Dagur - 10.09.1988, Blaðsíða 5

Dagur - 10.09.1988, Blaðsíða 5
carmína 10. september 1988 - DAGUR - 5 Á hálfsíðum kjólum og háhæluðum skóm! - Sigrún Björgvinsdóttir riQar upp stærðfræðitíma í MA „Latínan var skelfílegt torf,“ segir Sigrún Björgvinsdóttir kennari „en hún var skemintileg“. Mynd: gb Snemma vors árið 1945 brann Hótel Gullfoss við Hafnarstræti á Akureyri. Ótti greip um sig á meðal þeirra sem í nágrenninu bjuggu. Foreldrar reyndu að forða börnum sínum frá hættusvæðinu. Strákur leiðir litla systur sína burtu frá bál- inu, þau fóru upp á brekku- brúnina fyrir ofan húsið og fylgdust með því sem gerðist. Að eldsvoðanum afstöðnum ræddu bæjarbúar mikið um heimilislausa skólapilta, en margir menntaskólanemar leigðu herbergi yfir vetrartímann í húsinu. „Ég hugsaði mikið um hverjir þeir væru eigin- lega þessir skólapiltar sem alitaf var verið að tala um. í hvaða skóla væru bara piltar, en ég átti einmitt að byrja í skóla á þessum tíma,“ segir Sigrún Björgvinsdóttir sem komin er í Carmínu- viðtal. Sigrún er litla systirin í frásögninni hér að ofan. Hennar fyrstu minningar um Menntaskólann á Akureyri tengdust umræðunni um húsnæðislausu skólapiltana. Sigrún segir það mjög hafa blundað í sér að ekki væri rétt að karlmenn einir sæktu Mennta- skólann, eins og tíðkaðist á fyrri árum. Þessi minning hafi ef til vill blundað í sér og að einhverju leyti orðið til þess að hún hóf nám við skólann. Sigrún varð stúdent árið 1957, Brynjólfur Sveinsson yfirkennari útskrifaði hópinn í fjarveru Pórarins skóla- meistara Björnssonar. Á útskrift- inni ræddi hann gildi vinnunnar og þá gleði sem þeim féili í skaut er lokið hefði góðu starfi, hann brýndi fyrir stúdentum að gera ætíð skyldu sína og verða skóla sínum æ til sæmdar. Sigrún var í máladeild eins og þær stúlkur aðrar sem útskrifuð- ust þetta árið. „Það var mjög gef- ið í skyn að stúlkur ættu ekkert erindi í stærðfræðideildina og þær fengu ekki höfðinglegar mót- tökur margar sem þangað fóru. Það þótti fullgott fyrir konur að vera í máladeildinni,“ segir Sigrún. Skólabræðraheimsóknir Island insula est, var fyrsta setn- ingin í latínukennslubók Sigrún- ar. Góðar latínuglósur stúlkunn- ar nutu vinsælda innan bekkjar, en þær þóttu til mikillar fyrir- myndar. „Ég hafði að láni góðar glósur og betrumbætti þær. Það var fljótt að spyrjast út,“ segir Sigrún, en bekkjarbræðurnir ásældust glósur hennar mjög og í sjálfu sér hafði hún ekki á móti því að lána þær. „En ég lét þá alltaf koma heim og ná í þær. Mér fannst þeir ekki of góðir til þess. Það vissi auðvitað enginn erindi þeirra nema ég, en fólk furðaði sig á þessum tíðu heim- sóknum!“ Sigrún segir latínuna hafa ver- ið skelfilegt torf og enginn hafi getað komið ólesinn í tíma. „Við kynntumst þessum góðu mönn- um; Caesari, Cecero, Salluts, Virgli, Horazi og Ovid,“ segir hún um þessa gömlu kunningja sína frá menntaskólaárunum. „Mér fannst latínan skemmtileg, en hún var erfið.“ Textann segir hún oft á tíðum hafa verið býsna erfiðan og átti það ekki einungis við um latínutextann. „Sigurður L. Pálsson kenndi okkur ensku og hann lét okkur til dæmis lesa Kaupmanninn frá Feneyjum. Við lentum iðulega í því þegar við lásum heima að finna ekki orðin í orðabók og þetta vafðist fyrir okkur. En einhvern veginn kom- umst við í gegnum þetta,“ segir Sigrún og brosir við minningunni um heimalesturinn. Snargataði Á þessum tíma voru þær kennslu aðferðir allsráðandi að taka nemendur upp. Sigrún rifjar upp stærðfræðitíma þar sem Brynjólf- ur Sveinsson var að fara yfir algeberuna með nemendum sínum. „Fæstir vilja segja frá því þegar þeir gata,“ segir hún en fellst á að segja eina slíka. „Ég var tekin upp í algebrunnni og átti að leysa dæmi. Mér varð svarafátt, snar- gataði og varð hálf lúpuleg yfir þessu. Þá klappar Brynjólfur vinalega á öxl mína og segir: Að þú skulir ekki vitað þetta Sigrún mín, eins og þú heitir fallegu nafni. Mér er þetta ákaflega minnistætt. Hvernig hann fór að því að segja þetta, það er svo mikilvægt að gleyma ekki mann- lega þættinum í kennslunni. Það er ekki sama hvernig hlutirnir eru sagðir og þessi viðbrögð hafa hjálpað mér mikið eftir að ég fór sjálf að kenna.“ Sigrún hefur unnið við kennslu í árabili og kennir núna í Barnaskóla Akur- eyrar. Saumaklúbbskvöldin Um ást sína á rifjasteik sem um er getið í Carmínu hafði hún lítið að segja. Jú, hún hefur enn ágæta lyst á rifjasteikum, en minntist þess ekki að það hafi komist í hámæli á menntaskólaárunum. Hins vegar hafi þær skólasystur komið saman á síðkvöldum og hafi þá borð verið hlaðin stríðs- tertum miklum. Ekki hafi lystar- leysi verið áberandi meðal þeirra og voru tertum gerð góð skil. Kvöldin þau hétu saumaklúbbs- kvöld. Ef við höldum áfram að rýna í textann, þá kemur það fram að Sigrún sé vel fær í meðhöndlun blýanta og málarapensla, og segir hún að sér hafi ætíð þótt gaman að mála og þyki enn. „Það nýtist mér vel í kennslunni,“ segir hún. Og áfram. „Henni þykir gaman að bílurn," stendur þar og segir hún setninguna þá vera tilkomna vegna þess að hún hafi strax og aldur leyfði tekið bílpróf. Afar sjaldgæft hafi verið að stúlkur tækju bílpróf á þessum tíma. „Og það þótti algjör fásinna af mér að læra á bíl, þar sem enginn var til bíllinn á heimilinu og ekki átti ég hann sjálf. “ „Frægust mun hún þó vera fyr- ir afburða frammistöðu í því að hreppa háðungaverðlaun á spila- kvöldum," segir í texta. „Þetta er alveg rétt. Ég fékk ævinlega háð- ungarverðlaunin og á nú mikið safn smábarnabóka sem gjarnan voru veittar til háðungar. Ég tók þetta aldrei nærri mér. Ef ég er óheppin í spilum, þá er ég bara heppin á öðrum sviðum.“ Stærðfræðikennarinn ungi Við höfum spjallað dágóða stund um menntaskólaárin Ijúfu. Enda- punktinn sláum við með sögu úr stærðfræðitíma. Bekkurinn hafði fengið nýjan stærðfræðikennara, ungan að árum og þótti sá helst til hrokafullur. Sendi nemendur sína miskunnarlaust í sæti sín, væru þeir ekki með hlutina fylli- lega á hreinu. „Hann var að sýna okkur veldi sitt og hversu góðan aga hann hafði á bekknum,“ seg- ir Sigrún, en að því kom að bekkjarsystkinum þótti full mikið komið af því góða. Var því skotið á fundi, hvar á voru þær bekkjar- systur, en þær tóku lausn málsins í sínar traustu hendur. Fundar- efnið var að sjálfsögðu hvernig koma mætti hinum unga stærð- fræðikennara í skilning um villu síns vegar og var rætt um ýmsa möguleika í því sambandi. Niðurstaða fundarins var sú að stúlkur skyldu mæta í sínu fínasta pússi í næsta stærðfræðitíma. Hálfsíðir flegnir kjólar, háhælað- ir skór; það var hátíska tímans. Áður en til stærðfræðitíma var gengið var haldin létt æfing fyrir óvanar og gekk hún bærilega vel. Víkjum þá nánar að útfærslunni. Er kennari kallaði upp að töflu, skyldu stúlkur ganga eins nálægt læriföður sínum og þær frekast þorðu og gekk það allt eftir. Hver stúlkan af annari gekk í flegna kjólnum sínum að töflunni og samkvæmt áætlun var gengið þétt að kennara, sem var á miklu undanhaldi. Leikar fóru svo, að í lok tímans sat hinn ungi heldur lúpulegur úti í glugga. Segir ekki fleiri sögur af agaáætlun hans og gjörbreyttist andinn í bekknum á eftir. mþþ Ur Carmínu: Við latínuna fínnst mér leiðinlegt að glíma, hún lamar frjálsan vilja og reynir hugans þrótt. En hafí maðurglósur að láni góðan tíma, þá grána hárin minna og dimmir seinna af nótt. Hún Sigrún litla Björgvinsdóttir lenti í kapphlaupi við árið 1937, en varð ögn á eftir og birtist ekki í þessum heimi fyrr en 21. jan. það herrans ár. - í æsku dvaldist hún lengi vel í sveit og tók tryggð við allt, sem þar hrærðist, þó einkum hesta og ketti. Annars hefur hún dvalið allan sinn aldur á Akureyri og numið þar sinn bóklega lærdóm. Síðastliðin sumur hefur hún starfað við að pranga alls kyns munum upp á samborgara sína. Áhugamál á Sigrún fjölmörg. Hún er mikið fyrir góðan mat og mun rifjasteik vera eftirlætisréttur hennar. Hún er mjög fær í meðhöndlun blýanta og málara- pensla, enda er faðir hennar málari. Henni þykir gaman að bílum. (NB. Ekki bílstjórum). Eina íþróttagreinin, sem hún leggur stund á er sund, og hefur hún náð töluverðri færni í því. Frægust mun hún þó vera fyrir afburða frammistöðu í því að hreppa háðungarverðlaun á spilakvöldum. Framtíðaráform hennar munu ekki birt almenningi fyrr en síðar meir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.