Dagur


Dagur - 08.10.1988, Qupperneq 11

Dagur - 08.10.1988, Qupperneq 11
8. október 1988 - DAGUR - 11 Endurhæílng og verndaður vinnustaður Ég fullyrði að þörf félagsmanna fyrir endurhæfingu og verndaðan vinnustað hafi haldist í hendur, því margir þurftu endurhæfingu til að geta unnið á vernduðum vinnustað. Sem betur fór var þrýstingur á félagið ekki ein- göngu innan frá, hann fór alltaf vaxandi frá aðilum sem stóðu utan félagsins. Petta var gott því það sýndi betur en margt annað hversu mikil þörf var fyrir starf- semi þess. Þar sem ég hef minnst á erfða- fjársjóð vil ég taka fram að sá sjóður óx og dafnaði að framlög- um, en í sjóðinn rennur erfða- skattur og arfur sé enginn erfingi fyrir hendi. Með hækkuðu fast- eignamati fóru tekjur hans vax- andi. Ég er þakklát fyrir að hafa. átt sæti í endurhæfingarráði allan gildistíma endurhæfingarlag- anna.“ - En hvenær breyttust lögin um málefni fatlaðra? „Þau breyttust ekki meðan ég sat í endurhæfingarráði en í félagsmálaráðherratíð Svavars Gestssonar, var fyrst farið að ræða um að breyta lögunum þannig að þau næðu til fatlaðra í víðtækara samhengi og færa forsjá málefna þeirra meira yfir til ríkisins og þar af leiðandi meiri miðstýringu. Þá fór skil- greiningin á því hverjir væru fatl- aðir að breytast. Ég hafði litið svo á að með tilkomu Sjálfsbjarg- ar hefði verið skilgreint hverjir væru fatlaðir, þ.e. hreyfihamlað- ir. I dag er málum svo komið að ríkið hefur ekki uppfyllt loforð eða ákvæði í lögum um framlög til framkvæmdasjóðs fatlaðra sem tók við af erfðafjársjóði. Þetta er auðvitað áhyggjuefni en ég vil ekki ræða þá hluti nánar í afmælisviðtali sem þessu. Álit mitt er að nteð tilkomu laganna um málefni fatlaðra hafi verið stigið spor aftur á bak, í fleiri en einum skilningi. Lögin voru eflaust sett af góðum ásetningi en þau eru ekki fullkomin frekar en önnur mannanna verk og þarfn- ast endurskoðunar. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að starfa að málefnum fatlaðra um árabil og vonandi hefur mér tekist að koma ein- hverju gagnlegu fram. Ég vil minnast allra þeirra fjölmörgu aðila sem ég átti samstarf við, ekki síst í endurhæfingarráði, en þar áttum við Akureyringar hauka í horni þegar á reyndi.“ - Ert þú bjartsýn á að Sjálfs- björg eigi eftir að gegna áfram um langa framtíð því mikilvæga hlutverki sem félagið var stofnað til? „Það fer auðvitað eftir baráttu- vilja fatlaðra sjálfra hvort þeim tekst að halda í horfinu eða ekki. Svo framarlega sem fatlaðir eru framsæknir og huga að framtíð sinni í þjóðfélaginu er ég ekki uggandi um málefni þeirra. Málefni fatlaðra þurfa sífelldrar endurskoðunar við og þá þurfa fatlaðir sjálfir að bera gæfu til að fylgja þeim fast eftir. Ef við hefðum ekki verið bjart- sýn á fyrstu árum félagsins og byggt skýjaborgir með sjálfum okkur þá hefði rniðað hægt fram á veginn. Félagið fékk alls staðar dyggan stuðning við baráttumál sín og ég vona að það hafi í ein- hverjunt mæli getað endurgoldið samfélaginu þann stuðning. Segja má að við, sem í upphafi stóðum að stofnun félagsins, höf- um gert það í eigingjörnum til- gangi í vissum skilningi, en starf- semi á vegum Sjálfsbjargar hefur orðið mörgum öðrum að gagni. Fatlaðir verða að hafa hugfast að þeir fá sjaldnast á silfurfati leið- réttingu sinna mála. Ég er bjart- sýn á framtíðina ef félög fatlaðra halda fast við upprunaleg mark- mið sín. EHB „Það var ekki fyrr en með til- komu laga um endurhæfingu um 1970. Þá voru endurhæfingarlög- in svonefndu samþykkt á Alþingi. í lögunum var tekið fram að til verndaðra vinnustaða væri skylt að greiða jafnmikið framlag og viðkomandi félag afl- aði á eigin vegum. Framlagið skiptist þannig að helmingur þess var lán til langs tíma og helming- urinn beinn óafturkræfur styrkur úr erfðafjársjóði. Þannig varð ein króna alltaf að tveimur. Þetta vissu þeir aðilar sem styrktu Sjálfsbjörg og ekki var legið á því að upplýsa fólk um að hér væri fjáröflun á ferðinni sem kæmi öllum til góða. Þar að auki voru allar gjafir og áheit til félagsins undanþegin skatti." - Var ekki mjög hvetjandi fyr- ir fólk að styrkja félagið þegar þetta kerfi var í gildi? „Jú, svo sannarlega, því við gátum tvöfaldað allar upphæðir sem við eignuðumst. En ég held að sú mikla samheldni sem var um félagið á Akureyri hafi mikiö komið til af því hvað félagið Hann var beðinn um að hraða ákvörðuninni því fljótlega ætti að halda landssambandsþing Sjálfs- bjargar í bænum. Daginn fyrir þingið kom ákvörðunin. Fatlaðir máttu skilja bíla sína eftir við stöðumæla án þess að greiða í þá. Honum var bent á að við hefðum aldrei farið þess á leit að fá að sleppa við greiðslu. Sýslumaður sagði að það væri rétt en þeir hefðu ákveðið að hafa þetta svona. Þetta var í fyrsta skipti hér á landi sem yfirvöld viðurkenndu sérstakar reglur um bifreiðastöð- ur fatlaðra. Hér er lýsandi dæmi um afstöðu stofnana og félaga til fatl- aðra á Akureyri. Alltaf var tekið vel í beiðnir félagsins um aðstoð hér í bæ og velviljinn í garð fatl- aðra var og er ómetanlegur." Með endurhæfíngar- lögunum tvöfölduðust öll framlög - Hvenær varð breyting í þá átt að hið opinbera fór að leggja fram fé til uppbyggingar fyrir fatlaða? Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, sæmdi Heiðrúnu fálkaorðunni árið 1985 fyrir störf að málefnum fatlaðra. Frá byggingu Gamla Bjargs, húsið rétt orðið fokhelt þegar myndin var tekin. Haukur Þórðarson yfirlæknir á Reykjalundi, Heiðrún Steingrímsdóttir, Hildur Bergþórsdóttir og Magnús Ólafsson sjúkraþjálfari við opnun endurhæfingarstöðvarinnar að Hvannavöllum. - Voru endurhæfingarlögin aðalhvatinn til áframhaldandi uppbyggingar á vegum Sjálfs- bjargar á árunum upp úr 1970? „Vissulega voru þau okkur hvatning en þörfin fyrir þá þjón- ustu sem félagið veitti fyrir gildis- töku laganna var alltaf að aukast. Gamla Bjarg sprengdi utan af sér og þá fórum við að hugsa til meiri framkvæmda. Þegar endurhæf- ingarstöðin í gamla Bjargi tók til starfa missti félagið fundarsalinn því hann var notaður fyrir plast- iðjuna. Eftir það voru félags- fundir haldnir innan um tækin í endurhæfingarstöðinni. lífsbaráttunni og hafði búið við erfið kjör. Þegar fólkið fór að starfa í félaginu var eins og það yrði fyrst að manneskjum. Það var stórkostlegt að fylgjast með þessu, þetta var svo gleðilegt að því verður varla með orðum lýst. Minningin um þetta er mér mjög dýrmæt.“ Góður andi ríkti gagnvart Sjálfsbjörg - Var ekki eitt aðalverkefni Sjálfsbjargar að breyta viðhorf- inu til fatlaðra og færa þá í meira samband við þjóðfélagið? „Með tilkomu Sjálfsbjargar- félaganna var það haft að mark- miði að fatlaðir skyldu lifa sem íslenskir þjóðfélagsþegnar með í sömu réttindum og skyldum og aðrir. Við vildum uppfylla skyld- ur okkar jafnt og aðrir þegnar þótt við fengjum einnig aðstoð. | Sem dæmi um þetta var að við ’ fórum að leita eftir því hjá bæjar- fógetaembættinu á Akureyri að fatlaðir fengju að leggja bílum sínum þar sem styst væri fyrir viðkomandi að fara. Þá voru komnir stöðumælar í Hafnar- stræti, en þar eru stærstu stofnan- irnar, t.d. pósthúsið, útibú Tryggingastofnunar ríkisins, fógetaembættið og fleira. Við sendum sýslumanninum erindi þess efnis að fatlaðir mættu leggja bílum sínum við stöðu- mælana án þess að fá sektir þótt tíminn á mælinum væri útrunn- inn. Þetta var árið 1966. Sýslumaðurinn tók við erind- inu og sagði að formaður félags- ins mætti koma og vitja um niðurstöðuna eftir nokkra daga. sýndi mikinn dugnað og þrótt. Álmenningur vissi að félagið meinti það sem frá því kom og það sást e.t.v. best á byggingu gamla Bjargs að Hvannavöllum 10. Skoðun mín er sú að allt það fólk sem styrkti Sjálfsbjörg gerði það í þeirri vissu að félaginu væri treystandi til að fara með þá fjármuni sem af hendi voru látnir. Magnús frá Mel, fjármálaráöhcrra, sést á þessari mynd ásamt Magnúsi Ólafs- syni, yúkraþjálfara. Þeir eru að skoða vél til plastframleiðslu.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.