Dagur - 27.09.1988, Síða 4
2 - RUOAQ - 83GI 'iðdmdjqðB , \K
4 - DAGUR - 27. september 1988
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SfMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON
(Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON,
FRÍMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Félagshyggjustjóra
í sjóranáJi?
Þau tíðindi bárust út á öldum ljósvakans í gær að
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, hefði gengið á fund forseta Islands og skilað
umboði sínu til myndunar meirihlutastjórnar.
Þar með myndast á ný sú von félagshyggju-
manna að mynduð verði ríkisstjórn sem getur
ið á vanda þjóðarbúsins án þess að setja hvert
heimilið og hvert fyrirtækið af öðru á hausinn.
En hvað hefði gerst ef Þorsteinn Pálsson hefði
getað myndað ríkisstjórn? í stuttu máli þetta:
Þeir ríku hefðu orðið ríkari en þeir fátæku fátæk-
ari. Og hverjum hefði það verið að þakka? Svarið
er einfalt: Alþýðubandalagið hefði orðið guðfað-
ir stjórnarinnar. Er það ekki nöturleg staðreynd?
Við upphaf stjórnarmyndunarviðræðna í síðustu
viku leyfðu menn sér að halda að formaður
Alþýðubandalagsins, Ólafur Ragnar Grímsson,
hefði fullt og óskorað traust sinna manna. En
einn af öðrum heltust alþýðubandalagsmennirn-
ir úr lestinni og smám saman varð ljóst að meiri-
hlutastjórn gerðist æ fjarlægari. Hvað var hægt
til bragðs að taka? Að sjálfsögðu var nauðsyn-
legt fyrir verkstjóra stjórnarmyndunarviðræðn-
anna, Steingrím Hermannsson, að hafa sam-
band við Borgaraflokkinn sem hafði látið í veðri
vaka að hann væri til í tuskið. Það var gert með
vitund formanns Alþýðubandalagsins. Á fundi
sem haldinn var skömmu áður lagðist hann ekki
gegn því að hafnar yrðu viðræður við Borgara-
flokkinn. Það er afar þýðingarmikið að almenn-
ingur hafi þessa staðreynd í huga því nú reynir
Ólafur Ragnar Grímsson að snúa upp á sannleik-
ann og boðar aðra útgáfu á honum. Auk þess
komu alþýðubandalagsmenn með ýmsar nýjar
kröfur á elleftu stund, kröfur sem hefðu átt að
líta dagsins ljós á fyrsta degi.
Alþýðubandalagið ber mikla ábyrgð. Innan-
hússvandi flokksins hefur nú komið berlega í ljós
og víst er að staða formannsins er afar veik. Inn-
an Alþýðubandalagsins eru greinilega öfl sem
vilja framsóknarmanninn fyrrverandi, Ólaf
Ragnar, úr sæti formanns. Litlu munaði að valda-
barátta innan Alþýðubandalagsins yrði til þess
að stuttbuxnalið íhaldsins næði að læsa hel-
krumlum sínum í þjóðarskrokkinn. Þetta ættu
stuðningsmenn Alþýðubandalagsins að hafa í
huga áður en þeir greiða flokknum atkvæði sitt í
framtíðinni.
Hvað gerist næst í stöðunni er ekki vitað þegar
þessar línur eru skrifaðar. Vel má vera að
Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur myndi
minnihlutastjórn en miðað við þróun mála
undanfarna daga er það e.t.v. farsælasta lausn-
in. ÁÞ.
Mjólkursamlag KS:
Um 200 manns
komu á opið hús
- í tilefni norræns tækniárs 1988
Snorri Evertsson samlagsstjóri á skrifstofu sinni á opnu húsi.
Fjölmargir heimsóttu Mjólk-
ursamlag KS á Sauðárkróki
sunnudaginn 18. september sl.
í tilefni norræns tækniárs 1988,
en þá var opið hús hjá öllum
mjólkursamlögum á landinu.
Fólk gat fylgst með framleiðslu
í samlaginu og kynnt sér
starfsemina. Síðan var gestum
boðið í kaffi með dýrindis veit-
ingum. Um 150-200 manns
komu í samlagið á sunnudag-
inn milli kl. 13 og 18 og sagðist
Snorri Evertsson samlagsstjóri
vera ánægður með þá aðsókn.
„Annars vorum við ekkert
mjög hrifnir af dagsetningunni
á opna húsinu, fjölmargir voru
í göngum og réttum þennan
dag, en þrátt fyrir það var
aðsóknin góð.“
Mjólkursamlag KS hóf starf-
semi sína 16. júlí 1935 í
nýbyggðu húsi þar sem Fóður-
blandan er nú við Aðalgötu, við
hliðina á Gránu. Þar var byrjað á
hefðbundnum mjólkurafurðum,
mjólk, osti, smjöri, rjóma o.fl. Ár-
ið 1952 fluttist starfsemi samlags-
ins í núverandi húsnæði við Skag-
firðingabraut, við hliðina á höf-
uðstöðvum KS við Ártorg. Áður
hafði ostalager hússins verið not-
aður frá 1950. Byrjað var á bygg-
ingu samlagsins 1948. Samlags-
stjórar frá upphafi hafa allir verið
lærðir mjólkurfræðingar, en þeir
eru: Jens Killengreen 1935,
Skafti Óskarsson 1936-1944,
Sveinn Tryggvason 1944-1945,
Jóhann Sólberg Þorsteinsson
1945-1983 og frá 1983 hefur
Snorri Evertsson verið samlags-
stjóri.
Frá ’35 hefur framleiðslan auk-
ist jafnt og þétt, fyrstu árin voru
erfið, m.a. vegna erfiðleika í
mjólkurflutningum. Árið 1936
tók samlagið á móti rúmlega 320
þús. lítrum af mjólk en á síðasta
ári var tekið á móti 8,4 milljónum
lítra af mjólk, þannig að menn
sjá þróunina sem þarna hefur átt
sér stað. Mest var framleitt 1978,
eða 9,4 milljónir lítra. Mesta
framleiðsla Mjólkursamlags KS
er í ostum og af þessum 8,4 millj-
ón lítrum af mjólk á síðasta ári
fóru rúmlega 7 milljón lítrar í
ostagerð. Nýjasta framleiðsla
samlagsins er ávaxtasúrmjólk,
tvær bragðtegundir, og hófst sú
framleiðsla fyrir þrem árum. í
dag er mikið selt af þessari
súrmjólk, aðallega á höfuðborg-
arsvæðið, en einnig um allt land.
Starfsmenn Mjólkursamlags KS í
dag eru um 22.
Á opna húsinu í tilefni norræns
tækniárs ræddi blaðamaður Dags
Starfsmenn samlagsins að taka ost úr pressun og setja hann í frekari framleiðslu. Forvitnir gestir fylgjast með.