Dagur - 26.08.1988, Side 13

Dagur - 26.08.1988, Side 13
26. ágúst 1988 - DAGUR - 13 hvaðerað gerast? Kaupangskirkja endur- vígð á sunnudag Endurvígsla Kaupangskirkju fer fram sunnudaginn 28. ágúst kl. 13.30, en gagngerar endur- bætur hafa verið gerðar á kirkjunni. Séra Sigurður Guðmundsson vígslubiskup í Hólastifti vígir kirkjuna, séra Birgir Snæbjörns- son prófastur og séra Hannes Örn Blandon þjóna fyrir altari. Séra Bjartmar Kristjánsson flytur ritningarorð, kirkjukórar Kaupangs- og Munkaþverár- sókna, undir stjórn Þórdísar Karsldóttur syngja. Atli Guðlaugsson leikur á trompet og Þuríður Baldursdóttir syngur einsöng við undirleik Mögnu Guðmundsdóttur, Guð- rúnar Þórarinsdóttur og Huldu Bjarkar Garðarsdóttur. Sem fyrr segir fer athöfnin fram á sunnudaginn og hefst kl. 13.30. Akureyri: Kaffisala í Zontahúsi Kaffisala og hlaðborð verður í Zontahúsinu, Aðalstræti 54, sunnudaginn 28. ágúst klukkan 14 til 17. Nonnahúsið verður opið á sama tíma, aðgangur að safninu er ókeypis. Circus de Espana á Akureyri: Sýningar um helgina Spænski sirkusinn Circus de Espana verður með sýningar á Akureyri um helgina og á mánudagskvöld. Tvær sýning- ar fara fram á laugardag og sunnudag og hefjast kl. 15 og 20 báða dagana og kl. 20 á mánudag. Sýningar fara fram við Drott- ingarbraut, á túninu framan við Samkomuhúsið. Miðasalan fer fram á sýningarsvæðinu og er opin allan daginn. Sýningarfólk- inu er margt til lista lagt og þarna er boðið upp á frábæra skemmt- un fyrir alla fjölskylduna. Hvítasunnukirkjan á Akureyri: Ed Femandez prédikar Ed Fernandez mun prédika á þremur samkomum í Hvíta- sunnukirkjunni á Akureyri um helgina. f fréttatilkynningu frá Hvíta- sunnusöfnuðinum segir að Ed prédiki fagnaðarerindið sem kraft Guðs þeim sem trúa. „Þess vegna prédikar hann þennan Jes- úm þó hann sé hæddur, hafi verið grýttur, hafi verið settur í fang- elsi fyrir trú sína og þó honum hafi oft verið hótað lífláti. Á hverjum degi fer Ed út á götur heimaborgar sinnar og prédikar fagnaðarerindið.“ Þeim sem vilja kynnast þeim Jesúm sem Ed Fernandez þjónar svo dyggilega, er velkomið að hlýða á hann um helgina í Hvíta- sunnukirkjunni v/Skarðshlíð. Samkomurnar hefjast kl. 20.00 á sunnudaginn 28. ágúst og kl. 20.30 á mánudag og þriðjudag. Minnmgar- leikur um Óskar Á mánudagskvöldið fer fram knattspyrnuleikur á Akureyrar- velli milli Þórs og Leifturs. Leikurinn er í minningu Óskars Gunnarssonar, sem um árabil var burðarás í liði Þórs. Leikurinn hefst kl. 19.00. við Hvannavelli. Símar 24119 og 24170. Vegna mikillar sölu undanfarið vantar nýlega bíla á söluskrá og í sýningarsaí Sundlaugin Syðra-Laugalandi Frá og með 29. ágúst verður sundlaugin opin sem .hér segir: Mánudögum frá kl. 20.30-21.30. Kvennatími fyrir fullorðna. Föstudögum frá kl. 20.30-21.30. Karlatími fyrir fullorðna. Sunnudaga frá kl. 14.00-16.00. Almenningstími. Einkatíma er hægt að panta í símum 31228 og 31175. Sjáumst. Sundlaugarverðir. Óskum eftir að ráða ★ Starfskraft til skrifstofu- og sölustarfa ★ Starfskraft til framleiðslustarfa Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Upplýsingar veittar á skrifstofu okkar milli kl. 10 og 12 næstu daga. Kjötvinnslan Hrímnir v/Hvannavelli, sími 22080.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.