Dagur - 08.10.1988, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 8. október 1988
vísnaþáttur
Jón
Bjarnason
frá Garðsvík
skrifar
Skattsvik.
Yfirvöldin gefa ei grið,
girnast fé í landssjóðinn,
og vel sé þeim sem veita lið
við að svíkja skattinn minn.
Sá er sagði mér næstu vísu vildi
ekki nefna höfund hennar.
Hátt skal það standa sem hugsjónin
byggir,
menn horfa á þess skýrasta vottinn:
Hótel KEA á kirkjuna skyggir,
en kaupfélagsstjórinn á Drottin.
Jakob Ó. Pétursson kvað næstu
vísu og nefnist hún Breyting.
Breytti um slóð og batt sér fljóð
sem bónda góðum sæmdi.
Niður óðar ómegð hlóð,
alla sjóði tæmdi.
Jakob orti einnig þessa fögru vor-
vísu:
Vorið kveður sitt Ijúflingslag,
leiftrar gleðin á bránum,
ég leit í gær og ég lít í dag
laufið spretta á trjánum.
Hallfreður
Örgumleiðason:
Sveinbjörn Beinteinsson gerði vin-
konu sinni þetta kostaboð:
Mælist varla meir en spönn
mittið fagra og netta,
þú ert orðinn allt of grönn.
Á ég að laga þetta?
Næstu vísu kvað Eiríkur Jónsson
frá Keldunúpi á Síðu.
Seggjum bjóða sómir þér
sjóð með óðar tökum.
Faðir Ijóða fá þú mér
flóð afgóðum stökum.
Jóhann Óiafsson í Miðhúsum kvað
er maður dæmdist til að greiða
barnsmeðlag:
Pað ergir marga að sjá af sínu
svona bara fyrir snatt,
en Bjössi varð að borga Stfnu
bæði þunga og vegaskatt.
Ásgrímur Kristinsson í Ásbrekku
kvað þetta um grobbinn karl:
Heilsaði karl í himnareit,
heimaði pundið vegið
en þegar hann kom þar í sveit,
þá var mikið hlegið.
Bragi Jónsson frá Hoftúnum orti
þetta um brúðhjón:
Eftir kjag inn kirkjugólf
klukkan níu fóru að hátta,
vöknuðu aftur tíu, tólf,
tvö og fjögur, sex og átta.
Þá finnst mér tilvalið að birta fjórar
skagfirskar hringhendur.
Jónas Jónasson frá Torfmýri kvað
þessa fallegu vísu:
Sólin þaggar þokugrát,
þerrar saggans úða.
Fjólan vaggar kolli kát
klædd í daggarskrúða.
Líklega hefur Jón Þorgrímsson frá
Þönglaskála kveðið þessa í róðri:
Upp þó springi aldan blá
ára kringum jóa
hörkuslingir hafið á
Hofsósingar róa.
Jón Sigurðsson frá Gilhaga kvað
þessa haustvísu:
Snævi skrýðast fögur fjöll,
fer að tfðin svala.
Sumar blfðu blómin öll
blikna í hlíðum dala.
Næstu vísu kvað Jóhann Magnús-
son frá Mælifellsá.
Skýin vindur hrekur hart,
hátt í tindum lætur.
Hylur strindi húmið svart,
himinlindin grætur.
Þá koma heimagerðar vísur. Maður
dó í kosningahrinu.
Ef til vill mun einhver gráta,
öndin hvarf úr slysarokk.
Það var honum líkt að láta
lífið fyrir þennan flokk.
Mynd á vegg.
Herrann Kristur hátt á vegg
í húsum okkar situr
harla Ijós á hár og skegg,
hæpinn Gyðingslitur.
Hvftir vilja svipinn sjá
sinn á ásýnd þekkri.
Kristnir negrar litinn ljá
lausnaranum dekkri.
Allir skapa almættið
eftir sínum vilja.
Mynda síðan málalið
menn sem þykjast skilja.
Næstu vísurnar tvær kvað Benedikt
Ingimarsson á Hálsi.
Vellyginn gestur.
Ekki er góður gesturinn.
Gremjulegt að heyra
hvernig lygalesturinn
lengist mér við eyra.
Ágirnd annara.
Sérhverju er sannara,
en synd um það að skrifa
að fyrir ágirnd annarra
ekki er hægt að lifa.
Þá koma tvær vísur eftir Kristján
Benediktsson málarameistara.
Kuldaleg lífspeki:
Fyrst löngum galt þér lánið valt
lífssvið kalt og hroðið
þiggja skalt með þökkum allt
það sem falt er boðið.
Góðan daginn, mínir elskanlegu
lesendur. Fjarskalega varð ég
ánægður þegar ég sá opnuauglýs-
inguna í Mogganum á dögunum
þar sem kynnt voru undrakrem,
gædd þeim eiginleikum að vinna
á hvers kyns líkamslýtum. Því
miður hefi ég fregnað að
heilbrigðisyfirvöld hafi gert
athugasemdir við þessa auglýs-
ingu, en undraefnin hljóta þó að
vera á boðstólum samt sem áður.
Áralöng sektarkennd íslendinga,
óánægja með eigin líkama,
brostnar vonir, minnimáttar-
kennd; allt þetta er á enda.
í stuttu máli sagt eiga
undrakremin að stækka brjóst,
græða bruna- og bólusár, vinna á
húðsliti, stöðva hárlos og flösu,
endurnýja litfrumur, eyða hinni
alræmdu appelsínuhúð
(cellulite), deyfa hrukkur, endur-
lífga húðina og megra ákveðna
líkamshluta. Þessu til staðfesting-
ar eru birtar myndir af fólki fyrir
og eftir notkun undrameðalanna.
Flatbrjósta kona skartar stinnum
barmi, bólótt húð er orðin slétt
og mjúk, gömul brunasár eru
skyndilega gróin, og svona mætti
lengi telja.
Eg er ekki í aðstöðu til að meta
sannleiksgildi auglýsinga af þessu
tagi, en auðvitað vonar maður að
þarna sé satt og rétt sagt frá. Þeir
sem fletta bandarískum tímarit-
um kannast ábyggilega við alls
konar undraefni, megrandi pillur
og krem sem stækka brjóst.
Auglýsingar um slík efni þekja
margar blaðsíður í hverju tíma-
riti og framleiðendur heita jafn-
I vel endurgreiðslu ef loforð um
fegurri líkama ganga ekki eftir.
Því skyldu íslendingar fara á mis
við þessi undur?
Mér til mikillar hrellingar hef
ég tekið eftir því að þessar
auglýsingar eru undantekninga-
laust stílaðar upp á konur; einu
undralyfin sem höfða sérstaklega
til karla eru skallalyf. Nú er vitað
mál að ekki eru allir karlar jafn
stinnir, spengilegir og góðir í
húðinni og mér finnst það argasta
ójafnrétti ef þeir mega ekki
endurheimta fyrri fegurð eins og
konurnar. Að vísu þurfa karl-
menn hvorki að hafa áhyggjur af
of litlum brjóstum, eða húðsliti
eftir barnsburð og varla
appelsínuhúð heldur, en einhver
ástæða hlýtur að liggja að baki
þessu kynjamisrétti.
Kannski, lesendur góðir,
kannski leyfist karlmönnum frek-
ar að vera eilítið of holdugir,
bólóttir og hrukkóttir. Kannski
eru gerðar meiri kröfur til
kvenna um slétta húð og lýtalaus-
an líkama fram eftir öllum aldri.
Ekki stjórnum við karlmennirnir
þessum fordómum; þetta hljóta
að vera tiktúrur kvennanna
sjálfra. Aliar vilja þær líkjast ein-
hverri ákveðinni fyrirmynd, hin-
um staðlaða kvenmanni, vera 172
cm að hæð, 56 kg að þyngd og
geta státað af málunum 90-60-90.
Það er þeirra höfuðverkur.
Eins og dyggustu lesendur
muna eftir hafði ég eitt sinn
þungar áhyggjur af eigin líkama.
Sorgir mínar voru þungar sem
blý og þetta endaði með harka-
legri meðferð á líkamsræktar-
stöð, svo harkalegri að ég gafst
upp og reyndi að sættast við
aukakílóin. Fljótlega tók ég upp
syndsamlegt líferni á nýjan leik
og öðlaðist sálarró fyrir vikið.
Ættingjar og vinir hörmuðu þessi
málalok og svo virtist sem allir
vildu að ég endurheimti hinn
íþróttamannslega vöxt sem ég
hafði um fermingu. Fráleitt,
a.m.k. hefði það kostað ómælda
vinnu og slíkt puð hentar mér
ekki.
Loksins get ég fullnægt kröfum
þjóðfélagsins án mikillar
fyrirhafnar. Þótt ekki sé ég
kvenmaður ætla ég að panta bíl-
hlass af undraefnum og fara að
gera eitthvað í mínum málum,
eins og stundum er sagt. Ég mun
sem fyrr liggja fyrir framan sjón-
varpið, þamba kók og úða í mig
súkkulaði, kófreykja og panta
hamborgara í hvert mál. Eini
munurinn verður sá að nú mun
ég ávallt hafa kremdollu við
höndina og einu sinni á dag ætla
ég að maka megrandi kremi um
allan líkamann, hrukkueyðandi
kremi á andlitið, græðandi kremi
á öll gömul sár og hella skalla-
vökva yfir höfuðið. Eftir
nokkurra mánaða legu get ég
skammlaust sýnt mig utandyra,
spengilegur sem aldregi fyrr og
það án þess að hafa í nokkru
breytt mataræðinu eða stundað
sprikl. Þvflíkur munur, lesendur
góðir, þvílík undur og stórmerki.
Bless í bili, hittumst heil, stinn og
stælt.
Stærri brjóst
og minna spik