Dagur - 03.08.1988, Side 3
3. ágúst 1988 - DAGUR - 3
Stórsveit TónKstarskólans:
Tónleikar í kvöld
Stórsveit Tónlistarskólans á
Akureyri heldur tónleika í
Samkomuhúsinu á Akureyri í
kvöld kl. 20.30. Hljómsveitin
er skipuð 18 hljóðfæraleikur-
um og stjórnandi hennar er
Norman H. Dennis.
Tónleikarnir eru haldnir í
tilefni af Danmerkurferð hljóm-
sveitarinnar en hún leikur á vina-
bæjamóti í Randers dagana 14,-
24. ágúst.
Á tónleikunum verða leikin
mörg vinsæl lög og á meðal þeirra
eru: „Mood Indigo“, „The
Preacher", „La Bamba“, „Little
Brown Jug“, „Star Dust“ og „I
just can’t stop loving you“.
Stórsveit Tónlistarskólans hef-
ur starfað frá 1983 og stjórnaði
Edward J. Fredriksen henni
fyrstu 3 árin en síðan hafa Finnur
Eydal og Norman H. Dennis
stjórnað sveitinni. Hún hefur
leikið á fjölmörgum tónleikum
og einnig fyrir ríkisútvarpið.
Ennfremur hefur sveitin tekið
þátt í námskeiðum og leikið und-
ir stjórn Mikael Radberg frá
Svíþjóð, Paul Weeden frá Noregi
og Michael Jaques frá Englandi.
Egilsstaðir:
Staða bæjarsjóðs að
mörgu leyti góð
Mikil óvissa ríkir um hverjar
tekjur Egilsstaðabæjar verða í
raun í ár. Margt bendir til að
Iitffl hluti
spariijár á
neikvæðum
vöxtum
- aukning hjá Kaup-
þingi Norðurlands hf.
Neikvæðir raunvextir eru ein-
göngu á almennum sparisjóðs-
bókum og tékkareikningum,
segir Jón Hallur Pétursson hjá
Kaupþingi Norðurlands hf.
Þetta á ekki við um skiptikjara-
reikninga, en stór hluti af
sparifé bankanna er á þannig
reikningum.
Jón Hallur telur að fólk hafi
eingöngu eyðslufé á almennum
sparisjóðsbókum og tékkareikn-
ingum og hugsi þá frá degi til
dags, en kaupi verðbréf með það
í huga að geyma fé þar í ákveð-
inn tíma. Á verðbréfamarkaðin-
um eru vextir nú frá 7,2%, sem
eru á spariskírteinum rfkissjóðs
og upp í ca. 13% ávöxtun.
Stöðug aukning hefur verið í
viðskiptum hjá Kaupþingi
Norðurlands, „en ég vil benda á
að við höfum ekki starfað nema í
rúmt ár og ég reikna með því að
okkur vaxi áfram fiskur um hrygg“.
_____________________kjó
Húnavatnssýslur:
Verslunar-
mannahelgin
róleg hjá
lögreghmni
Að sögn lögreglunnar í Húna-
vatnssýslu var verslunar-
mannahelgin að öllu leyti
óvenju róleg og umferðin lítið
meiri en um aðrar helgar í
sumar.
Reynt var að halda tvo dans-
leiki en báðir féllu þeir niður þar
sem aðeins einn gestur kom á
dansleikinn sem vera átti á föstu-
dagskvöldið en fjórir mættu á
laugardagskvöldið. Fjögur minni-
háttar óhöpp urðu í umferðinni
en engin slys á fólki. Einn öku-
maður var kærður fyrir meinta
ölvun við akstur og nokkrir voru
kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá
sem hraðast ók var tekinn á 139
km hraða svo hann losnar trúlega
við ökuskírteinið sitt um nokkurt
skeið. fh
launþegar minnki við sig yfir-
vinnu vegna staðgreiðslunnar,
þetta getur orðið til þess að
heildarlaunagreiðslur lækka og
við það lækka útsvarsstekjur
sveitarfélagsins.
Einnig ríkir töluverð óvissa um
álagningu á eftiráskatti, upplýsti
Sigurður R. Símonarson bæjar-
stjóri á Egilsstöðum í samtali við
Dag. Reynt var að gera ráð fyrir
þessari óvissu í fjárhagsáætlun,
tekjur voru þess vegna áætlaðar í
lágmarki og það sama var gert
varðandi útgjaldahliðina í fjár-
hagsáætluninni. í ágústmánuði
verður fjárhags- og framkvæmda-
áætlun endurskoðuð með tilliti til
þess að þá verður álagningu lokið
og þá sést væntanlega hver þró-
unin verður. „Staða bæjarins er
að mörgu leyti ágæt, því að hluti
tekna bæjarins kemur reglulega
sem áður, og þá á ég við
útsvarshluta launafólks. Nú bæt-
ast við útsvarsgreiðslur af áætluð-
um tekjum þeirra sem eru í sjálf-
stæðum atvinnurekstri og skila
reglulega, þannig að við erum
með heldur hærra innheimtu-
hlutfall af útsvari en áður.“
Sigurður sagði hins vegar að
það hefði gengið verr að inn-
heimta aðstöðugjöld og fast-
eignagjöld fyrirtækja. Hann taldi
skýringuna vera þá, að það væri
gengið það hart eftir staðgreiðslu-
skattinum að fyrirtækin létu
sveitarfélögin sitja á hakanum
þótt þau þyrftu þá að greiða
dráttarvexti. kjó
Hitaveita Siglufjarðar:
Leitað að nýju
Samkvæmt skýrslu Orkustofn-
unar frá því síöastliðið haust er
jarðhitasvæði Hitaveitu Siglu-
fjarðar í Skútudal fullnýtt og
annar það ekki þörf fyrir heitt
vatn á Siglufirði. Innan
skamms er von á sérfræðingum
stofnunarinnar norður til þess
að leita leiða til aukinnar orku-
öflunar fyrir bæinn.
Jarðhitasvæðið í Skútudal hef-
ur lengi verið til vandræða vegna
þess hve illa svæðið liggur með
tilliti til snjóflóðahættu. Á svæð-
inu eru ellefu holur en aðeins
þrjár þeirra hafa verið virkjaðar.
Tvær holurnar hafa raunar aðeins
verið notaðar sem varaholur og í
snjóflóðum í vetur lenti önnur
þeirra, hola 10, einmitt undir
flóði.
í ljós hefur komið- að holan er
ekki eins illa farin og gert var ráð
fyrir. Ákveðið hefur verið að
byggja yfir dælubúnað holunnar,
en þó aðeins til bráðabirgða, í
þeirri von að nýtt hitasvæði finn-
ist utan dalsins. Pannig er ætlunin
að treysta ekki lengur á holu tíu
en nýta hinar tvær meðan þær
endast.
Viðnámsmælingar sem gerðar
voru fyrir tíu árum gefa vísbend-
ingar um að þetta framtíðarsvæði
hitaveitunnar kunni að vera að
finna í Hólshyrnunni sem er
sunnan Skútudals. Þá hafa menn
von um að jarðhiti kunni að finn-
ast í Skarðsdal sem er vestan
fjarðarins. Ef þessar vonir rætast
ekki þarf að sögn Sverris Sveins-
sonar veitustjóra að fá sterka
raflínu til Siglufjarðar og treysta
á rafhitun í framtíðinni, þ.e.a.s.
ef á annað borð á að nota inn-
lenda orkugjafa. ET
Vinningstölur 30. júií 1988.
Heildarvinningsupphæð kr. 4.670.766.-
1. vinningur kr. 2.035.732.-
Aðeins einn þátttakandi var með 5 réttar tölur.
2. vinningur kr. 609.606.-
Skiptist á milli 274 vinningshafa kr. 2.252 á mann.
3. vinningur kr. 1.422.428.-
Skiptist á milli 5492 vinningshafa sem fá 259 kr. hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá mánu-
degi til laugardags og loka ekki fyrr
en 15 mínútum fyrir útdrátt.
jarðhitasvæði
WBSSH5/32
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasimi: 685111
íHugsum fram
%
'""'vr
*A>»i K ..
«w’
. >r
. 4
K
á veginn!
Brýr og ræsi
krefjast sérstakrar
varkárni. Draga
verður úr hraða og
fylgjast vel með
umferð á móti.
Tökum aldrei
áhættUl yu^EBOAB
ERIIM
FUJTTIR
frá Nóatúni að
HÁTÚNI12 í
Sjálfsbjargarhúsið
HlðLPðRTÆKJðBdnKinn
Hátunl2 &21333 ~LTLT