Dagur - 10.09.1988, Side 10

Dagur - 10.09.1988, Side 10
10 - DAGUR - 10. september 1988 I Sigrún, Kristín Inga og Gunnlaugur, komin heim í Hafralækjarskóla. Mynd: IM Ársdvöl í Danmörku: „Við íslendingar höfum það gott“ - Gunnlaugur Árnason og Sigrún Valtýsdóttir, kennarar við Hafralækjarskóla í helgarviðtali Skömmu eftir landsmótiö í fyrrasumar ók Þ-110 um borð í Norrænu á Seyðisfirði, bifreiðin er af gerðinni Subaru, station og var með vélsleðakerru í eftirdragi. Eigendur bflsins eru tveir kennarar við Hafralækjarskóla, hjónin Sigrún Valtýsdóttir og Gunnlaugur Árnason, þau voru á leið til Danmerkur með bíl, kerru með búslóð og börnin sín þrjú. í Danmörku dvaldi fjölskyldan í eitt ár og síðan skilaði Norræna hópnum og farartækinu til íslands aftur. Eflaust hafa margir hug á að breyta til, reyna eitthvað nýtt, kynnast öðrum siðum og venjum eða sjá hvernig fólkið hefur það hinum megin við hafið. Þegar til kemur eru samt ekki allir sem drífa í því að koma heilli fjöl- skyldu af stað til ársdvalar erlendis. Skömmu eftir að Sigrún, Gunnlaugur og börnin komu heim í Hafralækjarskóla heimsótti Dagur þau og var erindið að forvitnast um ferðalagið og hvers þau hefðu helst orðið vísari í Danaveldi á árinu. Gunnlaugur er sonur hjónanna Ingibjargar Gunnlaugsdóttur og Árna Helgasonar, fyrrum sím- stöðvarstjóra. „Ég er fæddur og uppalinn í Stykkishólmi og þar var ég þar til að loknu landsprófi. Síðan lá leiðin í Kennaraskólann og 1970 lauk ég kennaraprófi. Ég fór strax í kennslu og kenndi við Varmalandsskóla í Borgarfirði í sex ár, eða þar til ég villtist hing- að norður í leit að góðu veðri. Hér fann ég fljótlega konuna mína en þurfti að fara upp að Laugum tii að leita að henni.“ Nú brosir Sigrún sem er frá Nesi í Fnjóskadal, foreldrar hennar voru Kristín Sigurðardóttir og Valtýr Kristjánsson. Þegar Gunnlaugur „fann“ Sigrúnu starfaði hún sem handavinnu- kennari við Héraðsskólann og Húsmæðraskólann á Laugum. Gunnlaugur heldur áfram með ævisöguna sem hann var beðinn að segja: „Við hófum búskap hér 1978. Áfkomendurnir eru Valtýr, sonur Sigrúnar sem nú er 15 ára og svo eigum við Árna Hólmar 7 ára og Kristínu Ingu sem er að verða 5 ára.“ Ævintýraþrá og forvitni „Kennarar eiga rétt á að fá orlof eftir að vera búnir að kenna í tíu ár og við byrjuðum að sækja um orlof um leið og við höfðum rétt til en eftirspurnin er svo mikil að alltaf má reikna með að fá tvö nei. Við vorum búin að safna okkur tveimur neium, en svo var það fyrir tveimur árum að við sóttum um í þriðja sinn og feng- um jáið. Það var búið að blunda lengi með okkur, að fara út í heim, skoða okkur um og kynn- ast öðrum viðhorfum, þetta er einhver ævintýraþrá og forvitni. Við fengum sem sagt loforð um orlofið í jólagjöf 1986 og stefnd- um þá strax á Danmörku, m.a. vegna þess að við þekktum kennara sem höfðu verið þar í ársleyfi og líkað mjög vel. í Dan- mörku er kennaraháskóli sem býður upp á fjölbreytt námskeið sem standa íslenskum kennurum til boða. Þessi háskóli er með úti- bú víða um Danmörku, við stefndum í fyrstu á að fara til Óðinsvéa en þegar til kom leist okkur best á námskeiðin sem halda átti í Árósum svo við breyttum til og héldum þangað.“ - Er það ekki heilmikið mál fyrir fimm manna fjölskyldu að leggja upp í slíka ferð? „Jú, miklu meira mál en maður reiknaði með og það er gott að vita ekki hlutina fyrirfram því það myndi oft draga úr fram- kvæmdunum hjá manni. Við þurftum að pakka öllu niður og losa okkar íbúð. Við hugsuðum okkur þetta nokkurs konar úti- legu og tókum eins lítið með okk- ur og við gátum. Dótið settum við í vélsleðakerru sem við keyptum og ókum svo til Seyðis- Fyrsti skóladagurinn í Danmörku, Árni Hólmar að leggja á menntaveginn. Myndir: GA fjarðar. Reyndar kom í ljós að við hefðum mátt taka meira með okkur því við þurftum að kaupa ýmislegt sem vantaði en var til hérna heima.“ Danir töluðu allt annaö mál „í Árósum leið okkur mjög vel. Ég stundaði nám við kennara- háskólann og Sigrún líka að hluta til en einnig sótti hún mikið

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.