Dagur - 26.08.1988, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 26. ágúst 1988
viðtal dagsins
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON
(Sauðárkróki vs. 95-5960), EGILL BRAGASON,
FRfMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN JÓSTEINSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir), STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, FÍEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Mikið fylgi
stjómarflokkanna
Ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar ætti að hafa
alla burði til að takast á við efnahagsvand-
ann, þannig að árangur náist. Skoðanakann-
anir hafa ítrekað sýnt að ríkisstjórnarflokk-
arnir þrír, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknar-
flokkur og Alþýðuflokkur hafa um tvo þriðju
hluta kjósenda á bak við sig. Nú síðast stað-
festu niðurstöður skoðanakönnunar Skáís og
Stöðvar 2 þetta fylgi ríkisstjórnarflokkanna.
Sá böggull hefur þó fram til þessa fylgt
skammrifi að ríkisstjórnin í heild sinni nýtur
ekki jafn óskoraðs trausts kjósenda. Má ef-
laust skrifa það á reikning sundurlyndisfjand-
ans, sem stjórnarþingmönnum hefur ekki
tekist nægilega vel að hemja.
Skoðanakannanir hafa jafnframt ítrekað
sýnt að stjórnarandstaðan nýtur ekki mikillar
hylli kjósenda. Alþýðubandalagið er á góðri
leið með að skipa sér á bekk með flokksbrot-
unum á þingi og ef flokkurinn réttir ekki sinn
hag á næstu mánuðum, verða þingmenn
hans taldir á fingrum annarrar handar eftir
næstu kosningar. Fylgið hrynur jafnt og þétt
af Borgaraflokknum og í skoðanakönnun
Skáís og Stöðvar 2 er það komið niður í 3%.
Eini stjómarandstöðuflokkurinn, sem hefur
verulegt fylgi ef marka má skoðanakannanir,
er Kvennalistinn. í Skáís-könnuninni lendir
hann í 3. sæti á eftir Sjálfstæðisflokki og
Framsóknarflokki með 21,1% fylgi. Það er
mun betri árangur en flokkurinn náði í síð-
ustu alþingiskosningum, en samt sem áður
verri útkoma en í mörgum fyrri skoðana-
könnunum. Fylgið sækir Kvennalistinn þó
fyrst og fremst til óánægðra Alþýðubanda-
lagsmanna, enda eru þessir tveir flokkar í
harðri samkeppni um sama fylgið.
Niðurstöður allra skoðanakannana, sem
gerðar hafa verið á undanförnum mánuðum á
fylgi stjórnmálaflokkanna, eru í raun sam-
hljóða: Stjórnarflokkarnir njóta fylgis tveggja
af hverjum þremur kjósendum, þ.e. ef ein-
ungis eru teknir þeir sem taka afstöðu.
Það er gott fyrir stjórnarflokkana að vita af
þessu mikla fylgi er þeir nú freista þess að
treysta undirstöður atvinnulífsins og kveða
verðbólgudrauginn í kútinn að nýju. Ríkis-
stjórnin fær naumast annað tækifæri til að
vinna tiltrú hins almenna kjósanda, þannig
að samræmi náist milli stuðnings við einstaka
ríkisstjórnarflokka og ríkisstjórnina í heild
sinni. BB.
Ferðamannatímabilið virðist vera að lengjast segir Margrét Jóhannsdóttir hjá Ferðaþjónustu bænda. Mynd: ap
Ferðaþjónusta bænda:
Flakkarar njóta
vinsælda í sumar
- spjallað við Margréti Jóhannsdóttur
A undanförnum árum hefur Ferðaþjónustu bænda verið að
vaxa fiskur um hrygg og nú í sumar gátu þeir sem land lögðu
undir fót og gistu á ferðaþjónustubæjum valið um 99 bæi víðs
vegar um landið. Engir tveir bæir eru eins og því ættu flestir
að finna eitthvað við sitt hœfi. Hjá Ferðaþjónustu bænda er
boðið upp á mjög fjölbreytta afþreyingu og má sem dœmi
nefna hestaferðir, jöklaferðir, silungs- og laxveiði. Þá geta
þeir sem áhuga hafa stundað rjúpna- og gæsaveiði á lögboðn-
um veiðitíma þessara fugla. Berjatínsla og bátsferðir eru í
boði og ferð í réttir að hausti er einnig á meðal þess sem upp
á er boðið. Þeim sem gista ferðaþjónustubœi er einnig boðið
upp á að taka þátt í daglegum störfum fólksins á bœnum.
Þeim fer mjög fjölgandi sem
nota sér þá fjölbreyttu þjónustu
sem boðið er upp á hjá Ferða-
þjónustu bænda og sagði Margrét
Jóhannsdóttir hjá ferðaþjónust-
unni að gott hljóð væri í þeim
bændum sem bjóða upp á slíka
þjónustu. „Ferðamannatímabilið
virðist vera að lengjast," sagði
hún og bætti við að nú væri bók-
að mun lengra fram á haustið en
áður hefði tíðkast. Var hún að
vonum ánægð með það, sem og
einnig að veruleg aukning hefur
orðið í nýtingunni. Júnímánuð
sagði hún þó ekki hafa verið sér-
stakan, fremur leiðinlegt veður á
Suðurlandi hafi sett nokkurt strik
í reikninginn. Þó taldi hún
nýtinguna ekki hafa verið verri
en í júnímánuði í fyrra.
99 bæir
Nú í sumar bættust 11 nýir bæir
við í keðjuna og eru þeir eins og
áður sagði alls 99. Svokallað
svæðisfulltrúakerfi er við lýði og
allir nýir bæir sækja sérstaklega
um að komast að í ferðamanna-
þjónustuna. Fulltrúar fara á stað-
inn og gefa umsögn um hann og
stjórn Ferðaþjónustu bænda gef-
ur síðan út leyfi. Kröfur sem
gerðar eru til bæjanna eru nokk-
uð miklar og ákveðinn standard
sem þarf að uppfylla.
Islendingar flestir
„Markaðurinn er hvergi nærri
mettur, það er greinilegt að
íslendingar eru mikið að vakna,
þeir virðast hafa haldið að þessi
þjónusta stæði einungis útlend-
ingum til boða. Nú er stór hluti
þeirra sem notfæra sér þessa
þjónustu íslendingar og þeir sem
panta gistingu í gegnum okkur
eru að stærstum hluta íslending-
ar, eða 65%. Þjóðverjar koma
næstir í röðinni, eru 23% þeirra
sem við höfum skráð, aðrar þjóð-
ir eru ekki með eins stórt
hlutfall," sagði Margrét og bætti
við að Norðurlandaþjóðirnar
virtust vera að sækja í sig veðrið
og ferðalög þeirra væru mjög að
aukast.
Flakkarar
Gistiflakkari og veiðiflakkari eru
á meðal nýjunga sem Ferðaþjón-
usta bænda bauð upp á í fyrsta
skipti í sumar. Margrét sagði að
flökkurum þessum hefði verið vel
tekið. í gistiflakkara felst að fólk
kaupir minnst sjö nátta gistingu
og getur bókað sig með eins dags
fyrirvara. Margrét sagði að gisti-
flakkarinn hentaði mjög vel fyrir
fólk sem ekki vildi gera stífar
áætlanir varðandi ferðalög sín.
Veittur er 10% afsláttur á gist-
ingu noti menn gistiflakkarann.
Varðandi veiðiflakkarann
sagði Margrét að tekin hefðu ver-
ið þrettán veiðisvæði á landinu og
ítarlegar upplýsingar um veiði á
þessum svæðum hefðu verið
gefnar í bæklingi. Til að fá þenn-
an bækling þurfa menn að kaupa
tíu veiðimiða, sem greitt er með
fyrir veiði og gilda þá mismun-
andi margir miðar á hverju svæði
fyrir sig, eða allt frá tveimur upp
í þrettán. „Veiðiflakkarinn vakti
mikla athygli og fólk sem prófaði
hann var mjög ánægt. Hann er
örugglega eitthvað sem á framtíð
fyrir sér,“ sagði Margrét. mþþ
Hjá Ferðaþjónustu bænda er boðið upp á mjög fjölbreytta afþreyingu og má
sem dæmi nefna hestaferðir, jöklafcrðir, silungs- og laxveiði.