslandsglíman 1988 fer fram
á laugardaginn. Mótið verð-
ur haldið í íþróttahúsinu á
Laugum í Reykjadal og
hefst kl. 14.00. Eyþór Péturs-
son, HSÞ er' núverandi
handhafi Grettisbeltisins.
Knattspyrna:
Fyrstu úti-
leikarnir á
Húsavík
um helgina
Tveir æfingaleikir milli
Völsungs og Einherja eru
fyrirhugaðir á Húsavík um
helgina. Leikið verður á
malarvellinum og hefst fyrri
leikurinn kl. 16.00 á laugar-
dag en sá síðari kl. 14.00 á
sunnudag.
Leikur milli Þórs og 3.
flokks Völsungs fer fram kl.
14.00 á laugardag.
Opið hús á
Hljóðbylgjunni
Hlíðarbær:
Árleg
söngskemmtun
á sunnudag
og mánudag
Næstkomandi sunnudags- og
mánudagskvöld, verður
árlegur samsöngur Söng-
sveitar Hlíðarbæjar. Að
venju verður skemmtunin
haldin í Hlíðarbæ í Glæsi-
bæjarhreppi. Alls eru 26
söngvarar í kórnum og á
efnisskrá eru að mestu inn-
lend lög tengd vorinu.
Stjórnandi sveitarinnar er
Hjörtur Steinbergsson og
undirleikari á píanó, Hólm-
geir S. Þórsteinsson. Unn-
endur fallegs söngs ættu
ekki að láta skemmtun
þessa fram hjá sér fara.
Eining:
Sýning
frístunda-
safnara
Á laugardag og spnnudag
verður Verkalýðsfélagið
Eining með sýningu á mun-
um tómstundasafnara meðal
félagsmanna sinna. Til-
gangurinn er m.a. að hressa
upp á 1. maí, frídag
verkamanna. Á sýningunni
verður margt skemmtilegra
muna; gamlar kakó- og
kaffikönnur, steinasöfn, frí-
merkjasöfn, hannyrðir og til
og með gamlir skömmtunar-
seðlar frá stríðsárunum.
Allir ættu að hafa gaman af
að sjá þessa sýningu, en hún
verður í Alþýðuhúsinu við
Skipagötu á Ákureyri og er
opin frá 14.00 til 22.00 báða
dagana.
Sauðárkrókur:
Skátar og
foreldrar með
kleinusölu
Á morgun munu skátar í
skátafélaginu Eilífsbúum á
Sauðárkróki og foreldrar
þeirra koma saman í Selinu
á Eyrinni. Foreldrarnir ætla
að steikja kleinur og krakk-
arnir munu taka þær jafnóð-
um og þær koma úr steik-
arpottinum, bera í hús og
selja, glóðvolgar.
Þetta er liður í fjáröflun
Eilífsbúa sem í sumar ætla í
heimsókn til Kóge í Dan-
mörku vinabæjar Sauðár-
króks. Kóge á 700 ára
afmæli í ár og þar verður í
sumar haldið vinabæja-
skátamót. Þangað fer 35
manna hópur og mun dvelja
ytra frá 29. júní til 10. júlí.
Krakkarnir í Eilífsbúum
sem flestir eru á aldrinum
12-15 ára eru búnir að gera
ýmislegt til fjáröflunar.
M.a. hafa þeir gengið á fjöll
í Skagafirði og safnað áheit-
um vegna þess.
Hljóðbylgjan á Akureyri er
eins árs á morgun, laugar-
dag. Þeir útvarpsmenn ætla
að bjóða alla Akureyringa
og nærsveitamenn velkomna
milli kl. 14.00 og 16.00 í
hljóðver, þar sem möguleiki
verður á að láta til sín heyra
í beinni útsendingu. Þá
verða veitingar á boðstóium
og ættu því allir velunnarar
Hljóðbylgjunnar að líta inn
og berja staðinn augum.
Kútmagakvöld
Hugins í kvöld
I kvöld, föstudagskvöld,
heldur Lionsklúbburinn
Huginn sitt árlega kútmaga-
kvöld á Hótel KEA kl.
19.30. Að venju er fjöl-
breytt skemmtidagskrá á
boðstólum.
Meðal þeirra sem láta ljós
sitt skína að þessu sinni er
Jón Örn Marinósson,
höfundur Jónsbókarþátt-
anna í dægurmálaútvarpi
Ríkisútvarps og fer hann á
kostum að venju. Þá kemur
Jóhannes Kristjánsson, ekki
veiðimaður heldur eftir-
herma, (þessi sem tekur
Steingrím Hermannsson svo
frábærlega) og skemmtir
gestum kvöldsins. Að venju
mætir á svæðið Stjáni málari
og fer með gamanmál í
bundnu máli en Stjáni hefur
mætt á síðustu 100 kútmaga-
kvöld og aldrei brugðist.
Ekki má gleyma böggla-
uppboðinu og skyndihapp-
drættinu en að sjálfsögðu
eru margir eigulegir munir
boðnir upp og góðir vinn-
ingar í happdrættinu. Allur
ágóði rennur til líknarmála.
Verðinu er stillt í hóf og
kostar því miðinn kr. 1750.
Forsala aðgöngumiða verð-
ur í dag á skrifstofu
Almennra trygginga við
Ráðhústorg.
Ijósvakarýni
Voríð hefurbeturí samkeppninni
Verulega fer að versna í því þeg-
ar komið er aö Ijósvakarýni og
maður hefur lítið sem ekkert horft
eða hlýtt á Ijósvakamiðla síðustu
vikurnar. Og eflaust er því þannig
farið með marga, að þegar
nálægðar vorsins gætir minnkar
þörfin fyrir þessi annars ómiss-
andi fyrirbæri, Ijósvakamiðlana.
En fólk má líka passa sig, sér-
staklega að horfa ekki of mikið á
sjónvarpið, því með því fer það
ansi margs á mis. Og ekki kæmi
mér á óvart aö of mikið sjón-
varpsgláp skapaði tóm hjá fólki,
þó að það ef til vill geri sér ekki
grein fyrir því.
Ég horfði þó á síðasta þátt
spurningaþáttarins Hvað held-
urðu? á sunnudagskvöldið. Þátt-
urinn var þrælskemmtilegur, þótt
auðvitað væri mikill Ijóður á hvað
Reykvíkingaranir vissu mikið. Og
vitanlega var þaö Flosi sem kór-
ónaði þetta allt saman. Þessi
maður er gjörsamlega óborgan-
legur og lokaorðin, rúsínan í
þylsuendanum, voru alveg rosa-
leg. Gáfu þau lokaræðu Chaþlíns
í myndinni um einræðisherrann
ekkert eftir. Væri óskandi að
þjóðin fengi að njóta Flosa nokk-
uð í framtíðinni og hann fari ekki
að taka upp á þeim óskunda að
draga sig í hlé eða setjast í helg-
an stein. Maður enn á léttasta
skeiði, með líkamlegt og andlegt
atgervi í besta lagi. Það yrði
skarð fyrir skildi í skemmtana-
málum þjóðarinnar.
Svo fylgdist maður í fyrrakvöld
með skinum og skúrum í ástarlífi
þeirra fráskildu hjóna Dominicks
og hvað heitir hún nú aftur? Þetta
eru nokkuö athyglisverðir þættir
verð ég að segja, en blessað
barniö hlýtur að vera orðið ansi
ruglaö í ríminu á öllum þessum
þvælingi, þar sem hér er komið í
þáttunum.
Annars býst ég við að Sjón-
varpinu hafi hrakað upp á síð-
kastiö, enda ekki nema von eins
og fjármagn til stofnunarinnar hef-
ur verið skorið niður. Er það mið-
ur að þessi ágæta stofnun Ríkis-
útvarpið skuli nú vera orðið oln-
bogabarn stjórnvalda og þjóðar-
innar um leið. En ég held ég láti
það samt alveg vera að fá mér
Stöð 2 í bili, ætli maður bíti ekki
alla slíka pressu af sér alveg
fram á veturnætur í það minnsta.
Enda sýnist mér ekki af svo miklu
að missa.
Þórhallur Ásmundsson.