Dagur - 27.09.1988, Síða 3
27. september 1988 - DAGUR - 3
Siglunesvegagerðin enn í kerfinu:
Menn hætti að
hugsa í tímavinnu
og taki upp akkorð
segir Stefán Einarsson á Siglunesi
Enn bíður Stefán Einarsson
bóndi og vitavörður á Siglunesi
eftir leyfí til að Ieggja veg frá
heimili sínu, um 6-7 kílómetra
langan, að vegi sem fyrir er til
Siglufjarðar. Bið Stefáns og
tjölskyldu hans er orðin æði
löng, en hann sótti um leyfí
fyrir vegagerðinni snemma á
síðasta ári. Beiðni hans hefur
farið vítt og breitt um kerfíð og
síðast er Stefán vissi var hún á
leið frá skipulagsstjórn til fé-
lagsmálaráðuneytis, þaðan
sem hún fer til bæjarstjórnar
Siglufjarðar.
Stefán hyggst leggja veginn á
eigin kostnað og hefur hann fjár-
fest í hinum ýmsu tækjum til
vegagerðarinnar. Tækin hafa að
stórum hluta staðið ónotuð
heima á hlaði.
„Það er ekki um annað að
ræða en að bíða, fyrst maður
ákvað að fara löglegu leiðina að
þessu,“ sagði Stefán í samtali við
blaðið. „Hins vegar væri alveg
óhætt fyrir þessa menn að hætta
að hugsa um málið í tímavinnu
og taka upp akkorð," bætti hann
við og kvaðst nokkuð leiður orð-
inn á biðinni.
Á Siglunesi sér fjölskyldan um
vitavörslu og veðurathuganir,
auk þess sem gerðir eru út tveir
bátar, 8 og 20 tonna. Aflinn er
verkaður í salt og hann þarf að
flytja sjóleiðina til Siglufjarðar.
Stefán sagði því mikla samgöngu-
bót að fá veginn og geta ferðast
landleiðina til Siglufjarðar.
Stefán hafði hugsað sér að
leggja veginn síðasta sumar og
sagði hann í samtali við blaðið
fyrir rúmu ári þegar ljóst var að
leyfið var enn ekki fengið, að
búið væri að eyðileggja fyrir sér
sumarið, en hann væri bjarstýnn
á að geta hafist handa þá um
haustið. Af því varð ekki og enn
hefur liðið eitt sumar og komið
vel fram á haust og enn bíður
Stefán leyfisins. mþþ
Sauðárkrókur:
Olíufélagið hf. fær
leyfi fyrir tönkum
- veitt til bráðabirgða í fimm ár
Umsókn Olíufélagsins hf. um
að stækka birgðastöð á Sauð-
árkróki fyrir fleiri tanka var
samþykkt í bygginganefnd fyr-
ir skömmu. Fékk Olíufélagið
bráðabirgðaleyfí til fímm ára
eftir að fyrir lá samþykki
Brunamálastofnunar, Heil-
brigðiseftirlits og Siglinga-
málastofnunar, en hún sam-
þykkti erindið að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum. Jafn-
framt samþykkti bygginga-
nefnd að viðræður verði hafn-
ar við olíufélögin um væntan-
Loksins
tannlæknir
til
Ólafsflarðar
Ólafsfírðingar sjá nú fram á
betri tíð í tannverndar- og
eftirlitsmálum því þeir hafa
ráðið til sín tannlækni.
Sá heitir Rannveig Axfjörð, er
Akureyringur og lærði í Noregi.
Bjarni Grímsson bæjarstjóri í
Ólafsfirði sagði í samtali við
blaðið, að það yrði veruleg bót
að fá tannlækni á staðinn og
þurfa ekki að sækja þessa þjón-
ustu til Reykjavíkur eða ná-
grannabyggðarlaganna.
Tannlæknirinn mun leigja full-
komna aðstöðu í heilsugæslu-
stöðinni á staðnum og starfa þar
sjálfstætt að öðru leyti. Auk þess
að sinna almennum tannlækning-
um mun hann sinna skólatann-
lækningum barna. VG
iega staðsetningu olíubirgða-
stöðva.
Á fundi bæjarstjórnar Sauðár-
króks sl. þriðjudag urðu miklar
umræður um veitingu leyfis til
handa Olíufélaginu, aðallega
vegna staðsetningar olíubirgða-
stöðva í framtíðinni. f skipulagi á
hafnarsvæðinu hefur verið gert
ráð fyrir að olíutankar komi
fremst á hafnarsvæðinu í framtíð-
inni og færist frá þeim stað þar
sem þeir eru nú, undir Nöfunum
við hafnar- og fiskvinnslusvæði
bæjarins. Var það skipulag sam-
þykkt fyrir 12 árum, með von um
að land stækkaði fremst á hafnar-
svæðinu af náttúrunnar hendi, en
það hefur ekki gerst að neinu
marki.
Á bæjarstjórnarfundinum
skiptust menn á skoðunum um
hvort rétt væri að setja tankana
fremst á hafnarsvæðið eða eitt-
hvað annað, vegna mengunar- og
eldhættu sem myndi stafa af
tönkunum. Samkvæmt reglu-
gerðum þurfa að vera þrær í
kringum tankana til að taka við
olíu ef hún lekur. Þeirri reglu-
gerð hefur ekki verið fylgt þar
sem tankarnir eru nú og hefur
Brunamálastofnun margsinnis
minnt olíufélögin á þetta, en ekk-
ert verið gert.
Sem fyrr segir samþykkti Sigl-
ingamálastofnun leyfið að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum og
verða tankarnir ekki teknir í
notkun fyrr en úttekt hefur farið
fram á framkvæmdinni. Þá fór
bygginganefnd fram á það að inn-
keyrslu í birgðastöð Olíufélags-
ins yrði breytt, þannig að tankbíl-
ar standi ekki fram á götu þegar
hliði er lokað. Þess má geta að
Mengunardeild Hollustuverndar
ríkisins gaf ekki umsögn um
starfsemi Olíufélagsins. -bjb
Matvöruverslanir KEA
Tilboð
vikunnar
26. september til 1. október
Bamamatur
.111
Gerber, 4 tegundi
Viðmiðunarverð kr. 132
Shampo
Kr. 115 Viðm
Naturell
Hámæring
.,117
Naturell
Viðmiðunarverð kr. 151
Viðmiðunarverð kr. 612
Viðmiðunarverð kr. 586
Gildir í öllum
matvöruven slunum KEA
á félaqs svæðinu
• 1 ■ J 2 2