Dagur - 03.08.1988, Page 1
71. árgangur Akureyri, miðvikudagur 3. ágúst 1988 143. tölublað
LACOSTE
Peysur • Bolir
Jogginggallar
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Lögreglan:
Lagði hald á
mikið magn áfengis
Frú Vigdís sett í embætti
Frú Vigdís Finnbogadóttir undirritaði í fyrradag embættiseið sinn sem forseti íslands og hófst þar með
þriðja kjörtímabil hennar. Athöfnin hófst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni og gengu gestir síðan yfir
í Alþingishúsið. Eftir að Magnús Thoroddsen, forseti Hæstaréttar, hafði lýst forsetakjöri og frú Vigdís
Finnbogadóttir hafði skrifað undir embættiseiðinn, gekk forsetinn fram á svalir Alþingishússins og
minntist fósturjarðarinnar. AP
25 teknir fyrir ölvun við akstur
Lögreglan á Akureyri hafði
afskipti af 25 manns vegna ölv-
unaraksturs um helgina og 20
voru teknir fyrir of hraðan
akstur. Tveir voru sviptir öku-
leyfi á staðnum, enda höfðu
þeir kitlað pinnann verulega.
Nokkur ölvun var í bænum, en
að sögn lögreglu fór allt frið-
samlega fram. Á Melgerðis-
melum var talsverð ölvun og
fengu 40 að gista fangageymsl-
ur lögreglunnar. Nokkur
umferðaróhöpp urðu um helg-
ina, en meiðsl urðu smávægi-
leg.
Matthías Einarsson varðstjóri
hjá lögreglunni á Akureyri sagði
umferð hafa gengið vel og öku-
menn almennt notað bílbelti og
haft ökuljós kveikt. Umferðar-
óhöpp á Akureyri og í nágrenni
urðu alls 8, tvisvar útafakstur og
6 árekstrar. Meiðsl urðu óveru-
leg, en eignatjón varð nokkurt.
Alvarlegasta óhappið varð á
brúnni við Torfur í Eyjafirði þeg-
ar tveir fólksbílar skullu saman.
Treysti ekki ríkisvaldi
sem óglldir samninga
- segir Björn Snæbjörnsson hjá Einingu um skýrslu vinnutímanefndar
Um niðurstöður vinnutíma-
nefndar, sem félagsmálaráð-
herra skipaði til þess að leita
Kartöflur:
Nýjar
íslenskar í
verslanir
Nýjum íslenskum kartöflum
var dreift í verslanir KNÞ á
Kópaskeri og í Ásbyrgi i gær
og síðar í vikunni eru nýjar
kartöflur væntanlegar í verslun
á Akureyri.
Kartöflurnar eru frá kartöflu-
ræktarfyrirtækinu Mónaco en
eigandi þess er Gunnar
Björnsson, Sandfellshaga í Öxar-
firði. Gunnar ræktar kartöflurnar
á söndunum þar sem þær njóta
yls frá jarðhitasvæðunum og eru
því fyrri til að vaxa í söluhæfa
stærð. Það var 1. ágúst sem
Gunnar tók upp fyrstu fram-
leiðslu sumarsins sem fer á mark-
að en undanfarna daga hefur
heimilisfólkið í Sandfellshaga
neytt nýrra kartaflna úr görðum
Gunnars. IM
leiða til að stytta vinnutíma,
eru nokkuð skiptar skoðanir. I
skýrslunni kemur m.a. fram
tillaga um að hækka dagvinnu-
kaup á kostnað yfirvinnukaups
í þeirri von, að fólk minnki við
sig yfirvinnu en gengið er út frá
því að flestir sem vinni yfir-
vinnu, geri það til að auka
tekjur sínar.
Björn Snæbjörnsson varafor-
maður Verkalýðsfélagsins Ein-
ingar í Eyjafirði sagði það vissu-
lega draum sinn, að dagvinnu-
laun hækkuðu það mikið, að
hægt verði að lifa af þeim einum.
„Menn hafa reynt það í áföngum,
en það hefur verið kroppað til
baka aftur. Ég treysti því tæp-
lega, þó dagvinnulaunin yrðu
hækkuð verulega, að þau yrðu
ekki tekin aftur með einhverju
móti. Með þessu yrði yfirvinnan
seld ódýrt og það er ekki hægt
með pennastriki að segja að
minnka eigi yfirvinnu því hún
verður unnin. Verðmætin verða
ekki látin liggja og eyðileggjast.“
Þá sagði Björn ríkisvaldið æði
oft hafa gert undirskriftir ómerk-
ar. Nú væri t.d. búið við lög þess
efnis að bannað er að gera kjara-
samninga og út í hött að tala um
skipulagsbreytingar sem þessar á
sama tíma.
í skýrslu nefndarinnar kemur
sömuleiðis fram sú gamalkunna
staðreynd, að íslendingar vinna
að jafnaði mikla yfirvinnu. 70%
aðspurðra töldu að draga ætti úr
yfirvinnu, þó með því skilyrði, að
grunnkaup hækkaði. VG
Leitað að áfengi á Melgerðismelum.
Mynd: GB
Stúlka í annarri bifreiðinni við-
beinsbrotnaði og sagði Matthías
að bílbelti hefðu bjargað að ekki
fór verr, en báðir bílarnir eru
óökufærir.
Matthías sagði útihátíðina á
Melgerðismelum hafa farið vel
fram og verið forráðamönnum
hennar til sóma. Vel hafi verið
staðið að allri gæslu á svæðinu og
óspektir hafi verið með minna
móti. Ölvun á svæðinu var
talsverð, „það voru nokkrir ansi
vel hreifir," eins og Matthías tók
til orða. Lögreglan lagði hald á
talsvert magn af áfengi og giskaði
varðstjóri á að það hefði verið á
milli 600-1000 flöskur. Tók lög-
regla góssið í sína vörslu og í gær
lá straumurinn á lögreglustöðina,
en þeir sem náð höfðu tvítugu
gátu vitjað áfengis síns þangað.
„Við erum allt í einu orðnir vin-
sælir,“ sagði Matthías. mþþ
ÁTVR á Akureyri:
Seldi áfengi fyrir 9 miflj-
ónir á tvehnur dögum
Starfsmenn áfengisútsölunnar
á Akureyrí höfðu í mörg horn
að líta síðustu daga fyrir versl-
unarmannahelgina. Samtals
var selt áfengi fyrir 9,2 milljón-
ir króna í útibúinu á fimmtu-
dag og föstudag sem reikna má
með að þýði um 8000-9000
flöskur.
„Við seldum fyrir rúmar þrjár
milljónir á fimmtudaginn og á
föstudaginn var salan rúmar sex
miUjónir þannig að það var nóg
að gera. Þessi sala er svipuð og
verið hefur en ef eitthvað er þá er
hún ívið meiri en áður,“ segir
Haukur Torfason útbússtjóri
ÁTVR á Akureyri.
Aðspurður segir Haukur að
salan sl. föstudag sé tvöfalt meiri
en á „venjulegum“ föstudegi,
þeim vikudegi sem hvað líflegust
sala er í „Ríkinu". Haukur sagð-
ist ekki merkja að farið sé að
draga úr áfengissölu þrátt fyrir að
víða þrengi að. „Ætli sé ekki með
þetta eins og sumt annað. Það er
alltaf til króna fyrir sígarettu-
pakkanum og flöskunni. Maður
verður í það minnsta ekki mikið
var við sparnað á þessu sviði,
allra síst fyrir helgi sem þessa,“
segir Haukur. JÓH
Áfengissalan í „ríkinu“ á Akureyri var mikil fyrir verslunarmannahelgina
eins Og oft áður. Mynd: TLV