Dagur - 10.09.1988, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 10. september 1988
Húsavík:
Heilsað upp á hressa
krakka í spranginu
Mörg börn og unglingar á
Húsavík hafa verið iðin við
sprang í sumar og hafa sum
þeirra náð ótrúlegri leikni í
snúningum og sveiflum og
virðast una sér hið besta í
köðlunum. Tveir lýsisgeymar
eru í fjörunni sunnan við
Suðurgarðinn og efst á þá festa
krakkarnir kaðlana. Oft er
margt ungt fólk samankomið
við tankana því þótt tveir kaðl-
ar séu á hvorum geymi og fjór-
ir geti sprangað samtímis, vilja
oft myndast biðraðir og svo er
líka gaman að koma og fylgjast
með þegar aðrir leika listir
sínar. Dagur hitti nokkra
hressa krakka í góða veðrinu
um daginn og spjallaði við þá
svolitla stund, en afþakkaði
ágætt boð um að fá að prófa
einn kaðalinn.
Þegar krakkarnir voru spurðir
hvort fólk væri eitthvað að skipta
sér af spranginu og jafnvel að
banna þeim að vera við tankana
svaraði einn guttinn: „Aðallega
foreldrarnir, svona fyrst en það
hefur minnkað mjög mikið," og
annar guttinn bætti við: „Löggan
var að koma hér fyrst og skera
niður kaðlana en svo nenna þeir
því ekki, eða kannski þora þeir
ekki upp á tankana."
Sigurður Veigar, Þorgrímur, Þorsteinn. Neðri röð: Guðlaugur, Börkur, Henry, Hlynur og Edda Lóa.
„Fótboltinn hefur
þetta alveg“
- sagði Þorgrímur
Þorgrímur Sigmundsson, 12 ára,
var spurður hvort sprang hefði
lengi verið stundað af krökkun-
um.
„Þetta er annað sumarið sem
við erum hérna og það hafa alltaf
fleiri og fleiri gaman af þessu.
Það er ekki svo langt síðan ég
byrjaði að spranga að ég viti
hverjir settu fyrst upp kaðlana en
ég held að strákarnir hafi byrjað í
bjarginu en ekki hérna.“
- Er gott að vera hérna?
„Já, ef maður hefur ekkert að
gera, þá er bara að fara og
spranga.“
- Hver er flinkastur?
„Það eru margir flinkir, Steini
er flinkur og fleiri."
- Er þetta ekki vandi?
„Nei, ekki nema rétt fyrst.
Þetta er alveg rosalega gaman,
þó ekki meira en fótboltinn,
hann hefur þetta alveg."
- En er þetta hættulegt?
„Það er mjög misjafnt hvað
sagt er um það, að þetta sé hættu-
legt eða ekki, sumir segja að
þetta sé rosalega hættulegt en
aðrir að þetta sé ekkert hættu-
legt.“
Og svo af stað í sveifluna... Sigurður Veigar Bjarnason.
„Leikur en ekki íþrótt“
- sagði Þorsteinn
Þorsteinn Pálmason á fullu.
Þorsteinn Pálmason, 12 ára, var
spurður hvort það væri rétt að
hann væri sá flinkasti við
spangið: „Ég veit það ekki, það
eru svo margir flinkir. Ég byrjaði
rétt fyrir landsmótið og hef síðan
stundað þetta eiginlega á hverj-
um degi.“
- Er þetta gaman?
„Já, það er gaman að sveifla
sér í þessum köðlum og svífa í
lausu lofti en maður fær svolítið
sigg á hendurnar.“
- Langar þig til að síga í
bjarg?
„Nei, mig langar ekki til þess.“
- Hvort líturðu á sprangið sem
leik eða íþrótt?
„Leik, þetta er ekkert íþrótt.“
- Finnst þér þetta vera hættu-
legt?
„Þetta getur verið hættulegt, ef
maður dettur úr kaðlinum fer
það svolítið eftir því hvar maður
dettur og hvernig maður lendir.
Þetta er svona jafnhættulegt og
íþróttirnar sem við erum í, þar
getur maður meitt sig alveg jafn-
mikið.“
„Erfiðara en
í Vestmannaejjiim“
- sagði Sigurður Veigar
Sigurður Veigar Bjarnason, 12
ára, þekkir slysahættu við
sprangið af eigin raun: „Ég
brotnaði á hendi þegar ég flaug
fram af skúrnum. Ég ætlaði að
hjálpa Jóa en það var svo sleipt
að ég rann sjálfur. Það brotnaði
bein hérna í handleggnum og
færðist til en svo gréri það saman
á öðrum stað. Sprangið er hættu-
legt á sumum stöðum, ef maður
snýst í hringi og lendir vitlaust á
tanknum, þá flýgur maður niður.
í hitti fyrra sagði strákur kenn-
aranum okkar að það væri ekki
hægt að meiða sig á þessu en
sama dag slitnaði hjá honum kað-
all og hann fótbrotnaði."
- Hvar fáið þið kaðlana og
hjálpar einhver ykkur við að
setja þá upp?
- Við fáum kaðlana bara úr
netunum við netaverkstæðið. Við
förum sjálfir upp með reglulegu
millibili til að athuga hvort allt er
í lagi, um daginn slitnuðu tveir
kaðlar."
- Hefur þú lengi stundað
sprangið?
„Ég byrjaði rétt fyrir lands-
mótið í fyrra.“
- Eru oft margir krakkar
hérna og hvað eru þeir gamlir?
„Það eru frekar margir krakk-
ar hérna, stundum alveg helling-
ur og þau eru alveg frá fimm ára
upp í sautján. Við erum með
kaðal hérna sem er svo nálægt að
hann er bara fyrir byrjendur en
kaðlarnir á skúrnum geta verið
hættulegri."
- Hefur einhver sagt ykkur til
við sprangið?
„Nei, við höfum bara kennt
okkur sjálf en við mundum alveg
þiggja það að fá kennara. Það
kom krakki frá Vestmannaeyjum
hérna í gær og hann sagði að það
væri miklu erfiðara að spranga
hér en í Vestmannaeyjum."
Þrír í sama spottanum, Stcini, Sig. V.
og Toggi.