Dagur


Dagur - 05.10.1988, Qupperneq 6

Dagur - 05.10.1988, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 5, október 1988 Stúdíó Stenmia á Seltjamamesi: Þeir sem þekkja til í Seltjarnarnesbæ muna eflaust eftir frystihúsi Isbjarnarins sem reyndar var lagt niður þegar Grandi hf. var stofnaður. Fisklyktin er horfin úr húsunum og nú hafa ýmis fyrirtæki fengið þar aðstöðu, þar á meðal Stúdío Stemma sem nú telst stærsta stúdíó landsins. Á þessum tíma árs eru annir í hljóðverum landsins, tónlistarmenn íóða önn að taka upp efni sem koma á út fyrir jólin. Svo er einnig íStúdíó Stemmu þar sem unnið er allan sólarhringinn við upptökur og vinnslu á efni. ' Sigurður Rúnar Jónsson við stjórnvölinn á Rolls-Royce mixeranna. Myndir og texti: JÓH Sigurður Rúnar Jóns- son á meirihlutann, eða 60%, í fyrirtæk- inu. Fleirum er hann kunnugur sem Diddi „fiðla“, þekktur úr poppheimin- um frá því á fyrri árum. Síðustu árin hefur hann rekið og byggt upp Stúdíó Stemmu og er nú kominn í húsnæði sem hann er ánægður með. Blaðamaður hitti Didda á dögunum og þótt komið væri fram á kvöld var hann stuttu vaknaður. Nóttinni var eytt í hljóðblöndun á efni sem karla- kórinn Fóstbræður gefur út nú fyrir jólin. Diddi lýsti því fyrst hvað þetta stúdíó hefur fram yfir önnur. „Kæmi ölhim stúdíóum í Reykjavík hingað inn“ „Fyrst og fremst er það rýmið sem við höfum. Mér er sagt að öll önnur stúdíó Reykjavíkur komist inn í Stemmu. Sem dæmi get ég nefnt að Hljóðriti er ekki nema einn áttundi af þessu stúdíói hvað stærðina varðar. Að rúmmáli er Stemma um 3000 rúmmetrar,“ segir Diddi og bætir við að mesta lofthæð í upptökusalnum sé um 8 metrar þannig að hér er ekkert smáhýsi á ferðinni. „Flest tækin í þessu stúdíói eru eins og gengur og gerist í stúdíó- um. Ég hef hér 24 rása upptöku- vél og 2 rása mastertæki. Én svo erum við með mixer sem verður að teljast nokkuð sérstakur," bætir Diddi við og segir að þetta tæki teljist Rolls Royce á mixer- markaðinum. Þetta tæki var handsmíðað árið 1977 af manni er nefnist Clive Green og rak fyrirtækið Cadac í Bretlandi. Clive þessi smíðaði aðeins mixera gegn pöntunum og þetta ár smíðaði hann aðeins tvo mixera, annan fyrir PYE-stúdíó- ið í London og hinn fyrir sænska ríkisútvarpið. Sá mixer mun enn vera þar í notkun. „Svo maður segi alla söguna þá tók fyrirtækið PRT við rekstri PYE í London og þar var mixer- inn þangað til haustið 1986 og meðal annars var Garden Party með Mezzoforte tekið upp á hann. „Bunch of vires and iron“ Síðan gerðist það haustið 1986 að mixerinn varð fyrir tjóni. í PRT-stúdíóinu sprakk vatnsrör þannig að vatn komst að mixern- um og skemmdi hann. Vatnið gerði það að verkum að víða urðu málmúrfellingar og rafmagn leiddi illa. Stúdíóið var vel tryggt og Clive Green, eða „Cadac himself“ eins og hann er nefndur í Bretlandi, taldi viðgerð taka um tvo mánuði. Þá ákvað trygginga- félagið að bjóða upp á nýjan mix- er í stað þess að hefja viðgerð og strax var byrjað að rífa mixerinn niður. Þar voru hreint engir fag- menn að verki því stykkjunum var lient niður í kassa og trékass- inn rifinn í sundur með kúbein- um. Tryggingafélagið hafði ekki tök á að koma mixernum í verð enda var hann aðeins „bunch of vires and iron“ fyrir þeim. Upp- tökumaður hjá PRT vissi hins vegar að ég gæti notað mixerinn og gert sjálfur við hann þannig að hann lét mig vita. Ég fór síðan út og skoðaði tækið og úr varð að ég keypti hann á 3000 pund eða um 200.000 ísl. krónur. í dag er hann fimm milljóna virði,“ segir Diddi og sýnir blaðamanni tækið greini- lega stoltur enda með langtum stærsta mixer landsins á gólfinu hjá sér. Eftir að mixerinn kom til íslands hófst viðgerð á honum sem tók sex vikur. Um mitt síð- asta ár var uppsetningu hans lok- ið og síðan þá hefur mixerinn verið notaður í Stemmu og reynst mjög vel. Unnið allan sólarhringinn Meðan á samtalinu við Didda stendur þarf hann að sinna bresk- um upptökumanni sem er hér á

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.