Dagur - 05.10.1988, Blaðsíða 4
'Í - ÖÁGÚS - 5. oktöbéV 1 ð8Ö
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
Á haustþingi Ba
á Norðurlí
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON
(Sauðárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON,
FRÍMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavik vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Byggðastofhun opnar
miðstöð á Akureyri
Miðstöð Byggðastofnunar á Akureyri var form-
lega tekin í notkun um síðustu helgi. Hún er sú
fyrsta í röð þriggja miðstöðva Byggðastofnunar
sem áformað er að koma á fót utan höfuðborgar-
svæðisins, gagngert til að auka þjónustu ríkis-
ins við landsmenn. Hinar verða á Egilsstöðum
og ísafirði.
Nú eru tvö ár liðin frá því stjórn Byggðastofn-
unar samþykkti að koma á fót stjórnsýslu-
miðstöðvum á landsbyggðinni. Tvö ár er ekki
langur tími þegar um er að ræða að auka þjón-
ustu hins opinbera, og í fljótu bragði mætti því
ætla að framkvæmd fyrrnefndrar samþykktar
gengi vel. Það er þó ekki alls kostar rétt. Komið
hefur á daginn að veruleg andstaða er gegn því
hjá forsvarsmönnum sumra ríkisstofnana að
auka þjónustu við íbúa landsbyggðarinnar með
því að opna þar afgreiðslustofnanir. Ekkert
ráðuneyti mun t.d. hafa aðsetur í hinni nýju
stofnun á Akureyri og væntanlega ekki heldur í
þeim stjórnsýslumiðstöðvum sem síðar munu
rísa. íbúar landsbyggðarinnar verða því eftir
sem áður að treysta á síma- og samgöngukerfið
þegar þeir eiga erindi við starfsfólk ráðuneyt-
anna. Fjárlaga- og hagsýslustofnun var ekki til
umræðu um að færa þessa þjónustu út fyrir
borgarmörkin, á þeim forsendum að óheimilt
væri að auka starfsemi þeirra stofnana sem und-
ir hana heyra. Slík röksemd er auðvitað ekkert
annað en fyrirsláttur, því það hefur ekki farið
fram hjá neinum að starfsemi flestra ríkisstofn-
ana hefur vaxið með ótrúlegum hraða á undan-
förnum árum. Lætur nærri að ríkið hafi bætt við
sig fjórum starfsmönnum á degi hverjum
undanfarin ár. Það kemur óneitanlega spánskt
fyrir sjónir að útþenslutregða geri þá fyrst vart
við sig, þegar til stendur að færa þjónustu hins
opinbera út fyrir borgarmörkin.
Stjórn Byggðastofnunar á þakkir skildar fyrir
framgöngu sína í þessu máli. Það er staðreynd
að um eða yfir 90% nýrra atvinnutækifæra verða
til innan þjónustugeirans. Langraunhæfasta
leiðin til að draga úr viðvarandi byggðaröskun
er því að byggja upp þjónustustarfsemi utan
höfuðborgarsvæðisins. Reyndar verður byggða-
þróuninni ekki snúið við með öðrum hætti.
Akureyri er í jafnmikilli fjarlægð frá Reykjavík og
Reykjavík frá Akureyri, þótt sumir virðist halda
annað. Það sama gildir um aðrar vegalengdir til
og frá höfuðborginni.
Það er hart að ríkið skuli ekki sýna meiri skiln-
ing á mikilvægi þess að auka þjónustuna við
íbúa landsbyggðar. Meðan hið opinbera sýnir
ekki betra fordæmi að þessu leyti, er ekki hægt
að ætlast til þess að aðrir geri það. BB.
Haustþing Bandalags kennara á Norðurlandi eystra var haldið í síðustu viku. Þingið var sem endra-
nær haldið í Stórutjarnaskóla og stóð það í tvo daga. Fyrri dagurinn var notaður til kynningar á
drögum að aðalnámskrá grunnskóla, en seinni daginn funduðu kennarar stíft og var að venju fjallað
um fjölmörg mál. Þar má nefna kynningu á nýju námsefni fyrir 8.-9. bekk í dönsku og möguleikum
á notkun ítarefnis í greininni, stærðfræðiörðugleika í víðu samhengi, hvernig myndbandið getur
nýst í skólastarfi og þá var fjallað um íþróttir í skólastarfi. Fjallað var um hlutverk umsjónar-
kennara og meginviðfangsefni hans, aðstöðu til mynd- og handmenntakennslu í grunnskólum á
Norðurlandi eystra og kynntar niðurstöður könnunar þar um og lagðar fram tillögur til úrbóta.
Einnig var fjallað um byrjendakennslu og viðhorfamótandi kennslu, þ.e. hvaða gildum skólinn á að
miðla og hvernig. Þinginu lauk með fundi Félags skólastjóra og yfirkennara á Norðurlandi eystra.
Umferðarfræðslan brýn
í byijendakennslunni
í stofu 2 í Stórutjarnaskóla var
saman kominn hópur kennara
sem sér um bvrjendakennslu. Ver-
ið var að fjalia um gildi umferðar-
fræðslu er Dagsmenn litu inn og
sagði Sigríður Jónsdóttir að mjög
brýnt væri að fjalla um umferðar-
mál við yngstu börnin. Hún sagði
að börnunum fyndist leiðin í skól-
ann ætíð spennandi, sama hvort
farið væri gangandi eða í skóla-
bíl. Þá hafði hún einnig orðið vör
við áhuga barnanna á því hvernig
ætti að haga sér þegar til borgar-
innar væri komið. Síðan vakti
hún athygli á nokkrum bókum og
sýndi in.a. nýja bók í samfélags-
fræði sem heitir Líf á norðurslóð-
um.
Hilda Torfadóttir tók næst til
máls og fjallaði um markvissa
málörvun. Hún kynnti bók þar
sem lcikir eru markvisst notaðir
til málörvunar og sagði að mikill
árangur hefði náðst hjá þeim
kennurum sem notuðu slíka leiki
og væru flestir á einu máli um að
árangurinn væri góður.
Þessar konur fylgdust með fyrirlestri um byrjendakennslu.
Leikfimi við
erfiðar aðstæður
- spjallað við Þorstein Kriiger kennara í Hrísey
Þorsteinn Krúger er kennari í
Barnaskólanum í Hrísey og ann-
ast hann m.a. alla íþrótta-
kennslu. Við hittum Þorstein þar
sem hann var á íþróttanámskeiði
Þorsteinn Krúger kennari í Itarna-
skólanum í Hrísey: Á eftir að nota
ratleikinn.
hjá Janusi Guðlaugssyni, en það
var einn liður haustþingsins.
„Mér fannst alveg tilvalið að
kynna mér þetta nánar," sagði
Þorsteinn en þetta er fyrsta ár
hans við kennslu.
Þorsteinn kennir eins og áður
sagði öllum börnum í barna-
skólanum og eru þau á aldrinum
6-14 ára. „Aðstaðan er heldur
bágborin hjá okkur," sagði hann,
en leikfimin er kennd í gömlu
félagsheimili og að loknum Ieik-
fimitínia þurfa krakkarnir að
klæðast fötum sínum án þess að
fara í sturtu því þær eru ekki fyrir
hendi. Krakkarnir mega því
hlaupa yfir í sundlaug staðarins
til að fara í bað eftir leikfimitím-
ann.
„Ég fór einmitt á námskeið
sem kallaðist „leikfimi við erfiðar
aðstæður," og hafði heilmikið
gagn af því. Janus kenndi okkur
til dæmis ratleik, allgóðan og er
ég sannfærður um að hann verð-
ur notaður við íþróttakennslu hér
Janus Guðlaugsson leiðbeindi
íþróttakennurum á haustþingi
BKNE.
í Hrísey,“ sagði Þorsteinn sem
sagðist bæði hafa haft gagn og
gaman af íþróttanámskeiðinu.
mþþ