Dagur - 06.09.1988, Síða 4
cí SUOAQ — 88BÍ ,r)
4 - DAGUR - 6. september 1988
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍNII: 24222
ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthóll 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON
(Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL BRAGASON,
FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN JÓSTEINSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
„Veltum borðum
víxlaraima“
Samband ungra framsóknarmanna er 50 ára um
þessar mundir. Af því tilefni var haldið sérstakt
afmælisþing á Laugarvatni um helgina, en S.U.F.
var einmitt stofnað þar fyrir hálfri öld. Frá upphafi
hefur verið unnið mjög þróttmikið starf innan
vébanda Sambands ungra framsóknarmanna og
enginn vafi er á því að S.U.F. er virkasta ungliða-
hreyfing stjórnmálaflokkanna í dag.
í 50 ára sögu S.U.F. hafa skipst á skin og skúrir
eins og gengur. Einu sinni í sögu þess munaði
minnstu að sambandið leystist upp í frumeindir
sínar. Það var þegar hluti svokallaðrar Möðruvalla-
hreyfingar ákvað að ganga úr Sambandi ungra
framsóknarmanna eftir harðvítugar deilur innan
S.U.F. í þeim hópi voru margir þeirra sem verið
höfðu í forsvari fyrir S.U.F. um árabil. Það tók því
unga framsóknarmenn nokkurn tíma að jafna sig
eftir áfallið. Síðan hefur stefnan verið upp á við.
50 ára afmælisþing S.U.F. á Laugarvatni var hald-
ið undir kjörorðunum „Veltum borðum víxlaranna"
og er þar skírskotað til þess ástands sem nú ríkir á
fjármagnsmarkaðinum. í stjórnmálaályktun
þingsins, segir meðal annars:
„í 50 ár hefur Samband ungra framsóknarmanna
barist fyrir jöfnuði og jafnrétti byggða á stefnu án
öfga til hægri eða vinstri, lagt áherslu á velferð
þegna landsins og frelsi þeirra til orða og athafna.
Á þessum 50 árum hafa ungir framsóknarmenn
oft gengið fram fyrir skjöldu og brýnt forystumenn
þjóðarinnar og Framsóknarflokksins til átaka við
vandamál, sem þeir hafa viljað leiða hjá sér.
Sé litið til þess ójöfnuðar og misréttis sem hvar-
vetna blasir við í þjóðfélaginu í dag, má ljóst vera
að slíkt ástand er ósættanlegt hugsjónum ungra
framsóknarmanna. Víxlarar og peningafurstar fitna
eins og púkar á fjósbita, meðan undirstöðuatvinnu-
vegirnir, sem þjóðin á efnahagslegt sjálfstæði sitt
að þakka, riða til falls. Sá tími er kominn að hin
breiðu bök fái byrðar að bera og ekki verður ljáð
máls á því eina ferðina enn, að sukkveislan verði
greidd með því að kaupræna þá lægstlaunuðu. Við
þessar aðstæður er lífsnauðsyn að þjóðin öll taki
höndum saman við lausn þeirra gríðarlegu efna-
hagslegu vandamála, sem við blasa. “
í ályktuninni er einnig að finna fjölmargar ábend-
ingar sem lúta að stjórn efnahagslífsins í heild
sinni - ábendingar sem ríkisstjórn Þorsteins Páls-
sonar ætti að taka til gaumgæfilegrar athugunar.
Ungir framsóknarmenn hafa nú sem fyrr margt til
málanna að leggja.
Dagur færir Sambandi ungra framsóknarmanna
árnaðaróskir í tilefni afmælisins. Megi þeir halda
ótrauðir áfram á sömu braut, þjóðinni til heilla og
framfara. BB.
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Fjölmennt og starfsamt
þing á Húnavöllum
Fjóröungsþing Norðlendinga
var haldið aö Húnavöllum dag-
ana 2. og 3. september. Fund-
arstjóri var Valgarður Hilm-
arsson. í upphafi þingsins
iluttu formaður og fram-
kvæmdastjóri sambandsins
ávörp þar sem þeir skýrðu frá
störfum stjórnar á síðasta ári.
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, flutti þar ítar-
legt erindi um félagslega stöðu
landsbyggöarinnar og fjallað
var um kostji landsbyggðar og
landsbyggðina í fréttum.
í skýrslu forrnanns kom fram
að rekstur sambandsins hafði
gengið vel á síðasta ári, tekjur
orðið 2% undir áætlun en gjöld
3% hærri en áætlað hafði verið.
Það setti vissan svip á þingið að
Siglfirðingar hafa sagt sig úr sam-
tökunum og virtust ýmsir fundar-
menn óttast að úrsögn þeirra
mundi veikja stöðu sambandsins.
Ljóst er að margir sveitarstjórn-
armenn taka útreikningum
verkaskiptanefndar um kostnað
af tilfærslu verkefna á milli ríkis
og sveitarfélaga með tortryggni.
Ástæður þess eru margar og rakti
framkvæmdastjórinn þær að
nokkru.
í skýrslu formanns kom fram
að þótt ljóst sé að víða verði sam-
dráttur í hinum dreifðu byggðum
landsins þá þurfi ekki að örvænta
því annars staðar væru blómlegir
vaxtarbroddar. Formaðurinn
hvatti menn til bjartsýni þótt á
móti blési. Hann sagði að sér
virtist skorta kjark til að viður-
kenna vissar staðreyndir í
byggðamálum og hvatti þing-
menn og sveitarstjórnarmenn til
að taka á þeim málum.
Nokkrar umræður urðu um
skýrslur formanns og fram-
kvæmdastjóra og var auðheyrt að
fundarmenn voru ákveðnir í að
takast á við þau vandamál sem
steðja nú að landsbyggðinni.
í ræðu félagsmálaráðherra
kom fram að hann taldi ástæðu til
að gera könnun á fylkjaskipan í
Noregi til að hafa til hliðsjónar
þegar farið yrði í alvöru að ræða
að koma á þriðja stjórnsýslustig-
inu hérlendis. Ráðfierrann kom
víða við og ræddi m.a. húsnæðis-
mál á landsbyggðinni og þar
þyrfti að gera stórt átak.
Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðisráðherra, kvaddi sér
hljóðs og kvaðst vera sammála
félagsmálaráðherranum um flest
sem hann hefði sagt. Sagði Guð-
mundur að gott væri ef Jóhanna
kynnti þessa stefnu sína ítarlega
fyrir flokksbræðrum sínum í
ríkisstjórninni.
Fyrri fundardaginn var mála-
flokkurinn um lífið á landsbyggð-
inni, framsögumenn Sigfús
Jónsson, bæjarstjóri á Akureyri,
Marteinn Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri á Sauðárkróki og
Kristinn G. Jóhannsson skóla-
stjóri á Akureyri.
Sigfús Jónsson sagði að stærstu
kostir við búsetu í dreifbýli væru
lífsrými og tengsl við náttúru
landsins, háar tekjur, einkanlega
í sjávarplásum, fólk héldi þar
betur sínum persónulegu ein-
kennum og rynni ekki saman við
fjöldann og síðast en ekki síst að
fylgikvillar borgarlífsins, streita,
glæpir og fíkniefni væru mun
fágætari í hinum dreifðu
byggðum.
Marteinn Friðriksson sagði
viðskiptahallann við útlönd eitt
mesta mein þjóðarbúskaparins.
Skera þyrfti niður framkvæmdir
en það væri vandasöm aðgerð.
Hann sagði að þjónustustarfsemi
væri ekki í réttu hlutfalli við
framleiðsluna.
Seinni dag þingsins var lands-
byggðin í fréttum á dagskrá.
Framsögumenn voru Markús
Örn Antonsson, útvarpsstjóri,
Jónas Kristjánsson, ritstjóri og
Bragi V. Bergmann, ritstjóri og
ræddu þeir hlut landsbyggðarinn-
ar í fréttum fjölmiðla.
Þann dag var einnig gengið frá
ályktunum þingsins og kosið í
stjórn. Formaður var kjörinn
Björn Sigurbjörnsson, skólastjóri
á Sauðárkróki. Nánari grein
verður gerð fyrir einstökum mál-
um þingsins í blaðinu næstu
daga. fh