Dagur - 08.06.1988, Blaðsíða 7
o%?júWh^8--qtíXá0Fr-a7
Verkmenntaskólinn á Akureyri:
Námskeið í meðferð og
suðu á ryðfríu stáli
Síðastliðinn föstudag var hald-
ið námskeið í meðferð og suðu
á ryðfríu stáli í Verkmennta-
skólanum á Akureyri. Um 30
þátttakendur frá iðnfyrirtækj-
um víðs vegar af Norðurlandi
settust á skólabekk, en nám-
skeiðið var bæði bóklegt og
verklegt.
Sams konar námskeiö var
haldið nýlega í Reykjavík en
markmiðið með námskeiðinu er
að kynna meðferð á ryðfríu stáli.
Tveir menn frá Smitweld í Hol-
landi, sem framleiðir rafsuðuvír,
leiðbeindu þátttakendum og einn
maður frá Damstahl verksmiðj-
unni í Danmörku sem framleiðir
ryðfrítt stál. Sindrastál hf. er
umboðsaðili þessara fyrirtækja
hér á landi.
Notkun á ryðfríu stáli er alltaf
að aukast og því nauðsynlegt fyr-
ir iðnfyrirtæki að kynna sér notk-
un þess. Á námskeiðinu var
kynnt ný tegund af rafsuðuvír
sem aðeins hefur verið í notkun í
fjóra mánuði. Námskeiðið stóð
frá kl. 9-16 á föstudaginn og var
haldið í samvinnu þriggja áður-
nefndra fyrirtækja og Verk-
menntaskóíans á Ákureyri. SS
Stofnfundur fyrstu
íbúasamtaka á Akureyri
í undirbúningi er stofnun íbúa-
samtaka í Síðuhverfi á Akur-
eyri, þ.e. í hverfínu vestan
Hlíðarbrautar. Tildrög þessa
máls eru umræður og áhugi
manna á meðal, að stuðla að
framförum og uppbyggingu í
hverfínu.
Því kom saman til fundar
nokkur hópur kvenna og karla til
að ræða þessi mál óformlega,
sem leiddi síðan til þess, að
ákveðið var að standa fyrir stofn-
un íbúasamtaka í hverfinu og
skyldi stofnfundur haldinn í
Glerárkirkju fimmtudaginn 9.
júní nk. kl. 21.
Helsti tilgangur slíks félags
gæti verið að efla skoðanaskipti
og samvinnu við ráðamenn
bæjarins og virkja íbúa til
athafna í þágu bæjarfélagsins.
Megin áhersla fer að sjálfsögðu
eftir eðli hverfisins, þ.e.a.s. Síðu-
hverfið er ungt að árum og enn í
uppbyggingu, meðan önnur
hverfi eru uppbyggð og gróin.
Það ætti þó ekki að hindra gott
samstarf milli hverfanna, því
mörg áhugamál eru þeim sameig-
inleg.
Flest mál varða öll hverfi en
áhugi Síðubúa gæti ef til vill
beinst aðallega að skipulags- og
umferðaröryggismálum, frágangi
gatna og gangstíga, samgöngu-
málum, varðveislu náttúruverð-
mæta og sérkenna, aðstöðu til
útivistar og íþróttaiðkunar.
Koma á bættri þjónustu við
hverfið s.s. póstafgreiðslu, lyf-
sölu, bókasafni og heilsugæslu
svo eitthvað sé nefnt.
Auk samskipta fbúasamtaka
við bæjaryfirvöld væri áhugi að
efla í hvívetna samstöðu og sam-
veru íbúanna.
Þess er vænst, að sem flestir
Síðuhverfisbúar sjái sér fært að
koma á áðurnefndan stofnfund
og láti skoðanir sínar í Ijós. Sem
fyrr segir verður fundurinn hald-
inn annað kvöld, fimmtudags-
kvöld, og hefst kl. 21.00 í Glerár-
kirkju.
Undirbúningsnefndin.
Lokað
á laugardögum
frá 1. júní til 1. september
Opnunartími aöra daga
Mánudaga-miðvikudaga frá kl. 9-18.
Fimmtudaga frá kl. 9-20.
Föstudaga frá kl. 9-19.
Verið velkomin
HAGKAUP
Akureyri
f------------------------------\
Breytíng á
útgáfudögum
Frá og med 20. júní verðursú breyt-
ing á útgáfu Dags að mánudagsút-
gáfa blaðsins verður felld niður en
þess ístað hafin útgáfa blaðs á laug-
ardögum.
Þar með verður útgáfu blaðsins
hagað á svipaðan hátt og hjá flest-
um Reykjavíkurblaðanna.
Fyrsta laugardagsblaðið kemur út
25. júní nk.
Skilafrestur auglýsinga í laugar-
dagsblaðið er sá sami og fyrir
föstudagsblaðið, fyrir kl. 11 á
fimmtudögum, og þriggja dálka
auglýsingar eða stærri fyrir kl. 4 á
miðvikudögum.
Auglýsingadeild.
V_______________________________________^
goCCerí AtCraHanda
Ert þú í (eit oð einhverju sérsiöku? Einftverju sem iekið er eftir?
í gaderí AííraHcmda er að fá ísíenska Cistrmni og nytjaíist.
Md þar með nefna siífnrskartgrígi ejtir Jtns, keramik, tepctíC og grafík.
Opið þriðjud.-föstucC. frá kC. 13-18 og miðvikudagskvöCd frá kí. 20.00-22.00.
qflflerf JKXCraHanda
BreMu^ötii 5j efiri Cxaeó.