Dagur - 26.08.1988, Page 9

Dagur - 26.08.1988, Page 9
26. ágúst 1988 - DAGUR - 9 Hestaíþróttir Hestamennska er nokkuð sem margir segjast lifa fyrir. Norðlenskir hestamenn eru þekktir fyrir áhuga sinn og elju og ber hið glæsilega svæði að Melgerðismelum þess m.a. vitni. Hestaíþróttir eru tiltölulega nýtt hugtak í hestamennsku en munurinn á keppni í þeim og t.d. gæðinga- keppni er sá, að í hestaíþróttum er lögð áhersla á knapann og þar er það hann sem er að fara undir dóm, að sjálfsögðu með sínum hesti. Þar er sýningin útfærð af mun meiri nákvæmni og aðrir þættir teknir til dóms. í gæðingakeppni er það t.d. vilji og fegurð í reið sem er sérstaklega dæmt á tvöföldu vægi, en í íþróttakeppni er allt tekið saman án þess að vera tvöfaldað. f íþróttakeppni getur knapinn skipt um hest fram á síðustu stundu því það er hann sem er að keppa, en í gæðingakeppni má skipta um knapa fram á síðustu stundu því þar er verið að dæma hestinn. Þið verðið öll með harðsperrur á morgun - Sigurbjörn Bárðarson fslandsmeistari í hestaíþróttum tekinn tali í síðustu viku fór fram nám- skeið í hestaíþróttum fyrir norðlenska hestamenn, og fór það fram á Melgerðismelum. Þar fór fremstur leiðbeinand- inn, Sigurbjörn Bárðarson Islandsmeistari í hestaíþróttum og þegar blaðamenn komu á staðinn var hann önnum kaf- inn við að gefa áhugasömum þátttakendum góð ráð. „Mundu eftir hliðarhvetjandi Mjög góð aðsókn var á námskeiðið hjá Sigurbirni og áhugi mikill. Námskeiðið mikil lyftistöng Einn af nemendum Sigur- björns á námskeiðinu var Kristín Thorberg og gaf hún sér tíma til þess að spjalla aðeins við okkur þrátt fyrir að við værum að trufla hana á miðju námskeiði. „Við erum að læra að vinna með hestinn og sýna hvað hann er orðinn þjálfaður. Það er sem sé verið að þjálfa knapann," sagði hún aðspurð um hvað þau væru að læra. Kristín sagði námskeiðið standa í 4 daga og taka 2-3 tíma í einu. „Þetta er mikil lyftistöng fyrir okkur að fá mann eins og Sigurbjörn, sjálfan íslandsmeist- arann. Bikarmót er framundan um næstu helgi og flest okkar sem erum hér munum taka þátt í því,“ sagði hún að lokum. „Það er verið að þjálfa knupann," ságði Kristín Thorberg. fæti, því hann gefur þér iykilinn! Þið eigið að leita eftir að fá skrokkinn til þess að víkja undan hliðarhvetjandi fæti! Svo verðið þið öll með harðsperrur á morgun!“ Þessar og fleiri fyrirskipanir dundu á nemendunum en við spurðum Sigurbjörn fyrst að því, hvað hann væri að kenna þeim. „Eg er hingað kominn gagn- gert til að halda íþróttanámskeið í keppnisíþróttagreinum. Fólk- inu eru kennd undirstöðuatriði í þessum greinum sem er alls 6 talsins. Þær eru 5 gangtegundir (fimmgangur), tölt, 4 gangteg- undir (fjórgangur), gæðinga- skeið, hlýðniæfingar og hindrun- arstökk. Við erum að fara í gegn- um þessar greinar og ég miða við að þetta fólk sé vant. Ég miðla af minni reynslu og í kjölfar nám- skeiðsins verður haldið bikarmót í hestaíþróttum.“ - Er þátttaka a nálnskeiðinu góð? „Við miðuðum við að hafa um 20 þátttakendur en þeir urðu heldur fleiri eða 29 svo áhuginn er feikna mikill, þrát.t fyrir að þessi tími síðla sumars sé ekki sá besti til námskeiðahalds.“ - Gerir þú mikið af því að halda svona námskeið? „Nei, ég geri ekki mikið af því, reyndar það lítið að það heyrir til undantekninga.“ Sigurbjörn segir aðstöðuna á Melgerðismelum sérstaklega góða frá náttúr- unnar hendi. - Hvernig líst þér á aðstöðuna á Melgerðismelum? „Hún er alveg sérstaklega góð frá náttúrunnar hendi og þar hef- ur verið unnið feikna mikið upp- byggingarstarf. Svæðið býður því upp á einhverja bestu valkosti af svæðum á landinu og er í hópi bestu svæða.“ - Nú hefur töluvert verið deilt innan Landssambands hesta- mannafélaga og Eyfirðingar dragast mjög inn í þá deilu, hvert er þitt álit á þessum málum? „Mér þykir mjög miður að deilurnar skuli hafa þróast á þennan veg sem þær hafa gert. Menn eiga að geta sest niður. :ekist í hendur og klárað sín mál. Þess í stað er sífellt verið að kasta bensíni á eldinn og öll blaðaskrif eru ekki til þess að bæta stöðuna. Þau ýta bara undir og kynda. Best væri að reyna að láta staðar numið, fá góða menn til liðs við stg og leiða þetta saman á nýjan leik. Það þarf að létta á spenn- unni og hverfa frá öllum blaða- skrifum." - Að lokum Sigurbjörn, eru norðlenskir hestamenn námfús- ir? „Já, virkilega og meðal þeirra ríkir góður andi.“ Myndir: GB. Texti: VG Hikaði ekki við að fara á námskeiðið Næst tókum við tali ungan og efnilegan hestamann, Marinó Aðalstcinsson en hann er meðlimur í hestamannafélag- inu Þjálfa í Þingeyjarsýslu. Hann ætlaði að taka þátt í bikarmótinu og notaði tæki- færið til þess að sækja nám- skeiðið. Hann sagðist oft hafa farið á námskeið sem þessi og segir gott að fá tilsögn í hvernig vinna á með hestana. „Sigurbjörn er mjög góður leiðbeinandi og við lærum mikið af þessu. Ég hikaði ekki við að fara á þetta námskeið hjá honum, það var engin spurning,“ sagði hann og var þar m$ð rokinn. Marinó Aöalstcinsson í Þjálfa, Þingeyjarsýslu.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.