Dagur - 26.08.1988, Side 20
Haldið veisluna eða fundinn
í elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur.
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
Sirkusmenn óhressir:
Sóttu um skemmtana-
leyfi í aprfi
„Ég sótti um skemmtanaleyfi
til bæjarfógetans á Akureyri í
apríl og tilgreindi að við yrðum
á Akureyri í ágúst,“ sagði
Jörundur Guðmundsson,
umboðsmaður sirkussins sem
nú dvelur á Akureyri í samtali
Loðnuveiðin
tregum
þessar mundir
- Hólmaborgin að landi
með 4-500 tonn
„Loðnuveiðin gengur ekki
neitt um þessar mundir.
Hólmaborgin kemur að öllum
líkindum í nótt til Eskifjarðar
með um 4-500 tonn,“ sagði
Þorsteinn Kristjánsson skip-
stjóri og rekstrarstjóri Hrað-
frystihúss Eskifjarðar hf. í
samtali við Dag í gær.
Þorsteinn var einmitt skipstjóri
í fyrstu veiðiferð Hólmaborgar-
innar sem kom með fyrsta loðnu-
farminn til löndunar á þessari
vertíð. Skipið kom þá með um
1200 tonn til Eskifjarðar og fékk
greitt 3200.- kr. fyrir tonnið.
„Það eru tvö önnur skip á mið-
unum, Háberg GK og Börkur
NK og það hefur verið jafn tregt
hjá þeim. Loðnuveiðin hefur
yfirleitt gengið frekar treglega á
þessum árstíma og það er ekki
fyrr en í október og nóvember
sem skemmtilegast hefur verið að
eiga við hana,“ sagði Þorsteinn
einnig. -KK
við Dag, heldur óhress með
þau ummæli bæjarfógeta í
blaðinu í gær, að ekki hafí ver-
ið sótt um leyfí í tæka tíð.
Jörundur sagði að í maí hafi
hann fengið svar þess efnis að
skemmtanaleyfi verði veitt, ef
þeim skilyrðum verði fullnægt,
að aðgöngumiðar á Akureyri
verði sérprentaðir á íslensku.
Féllst hann á þetta, en þegar til
kom þótti sérprentun það dýr, að
fyrir tæpum tveimur vikum
hringdi hann til Arnars Sigfús-
sonar hjá fógetaembættinu á
Akureyri og spurði hvort ekki
væri hægt að fá undanþágu vegna
miðanna.
„Þegar sirkusinn kom til
landsins, tók Tollstjóraembættið
í Reykjavík alla aðgöngumiða
sem nota átti, taldi þá og tók
númer af hverjum einasta þeirra.
Þetta var því allt samkvæmt lög-
um og reglum sem mér voru sett-
ar í Reykjavík í fyrra þegar
undirbúningur hófst.“ Að sögn
Jörundar hafði Arnar sagt að
hann sæi ekki ástæðu til annars
en að hægt væri að nota upphaf-
legu miðana, nema að hann
þyrfti að koma með þá tímanlega
til stimplunar. Sæi hann ekki að
þarna væri um vandamál að
ræða, fyrst tollstjórinn í Reykja-
vík hefði skráð allar tölur hjá sér.
Á miðvikudagsmorgun fór
Jörundur með miðana til stimpl-
unar á Akureyri, en þá neitaði
fógeti alfarið að þeir yrðu notað-
ir. Þurfti því í flýti að láta sér-
prenta aðgöngumiða á skemmt-
anirnar. Þeir voru tilbúnir síð-
degis í gær og var þegar farið
með þá til stimplunar hjá fógeta.
VG
Sirkus á Akureyri er ekki hversdagslegur atburður og kærkomin tilbreyting, ekki síst fyrir yngri kynslóðina.
Mynd: TLV
RQdsstjómin hugsar málin
- 9% launlækkun skilar einungis 3% lækkun verðlags
Ríkisstjórnin kom saman til
fundar í gær til að ræða efna-
hagsaðgerðir. Allir stjórnar-
ilokkarnir höfðu samþykkt
daginn áður að reyna niður-
færsluleiðina, en á þessum
fundi var ekki tekin nein
ákvörðun þar að lútandi. Hins
vegar var samþykkt að taka
upp viðræður við launþega-
hreyfíngarnar og verður fyrsti
fundurinn með stjórn ASÍ í
dag.
Flugklúbbar á Akureyri:
Útgarður keyptur af MA
- Miðstöð fyrir flugsport á Melgerðismelum
Utgarður, skáli Menntaskól-
ans á Akureyri, hefur nú verið
seldur klúbbum á Akureyri
sem hafa það sameiginlega
áhugamál að líða um loftin blá.
Þetta eru Vélflugfélag Akur-
eyrar, Svifflugfélag Akureyr-
ar, Fallhlífarklúbbur Akureyr-
ar og Flugmódelfélag Akur-
eyrar.
Menntskælingar hafa farið
ófáar ferðirnar í Útgarð og
stundað útivist í Vaðlaheiðinni
en oft hefur verið erfitt að kom-
Útgarður, skáli MA, hefur verið seldur fjórum félögum á Akureyri.
Mynd: TLV
ast að skálanum vegna ófærðar,
auk þess sem vatninu hætti til að
frjósa í leiðslum yfir háveturinn.
Það hefur staðið til um nokkurn
tíma að selja skálann.
Davíð Jóhannsson hjá Vél-
flugfélagi Akureyrar sagði að
Útgarður yrði fluttur inn á Mel-
gerðismela í haust. Þar verður
hann settur á steyptar undirstöð-
ur frá stríðsárunum, sem reyndar
hafa verið endurbættar, og þar
með fá klúbbarnir góða aðstöðu
fyrir starfsemi sína.
„Þetta er mjög ánægjulegt spor
sem við erum að taka og það
verður áreiðanlega gaman þarna
næsta sumar. Skálinn verður
miðstöð alls flugsportsins og
þarna ætlum við að hafa það
huggulegt á sumrin. Aðstaðan á
Melgerðismelum er stórkostleg,“
sagði Davíð.
Hann sagði að skálinn hefði
verið keyptur fyrir fé sem safnað-
ist á Flugdögum fyrir nokkrum
árum, en það var látið ávaxtast
uns klúbbarnir höfðu bolmagn til
að ráðast í kaup á viðeigandi
húsnæði. SS
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra hefur látið Þjóðhagsstofn-
un og Verðlagsstofnun reikna út
hve mikil áhrif niðurfærsla launa
myndi hafa á verðlag og til hve
mikils hluta launþega væri hægt
að ná með þessari aðferð.
Samkvæmt heimildum Dags
eru upplýsingarnar ekki uppörv-
andi fyrir stuðningsmenn niður-
færsluleiðarinnar. Þar kemur
fram að einungis væri hægt að ná
til um 80% launþega með lækkun
og sú aðgerð myndi einungis skila
um 2-3% lækkun verðlags miðað
við 9% niðurfærslu launa.
Stjórn ASÍ fundaði fram á
kvöld í gær og m.a. kom Ás-
mundur Stefánsson formaður
sambandsins fyrr úr ferð sinni til
Færeyja, en þar var hann á fundi
Samtaka norrænu verkalýðssam-
bandanna, vegna þessa máls.
Líklegt var talið að Alþýðusam-
bandið myndi samþykkja ein-
hvers konar viðræður við ríkis-
stjórnina, þótt svo að mikil
andstaða sé innan ASÍ við niður-
færsluleiðina.
Kristján Thorlacius formaður
BSRB hefur einnig lýst sig and-
vígan niðurfærsluleiðinni, en
hann flýtti einnig för sinni frá
Færeyjum vegna þessa máls. Það
blæs því ekki byrlega fyrir niður-
færsluleiðinni og virðist hún æ
erfiðari eftir því sem hún er betur
skoðuð. AP
Alþjóðlegt skákmót í London:
Amar og Bogi með
þrjá viniimga af sex
- 180 keppendur á mótinu
Fjórir skákmenn úr Skákfé-
lagi Akureyrar, þeir Jón
Garðar Viðarsson, Bogi
Pálsson, Arnar Þorsteinsson
og Tómas Hermannsson,
taka nú þátt í alþjóðlegu
skákmóti í London. Alls taka
180 keppendur þátt í mótinu,
stórmeistarar, alþjóðlegir
meistarar og stigalægri skák-
menn.
Dagur hafði samband við þá
félaga í gær og var þá 6. umferð
að ljúka, en alls verða tefldar 10
umferðir eftir Monrad kerfi.
Arnar og Bogi höfðu báðir náð
í 3 vinninga í sex skákum og
Tómas Hermannsson 2l/i. Jón
Garðar var einnig með 2lA vinn-
ing en skák hans í 6. umferð var
ekki lokið. Að sögn Tómasar
var Jón Garðar með betri
stöðu.
Arnar gerði jafntefli í 6.
umferð, Bogi vann sína skák,
en Tómas tapaði. Aðspurður
sagðist Tómas hafa teflt við
enskan alþjóðlegan meistara í
1. umferð og í 4. umferð lenti
hann á móti undrabarni frá
Englandi sem mjög er hampað í
sjónvar nu þar í landi. Jón
Garðar t’efur lent á móti þrem-
ur aiÚJölegum meisturum og
náð tveimur jafnteflum út úr
þeim viðureignum.
Jón Garðar hefur teflt víða
að undanförnu en hinir hafa
litla reynslu af alþjóðlegum
skákmótum. Þeir tóku þó þátt í
Reykjavíkurmótinu og hafa
einnig tekið þátt í skólamótum
og teflt með unglingalandsliði.
„Jú, við erum nokkuð sáttir
við frammistöðuna, en vinning-
arnir mættu þó vera fleiri,“
sagði Tómas, en mótinu lýkur
næstkomandi mánudag. SS