Dagur - 05.10.1988, Blaðsíða 5

Dagur - 05.10.1988, Blaðsíða 5
5. október 1988 - ÐAGUR - 5 ndalags kennara tndi eystra Myndbandið ekki bara mötunartæki - segir Marteinn Sigurgeirsson Myndatökur með myndbandi var einn liðurinn á dagskrá haust- þingsins og var hann í umsjá Marteins Sigurgeirssonar. Marteinn er kennari í Álftamýr- arskóla í Reykjavík og hefur m.a. unnið mikið með myndband í skólastarfinu. Hann hefur skrif- að bókina Myndbandið í félags- og skólastarfi sem kom út í fyrra og nú á næstunni kemur út bókin Myndbandið í skólastarfi, sem hann hefur einnig skrifað. Marteinn hafði skipt hópnum sem var að kynna sér myndatök- ur með myndbandi niður í fimm hópa og vann hver hópur að ákveðnu verkefni. Að aflokinni kynningu á tækjum og hvernig á að nota þau, hófst æfing í að vinna með tækin. í fyrstu veltu menn fyrir sér ýmsum hugmynd- um sem síðan voru útfærðar og var þá hafist handa við að skrifa handritið. Með handritið og myndbandstækin að vopni var haldið út að mynda; einn hópur hafði valið sér viðfangsefnið skóli og fjallaði það um ungan pilt sem er að hefja skólagöngu, annar hópur hélt að Goðafossi hvar myndað skyldi í gríð og erg og þá má nefna að hópur einn tók myndir á þinginu sjálfu og bjó til stutta mynd um það. Marteinn sagði að myndbandið gæti komið að góðum notum í skólastarfinu. „Myndbandstæki „Myndbandið getur komið að góðum notum í skó!astarfinu,“ segir Marteinn Sigurgeirsson. eru til í flestum skólum og iíka segulbandstæki, en þau hafa yfir- leitt verið notuð á annan veginn, til að horfa og hlusta. Ekki til að láta krakkana skapa eitthvað sjálfa. Eessi tæki eru ekki bara mötunartæki, það er hægt að skapa með þeim,“ sagði Marteinn. Myndbandið sagði hann að mætti nota í íslenskukennslu, myndmennt og samfélagsfræði, svo dæmi séu tekin og einnig Marteinn sýnir kennurum réttu tök- in á myndatökuvélinni. Myndir: gb Skemmdur eftir tjón Tilboð óskast í Chrysler Laser, árg. '84, fólksbifreið, skemmdan eftir árekstur. Bifreiðin er til sýnis á Bifreiðaverkstæðinu Víkingi sf., Furu- völlum, 5., 6. og 7. október. Tilboðum í bifreiðina skal skila á skrifstofu Sjóvá á Akureyri 7. október. Akurliljan Afmælistilboð! Já! Hvað skyldi það nú vera. Sjáumst. Akurliljan Hafnarstræti 106, sími 24261. Æfingar skíðaráðs Akureyrar Alpagreinar 15 ára og eldri. Mánudaga kl. 17.00 13ára og eldri. Mánud., miövikud. og föstud. kl. 19.00 10,11 og 12 ára. Þriðjudaga kl. 17.30 10,11 og 12 ára. Laugardaga kl. 9.30 9 ára og yngri. Laugardaga kl. 10.30 íþróttahúsiö Laugargötu íþróttahöllin iþróttavöllur (aöalvöllur) Glerárskóla Glerárskóla Áhugasamir nemendur skoða flugu í smásjá, en á Haustþingi BKNE að Stórutjörnum stóð Námsgagnastofnun fyrir sýningu á nýjum námsbókum og námsgögnum. mætti bjóða eldri nemendum upp á valgrein í myndbandagerð. „Ef krakkarnir Iæra að vinna með þessi tæki og læra inn á tæknina, eru þeir betur í stakk búnir til að greina kjarnann frá hisminu í öllu því fjölmiðlaflóði sem yfir okkur dynur. Við getum séð alveg ótrúlegt magn af erlendu efni og mikið af því er ekkert annað en rusl. Hafi krakkarnir unnið með þessa miðla í skóianum þá læra þeir ekki bara að tjá sig með þeim, heldur líka að sjá í gegnum þá,“ sagði Marteinn. Ganga 13 ára og eldri Þriöjudagaog fimmtudagakl. 18.00 13 ára og eldri. Laugardaga kl. 14.00 10,11 og 12 ára. Laugardaga kl. 9.30 9 ára og yngri. Laugardaga kl. 10.30 12ára og yngri. Sunnudagakl. 14.00 Nýskráningar á staðnum. Nánari upplýsingar: Alpagreinar: Tómas Lárus Vilbergsson, sími 23798, Gunnar Reynisson, sími 21046. Skíðaganga: Ingþór Eiríksson, sími 25161, Jóhannes Kárason, sími 25182, Sigurður Aöalsteinsson, sími 23662. íþróttavöllur (aöalvöllur) Kjarna Glerárskóla Glerárskóla Kjarna Bifreiðaeigendur Nú er rétti tíminn til að setja vetrardekkin undir Urval af nýjum og sóluðum vetrarhjólbörðum Athugið! Opið á laugardögum kl. 9-12 f.h. Véladeild Hjólbarðaverkstæði Óseyri 2, símar 23084 og 21400.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.