Dagur - 05.10.1988, Page 7
5. október,1988 - DAGUR - 11
átt nóg pláss aflögu. Þetta er
hvergi hægt annars staöar hér á
lantii. “
„Stúdíóin ekki nógu dýr“
Þeir sem fylgjast með hljóm-
plötumarkaöinum þekkja að fyrir
jólin og á sumrin hrúgast inn á
markaðinn nýjar plötur. Koma
þessar sveiflur ekki líka fram í
rekstri hljóðveranna?
„Jú, á sumrin koma inn pant-
anir á hausttímum enda slagurinn
harður um stúdíóin. Sama má
segja um síðari hluta vetrar. Mér
finnst þessar sveiflur hafa aukist
heldur en hitt," segir Sigurður
Rúnar.
Áður var minnst á breskan
upptökumann sem þessa dagana
vinnur í Stúdíó Stemmu við upp-
tökur á plötu Valgeirs Guðjóns-
sonar. Stúdíóið er leigt út, hvort
heldur sem er, án upptökumanns
eða með upptökumanni.
„Ef fólk vantar upptökumann
og ég er laus þá reyni ég að vinna
sem mest sjálfur en ef sérstakar
óskir koma fram um aðra upp-
tökumenn þá leigi ég aðstöðuna
út án manns."
Horfandi yfir þessi miklu tæki
og góða aðstöðu í Stúdíó
Stemmu er ekki hægt að verjast
þeirri spurningu hvort ekki sé
dýrt að taka upp eina plötu.
„Nei, í sannleika eru stúdíóin
ekki nógu dýr. Þar stendur hníf-
urinn í kúnni í dag," svarar Diddi
um hæl. „Ég held að fyrir tveim-
ur árum hafi 5 stúdíó verið starf-
andi í Reykjavík en á síðasta ári
bættust 9 stúdíó í hópinn og fyrir
bragðið er allt of mikið framboð
af stúdíóum á svæðinu. Útkoman
er sú að menn leggja út í glanna-
leg undirboð til að halda sér á
floti. Það er slagur sem ég tek
ekki þátt í,“ segir hann og bætir
við að Stemma sé um helmingi'
ódýrari en sambærileg stúdíó í
Bretlandi.
Fyrir um tveimur árum bar
nokkuð á að íslenskir tónlistar-
menn tækju upp í Bretlandi. Sá
tími er liðinn. „Ástæðan fyrir
þessu var ósköp einfaldlega að
stúdíóin hér heima voru ekki
nógu góð. En með tilkomu
Stemmu breyttist þetta á ný. Það
er ekki lengur þörf á að sækja
þessa þjónustu út, hér fá tónlist-
armenn allt sem þeir þurfa við
upptökur," segir Sigurður Rúnar
að lokum.
Varla er ástæða til að tefja
lengur við. Framundan er fyrsta
fríkvöldið hjá Didda í hálfan
mánuð en næstu vikur eru full-
bókaðar. „Nú getur maður loks-
ins borðað heima með fjölskyld-
unni,“ segir hann hlæjandi um
leið og hann slekkur ljósin í
frystiklefanum fyrrverandi.
menn sig kannski inn með kassa-
gítarinn undir hendinni og raula
lögin í belg og biðu eða þarf að
taka hvert lag aftur og aftur
áður en grænt ljós er gefið á
útkomuna? Hvað er ein meðal
hljómplata lengi í upptöku?
Diddi brosir við spurningunni
og byrjar að útskýra gang mála.
„Það er voðalega misjafnt hve
menn eru lengi að taka upp. Þeg-
ar komið er inn í stúdíóið hjá
mér og\§purt hve langan tíma taki
að vinná\fimm lög þá er ég yfir-
leitt vanuK að svara þessu eins.
Fyrsta platan sem Purrkur Pilnik
gaf út og ég tók upp var svo fljót
í vinnslu að ekki liðu nema 9
klukkutímar frá því hljómsveitin
labbaði inn í stúdíóið þangað til
master með 13 laga plötu var til-
búinn. Stuttu seinna tók hljóm-
sveitin Þeyr upp tveggja laga
plötu í Stemmu og eyddi 80 tírn-
urn í upptökur á plötunni þannig
að ekki er með nokkru móti hægt
að ákveða fyrirfram hversu lang-
an tíma upptökur standa."
- Nú er þetta risastúdíó á
íslenskan mælikvarða. Er mark-
aður fyrir svo stórt hljóðver?
„Já,“ fullyrðir Diddi unthugs-
unarlítið. „Raunin er sú að viö
íslendingar erum á eftir með
ýmsa hluti og þróun. Staðreyndin
er að þegar upp kemur aðstaða
sem ekki hefur verið fyrir hendi
þá er hún yfirleitt notuð og kem-
ur jafnframt í Ijós að þörfin fyrir
slíka aðstöðu hefur verið lengi
fyrir hendi. Hér er ekkert sam-
bærilegt stúdíó, t.d. hef ég sett
hér 60 manns í einu í upptöku og
„Já, ég breytti p. ,.n í ofna og
leiddi í þá heitt vatn og fæ þannig
út fína geislahitun. Salurinn held-
ur vel hita enda húsið einangrað
til að halda uppundir 30 gráðu
frosti og heldur því hitanum vel.
Þetta kemur mjög vel út og kynd-
ingarkostnaður er sáralítill,“ seg-
ir Diddi og tekur til við að rifja
upp ástand hússins þegar hann
skoðaði það fyrst.
„Þegar ég kom hingað fyrst í
ársbyrjun 1986 var ekkert raf-
magn hér inni og því mátti ég
þreifa mig áfram með lukt í
myrkrinu til að reyna að átta mig
á því hve stórt þetta væri. Þá var
ennþá þykkur ís í loftinu og því
hálfgerð rigning inni í klefanum.
Það varð síðan úr að ég tók
þetta á leigu í september 1986 og
byrjaði þá strax að innrétta. Ég
þurfti að logskera niður kælispír-
Flyglar geta bilað eins og annað. í miðri upptöku hætti ein nótan í flyglinum hjá Didda að gefa frá sér hljóð og þá
voru góð ráð dýr. Stefán Birgisson, píanóviðgerðarmaður úr Kópavoginum, var fljótur á vettvang þótt sunnudagur
væri og gerði við í snatri. Sigurður Rúnar fylgist af athygli með.
Eins og sjá má er Stúdíó Stemma ekkert smáhýsi. Lofthæðin er 8 metrar þar sem hún er mest og hljómburðurinn
góður. I gegnum lúgurnar á veggnum fóru áður þorskflök í blokkum en nú eru þær aðallega loftlúgur þegar hitinn
í stúdíóinu gerist óþarflega mikill.
landi við upptöku á nýrri sóló-
plötu Valgeirs Guðjónssonar sem
verður ein af jólaplötunum í ár.
Sú vinna tekur um 6 vikur og allt
tekið upp í Stúdíó Stemmu.
Aðspurður segir Diddi að nokk-
uð sé um að erlendir upptöku-
menn séu fengnir til að taka upp
plötur hér á landi og ekki sé
nema gott eitt um það að segja að
fá nýtt blóð og nýjan blæ í fagið.
Af verkefnum næstu vikna iná
nefna upptöku á nýrri plötu
Bjartmars Guðlaugssonar sem
hann sjálfur og Stúdíó Stemma
munu gefa út fyrir næstu jól.
Diddi fullyrðir að þar verði margt
skemmtilegt að finna líkt og á
síðustu plötu Bjartmars.
Síðustu nætur hefur Diddi lok-
ið við að mixa lög fyrir Karlakór-
inn Fóstbræður sem út koma eins
og áður segir fyrir næstu jól.
Ástæður fyrir því að þessi tími
sólarhrings er valinn eru þær að á
daginn er stúdíóið fullbókað í
upptökum á öðru efni og því eng-
inn tími afgangs nema næturnar.
Þetta er fyrsta heila starfsárið
sem Stemma er rekin eftir að
flutt var hingað út á Seltjarnar-
nes. Áður var Stemma í kjallara
á Laufásvegi og um tíma í Fóst-
bræðraheimilinu. En það er fleira
merkilegt við þetta stúdíó en
bara handsmíðaður mixer.
„Þá var þykkur ís í loftinu“
Húsnæðið sem Stemma er nú í
var áður frystiklefi ísbjarnarins.
Lúgur á einum vegg upptökusal-
arins voru áður notaðar fyrir
hleðslufæribönd en eru nú aðeins
skraut í þessum risasal. Kælispír-
alar í loftinu minna líka óneitan-
lega á fyrra hlutverk en Diddi sá
fljótt út til hvers mætti nota þá.
Síðastliðinn sunnudag var lítill barnakór í Stúdíó Stemmu við upptökur á
efni sem brátt heyrist í grunnskólum landsins. Á myndinni ræða Sigurður
Rúnar og stjórnandinn, Þórunn Björnsdóttir, við krakkana.
ala af einum veggnum og dró þá
út á Land Rover-jeppa sem ég
átti. Síðan tók við vinna við að
innrétta upptökuherbergi, snyrt-
ingar, koma upp tækjum og þess
háttar,“ segir Diddi.
„Voru 80 tíma
með tvö lög“
Margir velta því fyrir sér hversu
langan tíma taki að vinna eina
hljómplötu í stúdíói. Labba