Dagur


Dagur - 03.08.1988, Qupperneq 13

Dagur - 03.08.1988, Qupperneq 13
 í i i „Þið komuð ekki til að sofa . . sungu Greifarnir og syngja enn um stemmningu verslunarmannahelgarinnar. Helgarinnar þegar landinn leggst í ferðalög. íslands unglinga fjöld var á ferðinni um helgina og lögðu um 4000 manns leið sína á Melgerð- ismela í Eyjafirði - fóru á Eina með öllu. Vonandi skemmtuð þið ykkur vel! Úti í skógi og inni í tjaldi, eða bara hvar sem er var mannskapurinn á Melunum í fínu formi - eins og við sjáum mætavel á myndunum. Nema hvað vantar skóginn. En hverju skiptir það? Það er alveg nóg að vera í stuði, syngja og tralla fram á morgun. Það er verslunarmannahelgin. Myndir tala sínu máli og það gera líka þessar myndir sem teknar voru á Melgerð- ismelum um helgina. Við sjáum unglinga sem skína af kátínu og fjöri og það minnir á hin spöku orð leiðarahöfundar Dags fyrir helgina. Þar sagði efnislega að markmið unglinga á útisamkomu væri ekki að ná sér í vín og verða vitlaus, heldur vilji þeir skemmta sér með vinum og kunningjum, komast á sjens og vaka um nætur. Það er kjarni málsins og verða því ekki höfð fleiri orð um málið að sinni. mþþ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.