Dagur - 08.10.1988, Qupperneq 13
8. október 1988 - DAGUR - 13
leiklist
Kristjana Pálsdóttir leikstjóri á uppfærslu Emils í Kattholti.
Leikfélag Sauðárkróks:
Æfingar byrjaöar á
Enul í Kattholti
Leikfélag Saudárkróks hefur
hafið æfingar á barnaleikritinu
Emil í Kattholti, eftir Astrid
Lindgren. Leikstjóri er Krist-
jana Pálsdóttir, og er þetta
hennar fyrsta leikstjórn hér-
lendis. Þýðandi leikritsins er
Vilborg Dagbjartsdóttir og
útsetningar á tónlist gerði Karl
Sighvatsson. Mikið er sungið í
leikritinu og um tónlistina sér
Hilmar Sverrisson. Stefnt er að
því að hefja sýningar á Emil
um miðjan nóvember.
Leikstjórinn, Kristjana Páls-
dóttir, er 28 ára, fædd á Siglu-
firði. 11 ára gömul flutti hún til
Reykjavíkur, lauk þar gagn-
fræðaprófi og var í eitt ár við nám
í framhaldsskóla. Árið 1981 byrj-
aði hún hjá leiklistarskóla Helga
Skúlasonar og var í honum til
’83. Þar kviknaði leiklistaráhugi
hennar fyrir alvöru og ’84 fór
Kristjana í leiklistarnám til
London í leiklistarskólann East
15 Acting School, sem kennir
jöfnum höndum leikstjórn og
leiklist. Úr þeim skóla útskrifað-
ist Kristjana í júlí 1987 sem leik-
ari. í London var hún aðstoðar-
leikstjóri Maureen Thomas á
verki sem studdist við Völuspá,
og var sett upp fyrir íslendinga-
hátíð 1. des. ’86. Eftir að
Kristjana kom aftur til landsins
lék hún sl. vetur með Leikfélagi
Akureyrar í leikritinu Pilti og
stúlku. Síðan Iá leið hennar til
Sauðárkróks að leikstýra Emil í
Kattholti.
í uppfærslunni á Emil munu
um 30 manns taka þátt, en í því eru
19 hlutverk. Ágætlega hefur gengið
að ráða leikara. Að sögn Maríu
Grétu Ólafsdóttur formanns
Leikfélags Sauðárkróks er þetta í
fjórða sinn á fimm leikárum sem
félagið setur upp barnaleikrit.
Árið ’84 var það Galdrakarlinn í
Oz, Lína Langsokkur ’86, Kardi-
mommubærinn ’87 og nú er það
prakkarinn Emil frá Kattholti.
María sagði að ástæða þess að
félagið setti upp Emil væri að
sjálfsagt væri að sinna yngstu
kynslóðinni í leiksýningum.
Verður ekki annað sagt en Leik-
félag Sauðárkróks hafi staðið sig
vel í því undanfarin ár. „Fólk er
líka tilkippilegra fyrir söng- og
gamanleikjum, heldur en alvar-
legri leikritum," sagði María
Gréta. -bjb
JC AKUREYRI
er félagsskapur fyrir
ungt fólk
áaldrinum 18-40 ára
JC er alþjóðlegur félagsskapur, sem hefur
þjálfun einstaklingsins að leiðarljósi. JC á fjöl-
mörg félagsmála- og stjórnunarnámskeið.
Námskeið sem haldin verða á vegum JC Akureyrar fyr-
ir áramót eru:
ísbrjóturinn
Eykur sjálfstraust, léttir af þeim hömlum, sem kunna aö vera á eðlilegri og
frjálslegri tjáningu í töluðu máli. (6 kvölda námskeið).
Hefst þriðjudaginn 11. október.
Leiðbeinandi: Magga Alda Magnúsdóttir.
Fundarsköp og fundarstjórn
Þjálfar þátttakendur I að taka virkan þátt í fundastörfum og stjórna fundum
samkvæmt réttum fundarsköpum.
Verður haldið helgina 14.-16. október.
Leiðbeinandi Eggert J. Levy.
Óskipulagði stjórnandinn
Sýnir þörf skipulags, forgangsröðunar og timastjórnunar. Höfðar vel til fólks i
stjórnunarstörfum.
Verður haldið föstudaginn 4. nóvember.
Leiðbeinandi Þorsteinn Fr. Sigurðsson rekstrarhagfræðingur.
Fundargerðaritun
Kennir hvað skrifa á í fundargerðir á hinum mismunandi fundum.
Haldið helgina 14.-16. október.
Leiðbeinandi Rannveig Sigurðardóttir landsritari JC íslands.
Bansettu fundirnir
Kennir mikilvaegi góðrar skipulagningar á fundum.
Verður haldið iaugardaginn 5. nóvember.
Leiðbeinandi Þorsteinn Fr. Sigurðsson rekstrarhagfræðingur.
Happdrætti
Vinningshafar fá ókeypis þátttöku á ofangreind námskeið.
Vinningsnúmer: 925, 937, 1260, 1313, 3252, 4006, 4007, 4980, 5023, 5430.
Námskeiðin eru öllum opin.
Upplýsingar og innritun í símum 26650 og 26511
(Halldór) eða 24509 og 27322 (Hallgrímur).
María Gréta Ólafsdöttir formaður Leikfélags Sauðárkróks.
' I 2* 07 X $ ^ v, w W H wá ffl m B
. M i % ' •1111 #1*J fl'HÍI a or *•!
SiiiÉIÉIIlSf ÍiPíÍPÍBIÍIMfiHf'Flraú" ■ úíJí* ’■ *
\ I MmkmKmagmz:' r* UíuUtlLm íifl I ÍI TFFFTMn
> ■ SL*®. JLdl JL JL Lu L ™ VJ. % : J
||ff| 1§wi3313Bm Bragðbætt skagfirsk súrmjólk í handhægum hálfslítra fernum
lljOp ^_^Dreifingaraðili
■ flsr -■■■ wí-í. • ■ "ffe" Mjólkursamsalan
l . Æ. ÆBjjSmlí: ■ ^ í ' a ■fJL n ! -'■ ÆmýykVmfcK. . £ >--w' - | MjólkursamlagJ&
* Sauðárkróki