Dagur - 08.10.1988, Side 7
8. október 1988 - DAGUR -
nROt- ft Hliftftn -
Á vegi þjáningarinnar, Via Dolorosa, þeim sem Kristur gekk með krossinn á leið til aftöku. í fararbroddi er Guðni
Þórðarson fararstjóri með útskorna Kristsmynd á krossinum.
athugun kom í ljós að voru rúmar
100 krónur ísl. En ökuferðin var
sannkölluð vitfirring. Þrír bílar
fóru nokkurn veginn samtímis af
stað, götuljós eru ekki nema tak-
markað virt og stöðugt er verið
að taka fram úr og þeir fram úr
hver öðrum allan tímann og
komu svo auðvitað samtímis á
áfangastað.
A tveimur akreinum voru yfir-
leitt fjórir bílar samtímis og
nokkurn veginn stanslaust legið á
flautunni, ýmist farið fram úr
hægra eða vinstra megin, veifað
og öskrað út um gluggann að
næstu bílstjórum til áminningar
fyrir sýnilegt umferðarlagabrot
og svo hlegið að öllu saman. Bíl-
arnir eru nær allir gamlir að sjá,
Lada, Fíat, Volga og gamli Peug-
eot ríkjandi, en einnig til Benz og
Volvo, nær allir eitthvað dældað-
ir, gjarnan handmálaðir. Jafnvel
skráningarnúmerið málað með
pensli, skröltið ærandi ef ójafna
varð á vegi og farið með höndina
út um gluggann til að opna hurð
irnar að utanverðu. En merkileg-
ast var þó að ekki varð ég vitni að
neinum árekstri, enda eru þessir
menn sjáanlega óhugnanlega
nákvæmir og öruggir, með augun
á báðum hliðarspeglum samtímis
á^amt möguleikum á eyðu fram-
undan einhvers staðar og bend-
ingar notaðar með stefnuljósum
eða í þeirra stað.
Þegar við svo aftur höfum fast
undir fótum við verslunartorgið
og að reyna að koma hjartslætti
og blóðþrýstingi í samt lag eftir
ökuferðina, vindur sér að útsend-
ari kaupmanna og spyr hvað okk-
ur vanhagi um. Leðurvörur eru
nefndar og upphefst eltingarleik-
ur um ótal krókaleiðir í iðandi
manngrúanum með stöðugum
ótta um að næstu skref boði
endalokin eða þó líklega eitthvað
miklu verra. En hann veit sínu
viti og þrátt fyrir látlausar
áminningar Guðna fararstjóra
um að tortryggja slíka menn elt-
um við, og viti menn, inn í skín-
andi vistlega leðurvöruverslun
þar sem þjónusta var ágæt ásamt'
vörugæðum.
Sungið í Kaíró
Þannig gekk þetta fyrir sig og
innkaupaferð í verslunarhverfi í
Kaíró kostar lítið meira en
stöðugan ótta og spennu í steikj-
andi sólarhitanum, þó með kitl-
andi ívafi eftirvæntingar og for-
vitni, a.m.k. af miðað er við
verðlag á íslandi. Leðurjakki
sem kostar 20 þúsund hér, á 4-5
þúsund kr. þar og karlmanns
jakkaföt rúmar 2 þús. kr. Góð-
málmar eins og gull og silfur hlið-
stætt ásamt ilmvötnum, og þá er
hægt að tala um ekta ilmvatn,
sem ilmar og ilmar eftir sturtur
og sápuþvott.
Eins og áður sagði er það stór-
fljótið Níl sem þarna lónar gegn-
um borgina og einn liður ferðar-
innar var sigling á seglbátum
dagstund um fljótið. Það var
verulega hressandi og skemmti-
legt, vindsveipir flögra þarna um
frá öllum áttum að því er virðist,
en þó héldu þessir siglarar fyrir-
fram ákveðnum rúnti og lentu í
sömu vör að lokinni ferð, og lagt
var frá.
Fimmtudaginn 16. júní var
sungið í listaháskóla í Kaíró, í
geysistóru og nýlegu tónleikahúsi
en ákaflega rykmettuðu og van-
hirtu. Aðgangur ekki seldur,
heldur boðið ýmsu fyrirfólki í
borginni og e.t.v. af því tilefni
reynt að þvo og þurrka það mesta
af rykinu. Þarna virtist vera
margt af embættismönnum en
sendiherra Páfagarðs í Kaíró þó
með einria mestum hefðarbrag.
Ríkissjónvarpið egypska var
þarna með allfornfáleg upptöku-
tæki sín og var konsertinn tekinn
upp. Segja má að hann tækist vel,
miðað við aðstæður, en lítið fór
fyrir bæði kór og áheyrendum í
þessum ógnarstóru húsakynnum.
Sólstingur
með tilheyrandi...
Laugardaginn 18. júní er svo
ekið frá Kaíró til baka um Níl-
arsléttuna, sömu leið og komið
var, yfir Súesskurðinn og þá til
Tel Aviv, þar sem dvalist var í
tvo daga. Það var því líkast að
fólkið væri komið heim til sín,
svo mikill var léttirinn þegar aft-
ur var komið til ísrael. Gafst þá
tækifæri til að slaka vel á eftir nær
stöðuga spennu þessara Kaíró-
daga.
Síðasti konsert ferðarinnar var
svo að kvöldi mánudagsins 20. og
var hann á útileiksviði í skemmti-
garði. Borgin heitir Natanaya og
er ákaflega vestræn og skemmti-
leg, líkt og Tel Aviv, en stutt var
milli þeirra.
Það var mjög svo notalegt að
aka og ganga um í hinni vest-
rænu, snyrtilegu og gróðursælu
borg, Tel Aviv, í vel agaðri og
hægri umferðinni. En slík
afslöppun, ásamt miklum hita og
loftslagsbreytingum, lýsir sér
gjarnan í meltingartruflunum og
eða kvefi. Þarna fékk sá er þetta
ritar líka að kynnast nýrri eða
áður óþekktri hegðan líkamans
eina kvöldstund þegar snertur af
sólsting hertók mig eftir ágætlega
hegðun á baðströndinni. Nær 40
gráðu hiti með þungum höfuð-
verk ásamt gríðarlegum skjálfta
og kuldahrinum, sem mætt var
með sífelldum bökstrum með
handklæðum vættum ísvatni, af
þeim er tilfellið töldu sig þekkja.
Eiginlega hálf ógætileg meðferð
fannst mér á, að því er virtist,
fársjúkum manni en hafði skjót
i og góð áhrif.
Heimferðin
Árla þriðjudaginn 21. júní hófst
svo heimferðin með svipuðu sniði
og koman hingað til Tel Aviv
var, utan að nú eru menn orðnir
allveraldarvanir og taka með
jafnaðargeði næstum hverju sem
að höndum ber. Alllangur tími
leið milli flugs að og frá Heath-
row flugstöðinni og notuðu sumir
hann til verslunarferðar inn í
London. Hluti hópsins settist þar
um nokkra daga til að versla og
slappa af en aðal hópurinn hélt
um borð í Flugleiðavél á leið
norður í hina nóttlausu voraldar
veröld.
Mikið var nú gott að heyra aft-
ur gömlu góðu íslenskuna þegar
komið var um borð, mjólkin og
fiskurinn hreinasta sælgæti og
ekki spillti ánægjunni að flug-
stjórinn, Ólafur Indriðason, og
yfirflugfreyjan Jófríður Björns-
dóttir voru fyrrum nágrannar og
Norðlendingar frá Dalvík og
Svarfaðardal.
Þegar litið er til baka yfir slíka
ævintýraferð sem þessa, er manni
efst í huga þakklæti fyrir að vera
kominn heim aftur. Og með lífs-
reynslu er færir manni enn og
einu sinni heim sanninn um það,
að hvergi er eins gott að vera og á
íslandi. Þá vitneskju eigum við
fyrst og fremst að þakka farar-
stjórn og skipulagi Guðna Þórð-
arsonar, sem er heill hafsjór af
fróðleik unt þennan fjarlæga
heimshluta. En þrátt fyrir frábær-
lega vel og hnökralaust skipu-
lagða ferð, er hver og einn þátt-
takandi alltaf miklu ráðandi um
hvernig til tekst, og samhentari
hópur á ferðalagi en þessi var, er
vandfundinn.
Með bestu kveðju og þökk,
Kristján Stefánsson Gilhaga II
(millifyrirsagnir eru blaðsinsf
16 metra langt, 120 tonna þungt og 3300 ára gainalt líkneski af konungnum
Rames II. Talið er að Rames hafi átt 40 konur og með þeim 51 dóttur og 110
syni!
1 _ .............""“V
| Leiöbeinendur
í skyndihjálp
Kynningarfundur á nýju námsefni í skyndihjálp
verður haldinn að Gránufélagsgötu 49, Akureyri,
laugard. 15. okt. kl. 13.00.
Á sama staö kl. 17.00 verður boöiö upp á endur-
menntun í hjartahnoði fyrir leiðbeinendur í skyndi-
hjálp.
Skráning og nánari upplýsingar veittar í síma 91-
26722.
^ +
Fjölnýtikatlar
til kyndingar meö
rafmagni, olíu eða
timbri, margar
geröir.
Mjög góö hitanýt-
ing og möguleiki á
stýrikerfum, til aö
fá jafnara hitastig.
C.T.C. Total er
öflugur nýr ketill
fyrir rafmagn, timb-
ur og olíu með inn-
byggðu álagsstýri-
kerfi.sem nýtir vel
rafmagnið fyrir þá
sem kaupa
árskílóvött.
UÓSGJAFINN HF.
GRÁNUFÉLAGSGÖTU 49 • SÍMI 23723 • 600 AKUREYRI
FYRIRTÆKISNÚMER 6148-9843