Dagur - 27.09.1988, Page 2
2 - DAGUR - 27. september 1988
Hellusteypubúnaður!
Notaður búnaður til hellusteypu óskast.
Uppl. í síma 96-52172.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir ágústmánuð 1988, hafi hann
ekki verið greiddur í síðasta lagi 26. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrj-
aðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en
síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan
mánuð, talið frá og með 16. október.
Fjármálaráðuneytið.
TILBOÐ
óskast í eftirtaldar tjónabifreiðar
Volvo 244 ........................... árg. 1978
Mazda 323 4x4 Turbo ................. árg. 1987
Volkswagen Golf ..................... árg. 1986
M M Spacewagon 4x4 .................. árg. 1988
Subaru Sedan ....................... árg. 1983
Bifreiðarnar eru til sýnis að Glerárgötu 24. Tilboð
leggist inn fyrir fimmtudag 29. september nk.
Brunabótafélag íslands Akureyrarumboð
____* Vj._______ *
Breyttur
opnunartími
bensínsölustöðva á Akureyri
yfir vetrarmánuðina
Samkomulag hefur orðið milli undirritaðra aðila
um breyttan opnunartíma bensínstöðva á Akur-
eyri í vetur.
Opnunartími eftirtalinna bensínstöðva verður
frá kl. 8.00 til 20.00 mánud.-laugard. og frá kl.
10.00-20.00 á sunnud.:
Bensínstöð Esso við Leiruveg.
Bensínstöð Esso við Tryggvabraut.
Bensínstöð Esso við Hörgárbraut.
Bensínstöð Olís við Tryggvabraut.
Bensínstöð Skeljungs við Mýrarveg.
Bensínstöð Skeljungs við Hörgárbraut.
Viðskiptavinir athugið:
Sjálfsalarnir fyrir bensín- og diseleldsneyti eru alltaf opnir.
Olíufélögin á Akureyri.
Flugleiðir:
Bjóða upp á ný far-
gjöld frá 1. október
hægt að fara frá Akureyri til Reykjavíkur
og heim aftur fyrir 5000 kr. á Pex fargjaldi
Vetraráætlun Flugleiða tekur
gildi þann 1. október nk. Með
vetraráætluninni taka einnig
gildi ný fargjöld hjá félaginu,
Nýr tónlistarskóli, Tónlistar-
skóli Eyjafjarðar, var stofnað-
ur fyrir skömmu. Að stofnun
skólans standa sveitarfélög við
Eyjafjörð á svæðinu frá Greni-
vík að austan að Arnarnes-
hreppi að vestan. Skólanum er
ætiað að bæta úr brýnni þörf
fyrir kennslu í hljóðfæraleik í
viðkomandi sveitarfélögum en
kennsla mun fara fram í grunn-
skólum á venjulegum skóla-
tíma.
Til þessa hafa nemendur í
hljóðfæraleik þurft að sækja
mestalla tónlistarkennslu til
Akureyrar, en þó hefur verið
hljóðfærakennsla á nokkrum
Pex-fargjald og svokallað
„stand by“ unglingafargjald.
Þá munu Flugleiðir bjóða upp
á helgar- og pakkaferðir að
stöðum við Eyjafjörð, t.d. á
Hrafnagili og á Grenivík. Að
sögn Atla Guðlaugssonar, skóla-
stjóra skólans, munu kennarar
ferðast milli skólanna og kenna á
skólatímum, en góð reynsla hef-
ur fengist af slíku fyrirkomulagi á
Húsavík og fleiri stöðum.
Skólinn mun taka til starfa í
októberbyrjun. Reiknað er með
að flestir nemendur skólans verði
byrjendur, en kennsla mun verða
í samræmi við hljóðfæraeign
skólans og það hvaða kennarar
ráðast að skólanum. Gert er ráð
fyrir kennslu á píanó, gítar,
bassa, trommur og ýmis blásturs-
hljóðfæri. Auk þess er gert ráð
fyrir forskóla. EHB
vanda.
Þrátt fyrir ný fargjöld verða
sérfargjöld fyrir fjölskyldur,
skólafólk, aldraða og hópa áfram
í gildi. Félagið tekur upp tvo nýja
fargjaldaflokka sem breyta ferða-
möguleikum innanlands.
Pex-fargjaldið er háð svokall-
aðri sunnudagsreglu og er í gildi
alla daga nema föstudaga og
sunnudaga. Þetta fargjald kemur
í staðinn fyrir Apex-fargjaldið
sem í gildi hefur verið undanfarin
ár. Pex fargjaldið er hægt að
kaupa allt að klukkutíma fyrir
brottför viðkomandi flugs. Bóka
þarf heimferð og borga báðar
leiðir. Farþegi getur verið 30
daga í ferðinni. Sunnudagsregla
þýðir að farþegi þarf að dvelja
aðfaranótt sunnudags á ákvörð-
unarstað. í fargjaldinu er veittur
35% afsláttur frá venjulegu fram
og til baka fargjaldi. Samkvæmt
þessu kostar flugferð frá Akur-
eyri til Reykjavíkur og til baka
kr. 4.937.
Flugleiðir bjóða einnig upp á
„stand by“ unglingafargjald. Far-
gjaldið er óbókanlegt og háð
sætarými í viðkomandi flugi. Pað
gildir fyrir 12-21 árs að báðum
árum meðtöldum. Fargjaldið er
55% afsláttur af venjulegu fram
og til baka fargjaldi. JÓH
Tónlistarskóli
Ejjafjarðar
- nýr tónlistarskóli tekur til starfa
við Eyjaíjörð
Björn Sigurðsson, Baldursbrekku 7, Húsavík.
Símar 41534 • 41666 • 41950.
Sérleyfisferðir
HÚSAVIK - AKUREYRI - HÚSAVÍK
VETRARÁÆTLUN 88 -’89
S M Þ M F F L
Frá Húsavík kl. 19.00 8.00 8.00 8.00
Frá Akureyri kl. 21.00 16.00 16.00 16.00
Ath. Flytjum vörur í öllum ferðum milli Húsavíkur og Akureyrar.
Sérleyfis- og vöruafgreiðsla Húsavík: Á.G. Stóragarði 7, sími 41580.
Hópferðaþjónusta - Skrifstofa, Baldursbrekku 7, sími 41534.
Farþegaafgr. Akureyri: Umferðamiðstöðin, Hafnarstræti 82, sími 24442.
Vörumóttaka á Akureyri: Ríkisskip v/Sjávargötu, sími 23936.
Vörur berist á Ríkisskip tveimur klst. fyrir auglýsta brottför.
Farsímar: (Sérbíll 985-20034), aðrir 985-20035, 985-20036 &
985-25730.
Bílstjóri veitir ekki upplýsingar um veður eða færð á vegum.
Sérleyfishafl.
Bjóðum eftirtalda þjónustu:
Hópferðabíla, margar stærðir ■ Sendibíl ■ Vöruflutningabíl ■ Dráttar-
bílar • Kranabílar • Vörubíla með 5t eða 8t krana • Jarðýtur með
gröfu eða krana • Hjólgröfu • Beltagröfu • Útvegum sand og fyllingar-
efni • Hreinsum snjó af bílastæðum og fl. • Umboð fyrir Mobira far-
síma.
Geymið auglýsinguna.
Sirkusauglýsingarnar:
Hleyp ekki frá þessu
- segir Jörundur Guðmundsson
Sirkusauglýsingar sem límdar
voru upp víða á Akureyri í
sumar munu hverfa á næstu
dögum. Auglýsingar þessar
sem eru í skærum Iitum ollu
nokkrum pirringi, einkum þó
þeirra sem fengu þær á gafl
sinn.
Jörundur Guðmundsson sá er
stóð á bak við hingaðkomu sirk-
usins spænska sagði í stuttu
spjalli við blaðið að hann ynni
nú í því að fá mannskap til
verksins. Það verða heimamenn
sem afmá munu minningarnar
um sirkuskomuna.
Sams konar auglýsingar voru
límdar á veggi í Keflavík og við
niðurrif þeirra var notað kem-
iskt efni sem gaf góða raun.
Jörundur sagðist ætla að nota
þetta sama efni á Akureyri.
„Ég hleyp ekkert frá þessu,“
sagði Jörundur sem ekki vildi
hafa gamla bæinn sinn sóðaleg-
an. mþþ
Sirkusauglýsingarnar eiga að hverfa. „Ég hleyp ekki frá þessu,“
segir Jérundur.Mynd: gb