Dagur - 08.10.1988, Page 4

Dagur - 08.10.1988, Page 4
4 - DAGUR - 8. október 1988 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR, 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (iþróttir), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Sjálfsbjörg á Akureyri 30 ára í dag eru 30 ár liðin frá stofnun Sjálfsbjargar á Akur- eyri. Sjálfsbjargarfélögin eru sannarlega merkileg samtök. Þau voru stofnað af fötluðu fólki sem sætti sig ekki við að litið væri á það sem annars flokks þjóðfélagsþegna. Frá upphafi hafa þau unnið ötul- lega að því að bæta. hag fatlaðs fólks og hjálpa því til sjálfsbjargar. Sjálfsbjörg ber því nafn með rentu. Akureyrarfélagið var eitt fimm Sjálfsbjargar- félaga sem stofnuðu með sér landssamband árið 1959. Þannig efldu Sjálfsbjargarfélögin samtaka- mátt sinn strax í upphafi og síðan hefur landssam- bandið vaxið og dafnað og samanstendur nú af 15 félögum víðs vegar um landið. Starfsemi Sjálfsbjargar á Akureyri er fjölþætt. Innan vébanda þess eru nú fjórar rekstrardeildir, Ako-plast, Plastiðjan Bjarg, Endurhæfingarstöðin og stjórnunardeild. Síðan eru minni deildir eins og göngudeild fyrir psoriasis- og exemsjúklinga og veggtennissalir, sem er það nýjasta í starfsemi félagsins. Starfsemin hefur því vaxið ört á fáum árum. Þar er unnið viðamikið endurhæfingar- og uppbyggingarstarf, sem hefur skilað ótrúlegum árangri. Markmiðið er að gera fötluðu fólki kleift að lifa sem eðlilegustu lífi; komast út á vinnumarkað- inn og fara sinna ferða án hindrana. Heiðrún Steingrímsdóttir, formaður Sjálfsbjargar á Akureyri um 15 ára skeið, rifjar það upp í viðtali í blaðinu í dag að á stofndegi Akureyrarfélagsins fyr- ir 30 árum, var samþykkt ályktun um að hækka skyldi tryggingabætur. Enn þann dag í dag er þetta eitt af baráttumálum fatlaðra, þótt heilbrigðis- og tryggingakerfið hafi smám saman tekið breyting- um í þá átt að koma í auknum mæli til móts við þarf- ir fatlaðra. Heiðrún vekur einnig athygli á því að rík- ið hefur ekki uppfyllt þau ákvæði laga er lúta að framlagi ríkisins til Framkvæmdasjóðs fatlaðra. Ljóst er að þarna er úrbóta þörf. Þrátt fyrir ötula baráttu Sjálfsbjargar í áratugi er enn langt í land með að fatlaðir njóti jafnréttis á við aðra í þjóðfélaginu. í lögum sem samþykkt voru á Alþingi árið 1978 er að finna ákvæði sem tryggja eiga jafnan rétt allra, þar á meðal hreyfihamlaðra og annarra sem erfitt eiga með að komast ferða sinna. Þótt lögin hafi verið í gildi í heilan áratug er pottur víða brotinn að þessu leyti. Tröppur, gang- stéttarbrúnir, þröskuldar, of þröng dyraop o.fl. eru hindranir á vegi þeirra sem eru hreyfihamlaðir. Shk- ar hindranir sjást allt of víða, jafnvel í nýjum bygg- ingum í eigu hins opinbera. Slíkar hindranir bera vott um þröngsýni meirihlutans og setja svartan blett á það velferðarþjóðfélag sem við höfum byggt upp. Þessum hindrunum þarf að ryðja úr vegi. Dagur færir Sjálfsbjargarfélögum á Akureyri árn- aðaróskir á merkum tímamótum í sögu félags þeirra. Megi félagið starfa um ókomin ár af þeim eldmóði og krafti sem einkennt hefur starfið frá upphafi, þjóðinni allri til heilla og framfara. BB. Kirkjukórinn á æfingu sl. þriðjudagskvöld. Stjórnandi kórsins er Björn Steinar Sólbergsson. Myndír: tlv Kirkjukór Akureyrarkirkju: í æfingabúðir að Skútustöðum um helgina - æfa fyrir vígslu nýja íslenska orgelsins Um þessar mundir er kirkju- kór Akureyrarkirkju að hefja vetrarstarf sitt. Talsvert af nýj- um kórfélögum hefur bæst við frá því í fyrra, en alls eru kór- félagar um 35-40 talsins. Björn Steinar Sólmundsson orgelleikari er stjórnandi kórsins og sagði hann í spjalli við Dag, að um helgina ætlaði kórinn að fara í æfingabúðir austur að Skútustöðum í Mývatnssveit og dveija þar í skólanum frá föstu- degi og fram á sunnudag. Með kórnum fer eitthvað af mökum og börnum svo alls ætla 60 manns að dvelja á Skútustöðum um helgina. „Við erum aðallega að undirbúa vígslutónleika vegna nýja orgelsins, en þeir verða haldnir 23. október nk. Á tón- leikunum verður leikið á nýja orgelið, kórinn syngur og Margrét Bóasdóttir syngur einsöng. Auk þess verður strengjakvartett með á tónleikunum. Mikill áhugi Kór Akureyrarkirkju æfir að jafnaði einu sinni í viku og eitt kvöld i viku er Margrét Bóas- dóttir með raddþjálfun. „Það er mjög mikill áhugi í kórnum,“ sagði Björn Steinar. „í kórnum eru fleiri konur en karlar, sem segja má að sé ójafnrétti á öfuga veginn, en það var ánægjulegt hversu margir nýir karlar bætt- ust við í haust. Við stöndum því nokkuð vel núna. Þá er þetta yfirleitt ungt fólk og mjög hress og góður hópur.“ Nýja orgelið sem væntanlegt er til Ákureyrar í næstu viku er smíðað af íslenskum orgelsmið, Björgvin Tómassyni og er fyrsta íslenska orgelið sem tekið er í notkun við kirkju á íslandi. Þetta verður annað orgelið í Akureyr- arkirkju, en það gamla stóra fær að sjálfsögðu að vera áfram á sín- um stað. Nýja orgelið verður staðsett niðri í kirkjuskipinu og er hugsað sem viðbót t.d. við flutning á kammertónlist og þeg- ar kórinn heldur tónleika, en þá getur kórinn staðið niðri og áhorf- endur séð hvað um er að vera. Björn Steinar sagði hljóðfærið kosta 900 þúsund krónur. Af því greiddi sóknarnefnd 600 þúsund og innan kórsins var stofnuð fjár- öflunarnefnd sem aflaði afgangs- ins. „Sú fjáröflun gekk vel. Akureyrarbær og menningar- sjóður KEA styrktu okkur, ég hélt eina tónleika og svo tók einn kórfélaga sig til og gekk á milli tannlækna. Með því söfnuðust 112 þúsund krónur og sýnir þetta hve áhuginn í kórnum er mikill.“ VG Núverandi stjórn Kirkjukórs Akureyrarkirkju. Talið frá vinstri: Kristín Alfreðsdóttir, Jón Árnason, Margrét Sig- urðardóttir formaður, Anna María Blöndal og Gunnfríður Hreiðarsdóttir.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.