Dagur - 05.10.1988, Side 3
5. október 1988 - DAGUR - 3
Troðfull búð af nýjum
og glæsilegum
haustvörum
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
MITT LIF - ÉG VEL:
Átak til eflingar
heilbrigðu lífemi
bama og unglinga
- heilbrigðisyfirvöld í samvinnu
við íþrótta- og æskulýðshreyfinguna
Þessa dagana er að hefjast
sérstakt átak til að efla heil-
brigt líferni og vellíðan meðal
íslcnskra barna og unglinga.
Herferðin er á vegum ncfndar
um heilbrigða lífshætti æsku-
fólks, sem skipuð var af heil-
brigðisráðherra á síðasta ári.
Yfirskrift þessa átaks þegar því
er fylgt úr hlaði er „MITT LÍF
- ÉG VEL“.
Áhersla er lögð á að unglingar
taki sjálfir ábyrgð á sínu lífi, en
það mótast af ýmsum ákvörðun-
um sem teknar eru mörgum sinn-
um á dag. Vakin er athygli á
sjálfstæðum ákvörðunum um
ýmsar lífsvenjur svo sem
mataræði, hreyfingu, kynlíf,
vímuefni, vináttu og ótal fleiri
atriðum sem unglingar velja sjálf-
ir og ráða miklu um líðan þeirra í
nútíð og í framtíð.
Veggspjaldi, barmmerkjum og
límmiða er dreift til allra skóla-
nemenda á aldrinum 11-16 ára,
alls um 21 þúsund manns.
í gær kynntu nefnd um heil-
brigða lífshætti æskufólks og
Guðmundur Bjarnason heil-
brigðisráðherra þetta átak. í
nefndinni eiga sæti fulltrúar frá
heilbrigðisráðuneytinu, íþrótta-
sambandi íslands, landlæknis-
embættinu, Ungmennafélagi
íslands og Æskulýðsráði ríkisins.
„Ég hef viljað leggja á það
áherslu að við reyndum leiðir
sem gætu leitt til varnar hvers
konar sjúkdómum og slysum,“
sagði heilbrigðisráðherra þegar
átakið var kynnt í gær. „Heil-
brigðisyfirvöld hafa nú leitað eft-
ir samstarfi við ungmenna- og
æskulýðshreyfinguna í landinu
sem ég held að sé mikilvægt til að
koma þessum sjónarmiðum á
framfæri. Við höfum stundum
rætt um að lífsstíl fólks þurfi að
breyta og til að gera það hljótum
við að leggja áherslu á að ná til
unglinganna og barnanna til að
geta haft einhver áhrif á hvernig
þau haga sínu lífi. Höfuðáherslan
með þessu átaki er lögð á að ein-
staklingurinn sé sjálfur ábyrgur
fyrir sínu lífi og sé meðvitaður
um hversu mikil áhrif það getur
haft á heilsu hans og vellíðan."
JÓH
Leiðrétting
í vísnaþætti Helgarblaðsins 1.
október var vísan Kuldinn beygja
fyrða fer,/ fást þess eigi bætur./
Ef við deyjum allir hér/ einhver
meyjan grætur; ranglega feðruð.
Hún var sögð eftir Björn Sveins-
son frá Gili, en hið rétta er að
höfundur vísunnar er Jóhannes
Jóhannesson frá Heiði í Sléttu-
hlíð, Skagafirði. Jóhannes var
skipstjóri og orti þessa vísu eftir
að hafa lent í kröppum dansi á
sjó með félögum sínum. Leið-
réttist þetta hér með.
ÆM
Dæmi:
Royal Playa de Palma
2 í stúdíó 21.562 pr. mann
Þú gerir dúndur innkaup fyrir fjölskylduna
í stórverslunum í Palma þar sem vöruúrvalið
kemur sannarlega á óvart
Brottfarardagar:
23. okt. 28. okt. 4. nóv.
aiíomm:
Skoðanakönnun Hagvangs:
Þriðjungur landsbyggðar-
kjósenda fylgja Framsókn
- sé miðað við þá sem tóku afstöðu
Samkvæmt nýrri skoðana-
könnun Hagvangs eru um 33%
þeirra sem búa á landsbyggð-
inni fylgjandi Framsóknar-
flokknum. Um 14% íbúa á
höfuðborgarsvæðinu eru fylgj-
andi flokknum. Þessar tölur
eru miðaðar við þá einstakl-
í júlímánuði síðastliðnum
gerði Póstur & sími samstarfs-
samning við Eurocard á Islandi
og tók þessi samningur gildi frá
1. október sl. Samningur hefur
í för með sér að afgreiðslustöð-
um Eurocard á íslandi fjölgar
um þau 92 póstútibú sem eru
um allt land.
Með tilkomu samningsins geta
aðildarfyrirtæki Eurocard sótt
sína þjónustu í næsta póstútibú
t.d. uppgjörsseðla og úttektar-
seðla, skilað inn uppgjöri og þess
háttar.
Póstútibúin verða eftirleiðis
með umsóknareyðublöð fyrir
inga eingöngu sem tóku
afstöðu í könnuninni en
aðgæta verður að þetta þýðir
ekki að 33% fylgis flokksins
sé af landsbyggðinni og 14%
fylgis úr Reykjavík.
Um 26% íbúa á landsbyggð-
inni eru fylgjandi Sjálfstæðis-
Eurocard þannig að auðveldara
verður fyrir fyrirtæki að gerast
aðili að fyrirtækinu. Sama gildir
um einstaklinga sem hug hafa á
að gerast korthafar hjá Euro-
card.
Erlendir ferðamenn geta, með
tilkomu samstarfssamnings Pósts
& síma og Eurocard, tekið út
reiðufé á kreditkortum Eurocard
í hvaða póstútibúi á landinu sem
er. Samningi fyrirtækjanna hafa
starfsmenn Eurocard fylgt eftir
með heimsóknum í öll póstútibú
landsins og kynnt starfsmönnum
samninginn og þá þjónustu sem
hann hefur í för með sér. JÓH
flokknum og um 33% íbúa á
höfuðborgarsvæðinu fylgja
flokknum að málum samkvæmt
Hagvangskönnuninni.
Um 28% íbúa á höfuðborgar-
svæðinu eru fylgjandi Kvenna-
lista og um 17% landsbyggðar-
fólks er fylgjandi listanum. Sé lit-
ið á viðhorf landsbyggðarfólks
gagnvart A-flokkunum þá kemur
í Ijós að Alþýðubandalagið nýtur
stuðnings um 8,5% kjósenda á
landsbyggðinni og Alþýðuflokk-
urinn nýtur fylgis um 13% kjós-
enda utan af landi. Alþýðuflokk-
urinn hefur fylgi um 9% kjós-
enda á höfuðborgarsvæðinu og
Alþýðubandalagið um 7,9% fylgi
kjósenda á sama svæði.
Þetta yfirlit nær aðeins til
þeirra flokka sem fengu yfir 3%
fylgi í könnuninni. Borgaraflokk-
urinn fékk 3,3% fylgi í könnun
Hagvangs og af landsbyggðar-
kjósendum fylgja flokknum um
4% að málum. Hlutfallið er lægra
í Reykjavík eða um 2,5-3%.
Póstur og sími:
Samstarfssamningur
við Eurocard í gildi
- öll pósthús landsins
þjónusta Euro-kreditkorthafa